Valsblaðið - 01.05.2006, Page 87

Valsblaðið - 01.05.2006, Page 87
Eftir Stefán Karlsson Pjálfarar meistaraflokks kvenna Karl Guðni Erlingsson aðstoðarþjálfari og Ágúst Jóhannsson. Margir Yalsmenn þekkja Sigríði Unni, konu þína, og vita því að þú ert vel giftur. Hverja telurðu helstu kosti Sigríðar og hvernig kynntust þið? „Úff ... hún er skipulagðasta manneskja sem ég hef kynnst, sem er mjög gott en stundum tómt vesen fyrir mig. Hún hefur marga kosti og t.a.m. enn að þola þetta handboltavesen á manni allan sólarhring- inn. Það er sennilega ekkert grín. Ég kynntist henni í Valsheimilinu fyrir u.þ.b. 7 árum og það má segja að upphafið hafi verið ákveðið bíó útaf fyrir sig. Segi ekki meir.“ Myndir þú segja að þú værir fjöl- skyldumaður? „Já, engin spurning. Ég er mjög vel giftur og á yndisleg böm. Þó að ég sé oft upptekinn vegna vinnu og handboltans þá finnst mér lífið bjóða upp á svo margt annað og vil verja sem flest- um stundum með fjölskyldunni. Lífið snýst um að fjölskyldulífið gangi vel og bömunum líði vel og í lífi mínu er fjöl- skyldan í fyrsta sæti.“ Margir muna eftir þér í miklum ham á hliðarlínunni þegar þú stjórnar liði þínu. Af hverju lifirðu þig svona mikið inn í handbolta? „Mér finnst ég alltaf vera sallarólegur. En það er bara þannig að ég er mikill keppnismaður og lifi mig mikið inn í leikinn. Svona er ég bara og það breytist sennilega aldrei. Svo fylgir þessum bolta mikið stress en það er svo sem eðli starfsins. Ég veit ekki um neinn þjálfara sem er ekki stressaður fyrir og í leik.“ Hversu mörg símtöl hringir þú á dag? „Símtölin hafa aldrei verið talin.“ Nú hefur þú þjálfað lengi hjá Val og kynnst ýmsu. Hvernig líst þér á fram- tíð handboltans í Val? „Nokkuð vel. Við emm með góða meistaraflokka bæði karla- og kvennamegin. Bæði liðin em á góðum aldri og mikil framtíð í þeim. Hins vegar þurfum við að hugsa vel um yngri flokkana. Aðstaðan er að verða frá- bær og ég er bjartsýnn á framtíðina." Hvernig finnst þér staðið að málum hjá handknattleiksdeild Vals? „Mjög vel. Hef ekki út á margt að setja og vona að starfið haldi áfram að vera jafn gott og það er núna og verði enn betra á næsta tímabili í nýju og glæsilegu húsi. Stjóm deildarinnar og félagsins á hrós skilið að mínu mati.“ Hver myndir þú segja að væri þín stærsta stund sem þjálfari? „Bikarinn 1999-2000, úrslitakeppnin hjá körlunum 2002-2003 og síðan var tímabilið í fyrra mikil upplifun. Náðum mjög langt í öllum mótum og frábært að spila í und- anúrslitum Evrópukeppninnar." í framhaldi af því, hverja telurðu stærstu stund þína í lífínu? „Giftinguna og fæðingar dætra minna. Ótrúlegar stundir sem ég gleymi aldrei. Þær voru gleðilegri og erfiðari en nokkur hand- boltaleikur." Att þú þér einhverjar fyrirmyndir í boltanum? „Geir Sveinsson. Frábær þjálfari, það er algjör synd að hann sé ekki að þjálfa núna. Ótrúlega sterkur per- sónuleiki sem ég vona innilega að eigi eftir að snúa sér aftur að þjálfun." Nú er komin pása hjá stelpunum og þær eru í toppbaráttu. Megum við eiga von á því að Iiðið nái í titil á yfirstand- andi tímabili líkt og síðastliðið vor? „Markmið mitt er að ná góðum árangri með liðið í vetur líkt og í fyrra. Miðað við stöðu liðsins núna er ekki óeðlilegt að stefna á titil í vetur. Svo svarið er já.“ Að lokum: Ertu með einhver góð ráð fyrir unga og upprennandi leikmenn hjá Val? „Nokkrir málshættir hafa lengi loðað við fþróttir; œfingin skapar meist- arann og þeir hœfustu lifa af. Þetta eru góð ráð sem mér finnst að allir geti og ættu að tileinka sér, hvort sem það er í íþróttum eða öðru. Hins vegar kemur enginn til með að ná árangri án þess að hafa trú á sjálfum sér. Allir ættu að muna það.“ Ágústi er þakkað fyrir gott spjall. Ákváð- um var að fá fleiri álit á Ágústi en frá honum sjálfum. Óskar Bjami Óskarsson þjálfari meistaraflokks karla og Karl Guðni Erlingsson aðstoðarþjálfari meist- araflokks kvenna hafa báðir þekkt Ágúst lengi og starfað mikið með honum. Þeir höfðu þetta að segja: Óskar Bjarni Óskarsson um flyust „Ágúst Jóhannsson er mjög hæfur þjálf- ari og veit mikið um handbolta. Ég tel hann vera góðan á flestum sviðum grein- arinnar, þ.e varðandi sókn, vörn og að hann getur kennt leikmönnum og gert Valsblaðið 2006 87

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.