Valsblaðið - 01.05.2006, Qupperneq 64
íþróttamaður Vals árið 2004, Berglind íris Hansdóttir, gerð-
ist atvinnumaður í Danmörku á árinu eins og unnusti hennar
Bjarni Ólafur Eiríksson, íþróttamaður Vals 2005.
enduðu tímabilið á glæsilegan hátt, með
því að vinna alla fjóra leiki sína, tvo
gegn Haukum í undanúrslitum og tvo
gegn IBV í úrslitum. Stelpumar sýndu
eins og strákarnir mjög góðan handbolta
en herslumuninn vantaði upp á að klára
deildina og bikarinn. Deildarbikarinn var
hins vegar glæsilegur titill og kærkom-
inn.
Evrópuævintýri meistaraflokka
karla oy kvenna
Báðir meistaraflokkar tóku þátt í Evr-
ópukeppni og var það mikið ævintýri
fyrir leikmenn og alla sem að starfinu
standa. Strákarnir höfðu ekki heppn-
ina með sér og fengu arfaslakt lið frá
Georgíu í 1. umferð. Báðir leikirnir fóru
fram hér heima og var getumunurinn á
liðunum mikill. Ekki orð um það meira.
I 2. umferð mættu strákarnir Sjundeá frá
Finnlandi og með frábærum útisigri í
fyrri leiknum tryggðu þeir sig í 3. umferð
EHF keppninnar. Þar mætti liðið Skövde
frá Svíþjóð og urðu strákarnir að játa sig
sigraða gegn mjög sterku liði Svíanna, en
það var ekki mikið sem skildi liðin að og
ánægjulegur heimasigur batt enda á þátt-
töku strákanna í keppninni.
Stelpurnar hófu sitt Evrópuævintýri
í 16 liða úrslitum Askorendakeppn-
innar, en þar mætti liðið HC Athinaikos
frá Grikklandi. Báðir leikirnir fóru fram
í Grikklandi og eftir tap í fyrri leiknum
sneru stelpurnar blaðinu við og komust
í átta liða úrslit keppninnar. Þar drógust
þær gegn svissneska liðinu LC Bruhl og
fóru báðir leikimir fram í Laugardals-
höll. Eftir tvo skemmtilega leiki náðu
Valsstelpurnar að sigra og vom þar
með komnar í undanúr-
slit keppninnar, sem jafn-
ar besta árangur íslensks
kvennaliðs í Evrópu-
keppni. I undanúrslitunum
mætti liðið CS Tomis Con-
stanta frá Rúmeníu og þar
varð útileikurinn liðinu að
falli, en hann tapaðist með
12 mörkum. Stelpumar
sýndu hins vegar frábæran
leik á heimavelli og unnu
með 7 mörkum í besta
kvennahandboltaleik hér-
lendis á síðari árum.
Það er alveg ljóst
að þátttaka Vals í
Evrópukeppni síðastliðin
tvö ár hefur gefið
okkur mikið. Leikur strákanna
við Skövde hér heima og leikur
stúlknanna við Constanta vom
félaginu til mikils sóma. Margir
áhorfendur mættu og stemningin
var mjög skemmtileg. Þátttaka í
Evrópukeppni skilar leikmönn-
um reynslu og það er mat okkar
að hún hafi skilað sér í betri
spilamennsku liðanna í deildinni
hér heima. Hins vegar var ákveð-
ið að hvíla Evrópukeppnina
á yfirstandandi tímabili og er
ástæðan einfaldlega sú hversu gríðarleg
vinna fer í að láta enda ná saman við
slíka þátttöku. Handboltinn er í þann-
ig stöðu núna að eingöngu kostnaður er
við að taka þátt í Evrópukeppni og mikið
álag er á sjálfboðaliðum og leikmönnum
sjálfum við fjáröflun til þátttökunnar. Við
erum þó reynslunni ríkari og munum að
sjálfsögðu taka þátt í Evrópukeppni í
nýju húsi á næsta ári.
Breytingar á stjórn
Nokkrar breytingar urðu á stjórn deild-
arinnar í sumar. Stefán Karlsson tók við
formennsku, auk þess sem Sigríður Jóna
Gunnarsdóttir og Sigurjón Þráinsson
bættust í hópinn. Jóhann Þórarinsson og
Bjarni Gunnarsson létu af stjómarsetu
en tóku þess í stað sæti í fjárhagsráði og
styðja dyggilega við störf deildarinnar.
Samningar viö leikmenn til þriggja
ára
Strax í vor var farið af stað með að semja
til lengri tíma við leikmenn meistara-
flokkanna, en þá vinnu leiddu, ásamt
stjórn, þeir Geir Sveinsson og Valdimar
Grímsson, sem ættu að vera flestum
Valsmönnum kunnir. Niðurstaðan varð
sú að velflestir leikmenn eru samnings-
bundnir félaginu til þriggja ára og er það
gríðarlega sterkt.
Breytingar á leikmannahópi
Þó nokkrar breytingar urðu á leikmanna-
hópum liðanna fyrir tímabilið. Stórt
skarð var höggvið í kvennaliðið þegar
besti leikmaður íslandsmótsins undanfar-
in ár, Berglind Iris Hansdóttir, ákvað að
freista gæfunnar í dönsku deildinni og
gekk til liðs við SK Árhus. Frábært fyrir
Berglindi að komast að í bestu kvenna-
deild í heimi og til marks um hversu frá-
bær leikmaður hún er. Auk hennar lagði
Sigríður Jóna Gunnarsdóttir markmaður
skóna á hilluna. í þeirra stað eru komn-
ar þær Pavla Skavronkova og Jolanta
Slapekiene. Pavla er tékknesk landsliðs-
kona og hefur spilað í heimalandi sínu
og í Slóveníu undanfarin ár. Jolanta er frá
Litháen en hún hefur leikið hér á landi í
nokkuð mörg ár með FH í Hafnarfirði.
Soffía Rut Gísladóttir kom til baka frá
Spáni og Gréta Þórsdóttir Björnsson
kom til liðs við okkur frá Danmörku. Þá
gekk Hildigunnur Einarsdóttir til liðs við
félagið frá Fram, en hún var nýlega valin
í kvennalandsliðið undir stjóm Júlíusar
Jónassonar. Að auki hefur Brynja Stein-
sen tekið fram skóna að nýju og hefur
reynst og mun reynast mikill liðsstyrkur.
Kvennaliðið fékk svo frekari liðsstyrk í
lok október þegar Guðrún Drífa Hólm-
geirsdóttir gekk til liðs við félagið. Alla
Georgijsdóttir Gokorian hefur hins vegar
ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir
langan og farsælan feril á íslandi með
Val, Gróttu-KR og ÍBV. Við vonumst þó
til að njóta krafta hennar áfram á öðmm
vettvangi enda afburðamanneskja þar á
ferð og frábær handboltakona.
Olajhr Haukur Gíslason í sjónvarpsviðtali.
64
Valsblaðið 2006