Valsblaðið - 01.05.2006, Page 92
Eg er alinn upn við pað að hafa
fyrir nlutunum
Freyr fllexandersson gerOi 4. flokk kvenna að íslandsmeisturum á
síðasta tímabili og er mjög metnaðarfullur yngri flokka þjálfari
Freyr Alexandersson á Stjörnuvelli
ásamt aðstoðarþjálfurunum Signýju
Heiðu Guðnadóttur og Leu Sif Vals-
dóttur.
Freyr Alexandersson segir að gald-
urinn að baki frábærum árangri 4. flokks
kvenna á síðasta tímabili liggi sennilega
í því að þessar stelpur hafi flestar mjög
góðan grunn í fótbolta enda gengið í
gegnum góða yngri flokka þjálfun. Hann
segir að margar af þessum stelpum hafi
líka verið lengi saman og það hjálpi
mikið til. Stelpurnar séu einnig metn-
aðafullar og tilbúnar að gera allt sem
fyrir þær er lagt og það geri starf þjálf-
arans mun skemmtilegra en ella. „Það
var virkilega skemmtilegt að landa
fslandsmeistaratitlinum í sumar en það
var miklu skemmtilegra og meira gef-
andi að horfa á stelpurnar fagna þessum
áfanga og sjá gleðina í augum þeirra
að leikslokum, það er eitthvað sem ég
gleymi seintsegir Freyr af einlægni.
fllinn upp í Breiðholti
Freyr Alexandersson er alinn upp í
Breiðholti og hefur búið þar alla sína ævi
fyrir utan eitt ár í Kaupmannahöfn. „Það
er gott að búa í Breiðhoitinu og þar eign-
aðist ég mína nánustu vini og kærustu.
Eg er alinn upp við það að þurfa að hafa
fyrir hlutunum og það var passað upp á
það að maður fengi ekkert upp í hend-
urnar og það hefur skilað sér í íþróttirn-
ar hjá mér og ég hef alltaf krafist þess af
sjálfum mér og þeim sem ég hef þjálfað
að þeir leggi sig hundrað prósent fram.“
fllltaf leikið með Leikni
„Ég byrjaði seint að æfa knattspyrnu. Ég
hætti svo í knattspyrnu þegar ég átti að
ganga upp í 5. fl. en þá tók körfubolt-
inn öll völd og ég æfði hann af miklum
krafti og þótti nokkuð frambærilegur.
Það var svo þegar ég var að klára 8. bekk
að Leiknir lagði niður körfuboltadeildina
og ég hafði ekki mikinn áhuga á að spila
annars staðar og Magnús Einarsson læri-
meistari minn plataði mig á æfingu í 3.
fl. á yngra ári. Ég hef svo alla tíð spilað
með Leikni fyrir utan eitt ár í Danmörku
þar sem ég lék í dönsku 3. deildinni.
Ég hef leikið í kringum 110 meistara-
flokksleiki með Leikni og var með þeim
íslandsmeistari í 2. deild 2005 og spila
með þeim núna £ 1. deildinni."
Skemmtilegt atvik með
Leikni
Þegar Freyr er spurður um skemmtilegt
atvik úr eigin íþróttaiðkun minnist hans
strax atviks úr leik Leiknis og Njarðvíkur
í 2. deild 2005. „Við vorum að spila
hörkuleik við lið Njarðvíkur og með
sigri áttum við sigurinn í deildinni vísan.
Haukur Gunnarsson fyrirliði Leiknis og
mikill snillingur tók homspymu og skor-
aði á eitthvem óskiljanlegan hátt beint úr
henni og allt ætlaði um koll að keyra á
gettó grand heimavelli Leiknis. Haukur
gerði sér lítið fyrir og fór upp á áhorf-
endapalla til þess að finna konuna sína og
smellti á hana rembingskossi með hálft
liðið á eftir sér sem áttaði sig ekki á því
að dómarinn hafði flautað aukaspyrnu en
ekki dæmt mark og Njarðvík kom með
allt sitt lið á siglingu upp völlinn gegn
fimm leikmönnum okkar, mér þótti þetta
ekki mjög fyndið á þessu augnabliki en
við hlæjum af þessu í dag enda skemmti-
leg minning,“ segir Freyr kíminn.
Fyrinmyndip í íþróttum
„Mínar helstu fyrirmyndir em íþrótta-
menn sem eiga það allir sameiginlegt að
leggja sig ávallt 100% fram og skila því
sem þeir eiga til liðsins. Michael Jordan,
einn mesti íþróttamaður allra tíma, Jamie
92
Valsblaðiö 2006