Valsblaðið - 01.05.2006, Page 76
Bergur er áfram með þennan flokk í
vetur.
9. og 10. flokkur fóru í lok tímabils í
frábæra keppnisferð til Gautaborgar þar
sem drengirnir kepptu á móti liðum alls
staðar að frá Norðurlöndunum og enduðu
síðan ferðina eins og fslendingum sæmir
á fjögurra stjörnu hóteli með tærnar upp í
loft síðustu dagana.
Þess má geta að drengimir voru síð-
asta íslenska liðið til að spila við Kanann
upp á velli og var sú ferð ekki til fjár þar
sem bandarísku klappstýrumar tóku litlu
drengina á taugum.
11. flokkur drengja, fæddir 1989
Þjálfari: Agúst Jensson
Strákarnir í 11. flokki stóðu sig frábær-
lega og urðu bikarmeistarar eftir sigur á
Njarðvík í úrslitaleik en Njarðvík hafði
ekki tapað leik í þessum árgangi í mörg
ár. Liðið endaði í öðm sæti í íslands-
mótinu og urðu Reykjavíkurmeistarar.
Sævaldur Bjarnason er þjálfari liðsins
í vetur.
Drengjaflokkur, fæddir 1988
Þjálfari: Ágúst Jensson
Öflugur flokkur sem er farinn að æfa og
spila með meistaraflokki. Þeir komust í
úrslitakeppnina í íslandsmótinu en féllu
út í átta liða úrslitum, auk þess duttu þeir
út í átta liða úrslitum í bikarkeppninni.
Eggert þjálfar þessa stráka í vetur.
Unglingaflokkur drengja
Þjálfari: Eggert Maríuson
Eftir nokkur ár án unglingaflokks hefur
Eggert sett saman lið sem spilaði síðasta
vetur. Ekki unnust margir leikir en liðið
bætti sig töluvert er leið á veturinn og
koma þeir enn þá sterkari til leiks í ár.
Minibolti drengja
Þjálfarar: Bergur Már Emilsson og
Birgir Mikaelsson
Miniboltaflokkar drengja er stór hópur
sem náði mjög góðum árangri og sýndi
framfarir á síðasta vetri. Bergur og Birgir
7.flokkur. Efri röð
frá vinstri: Höskuldur
Jónsson, Friðrik Þórðar-
son, Hjálmar Örn
Hannesson, Knútur Ing-
ólfsson, Aron Olafsson,
J. Kormákur Arthursson
og Sœvaldur Bjarnason.
Neðri röð frá vinstri:
Arnar Óli Einarsson,
Óskar Höskuldsson,
Eysteinn Eyvindsson,
Benedikt Blöndal, Jón
Ingi Ottósson og Isak
Andri Arnarsson.
11. flokkur. Efri röð
frá vinstri: Agúst Þorri
Tryggvason, Haraldur
Valdimarsson, Hjalti
Friðriksson, Kjartan
Ragnars, Páll Fannar
Helgason og Sœvaldur
Bjarnason. Neðri röð
frá vinstri: Baldur
Eiríksson, Halldór
Margeir Halldórsson,
ArnórSigurgeirÞrastar-
son, Atli Barðason og
Bia Mothua.
þjálfarar halda vel utan um flokkana og
halda áfram góðu uppbyggingarstarfi í
vetur.
Minibolti kvenna
Þjálfari: Signý Hermannsdóttir
I fyrsta skipti í mörg ár var kvennaflokk-
ur starfræktur hjá Val. Signý tók að sér
þetta verkefni og náði góðum árangri.
Hópurinn var lítill í upphafi en endaði
sem sterkur 12 manna hópur.
Kristjana Magnúsdóttir hefur tekið við
minibolta kvenna ásamt því að þjálfa 7.
flokk kvenna sem hefur verið skráð til
leiks fyrir þetta tímabil. Valur verður því
með tvo kvennaflokka í vetur og bjóð-
um við Kristjönu velkomna til starfa og
óskum henni góðs gengis í vetur.
Valsmenn í landsliðum
Við Valsmenn áttum þrjá landsliðsmenn í
ár. Tveir léku með 20 ára landsliði karla
sem tók þátt í Evrópukeppninni í körfu-
bolta í Portúgal í sumar. Þetta eru ann-
ars vegar leikstjómandi meistaraflokks,
Steingrímur Gauti Ingólfsson, sem leikið
hefur 15 landsleiki, og hins vegar fram-
herjinn Alexander Dungal, sem leikið
hefur 10 landsleiki.
Hörður Helgi Hreiðarsson hefur verið
fastamaður í yngri landsliðum íslands
76
Valsblaðíð 2006