Valsblaðið - 01.05.2006, Page 86

Valsblaðið - 01.05.2006, Page 86
Mfum að hugsa vel , _ ana Ágúst Júhannsson er metnaöarfullur ug hæfur þjálfari sem hefur starfað um árabil fyrir handknattleiksdeild Vals / faðmi fjölskyldunnar, Sigríður Unnur Jónsdóttir og Agúst Jóhannsson ásamt dœtrum sínum, Asdísi Póru og Lilju. Ágúst Jóhannsson er okkur Valsmönn- um að góðu kunnur en hann hefur starfað fyrir félagið með hléum frá árinu 1999, meðal annars sem aðstoð- arþjálfari meistaraflokks karla, yfir- þjálfari en lengst af sem þjálfari meist- araflokks kvenna. Ágúst gerði stelpumar að bikarmeist- urum árið 2000, sællar minningar, auk þess sem liðið varð Deildarbikarmeistari síðastliðið vor undir hans stjórn, en hann tók aftur við liðinu fyrir síðasta tímabil. Ritnefndin ákvað að hafa samband við Ágúst og forvitnast um þennan hæfa þjálfara og spjalla við hann um hand- bolta en ekki síður kynnast manninum á bak við þjálfarann. Gæti verið að ljúfur leynist fjölskyldumaður á bak við þann sem lætur mikið í sér heyra á hliðarlín- unni? Fæðingardagur, fæðingarár og fjöl- skylduhagir? „Ég fæddist 19. febrú- ar 1977 og er kvæntur Sigríði Unni Jónsdóttur og við eigum tvær yndislegar dætur, Ásdísi Þóru fjögurra ára og Lilju tveggja ára.“ Sem uppalinn KR-ingur, hvað fékk þig til þess að ganga til liðs við Val? „Það var nú erfitt á sínum tíma. Oskar Bjarni 2 var búinn að reyna fá mig í Val í nokk- ur ár. Svo bauðst mér að þjálfa meist- araflokk kvenna og ég sló til. Algjört bíó þegar við félagarnir settumst niður og hann var að semja við mig fyrir hönd Vals. Ég sé alls ekki eftir því enda hefur mér alltaf liðið vel hjá félaginu." Fólk þekkir ágætlega afrek þín sem þjálfari, en hvað með leikmannsfer- ilinn? „Ég tók snemma ákvörðun um að ég ætlaði mér að verða þjálfari og byrj- aði mjög ungur að þjálfa. Mér fannst allt- af mjög spennandi að vera þjálfari. Sem leikmaður lék ég tvö tímabil í efstu deild og féll bæði árin. Eftir að ég féll í seinna skiptið ákvað ég að segja þetta gott.“ Við hvað starfarðu utan þess að þjálfa? „Ég starfa sem sölustjóri hjá Kerfi.“ Hvernig myndirðu lýsa sambandi þínu og aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna, Karls Guðna Erlingssonar? „Samband okkar er frábært. Við tölum saman 2-3 sinnum á dag og er hann ekki síður aðalþjálfari en ég. Fyrir okkur skiptir ekki máli hvor er hvað, held- ur höfum við skýra verkaskiptingu. Þá skiptingu höfum við aldrei rætt, held- ur þekkjum við hvor annan það vel að við vitum nákvæmlega hvar styrkleik- ar okkar liggja. Samstarfið er mjög gott og er Kalli einn sá allra færasti sem ég hef starfað með. Það er gaman að segja frá því að fyrir 20 árum var Jóhann Ingi þjálfari KR liðsins í handbolta og Kalli var þá aðstoðarmaður hans. Það má segja að þar hafi samstarf okkar Kalla hafist en þá var ég einmitt vatnsberi, 9 ára gam- all.“ Ertu duglegur að hjálpa til við heim- ilisverkin? „Úff, já ætli ég standi mig ekki bara þokkalega. Annars sér frúin aðallega um þetta og stendur sig alveg prýðilega. Því sé ég ekki alveg ástæðu til að breyta þessari verkaskiptingu. Veit samt ekki hvort hún sé endilega sammála mér í því.“ 86 Valsblaðið 2006

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.