Valsblaðið - 01.05.2006, Qupperneq 98
Ungir Valsarar
Tómas Karl Kjartansson leikur knattspyrnu með 2. flokki
Tómas er sextán ára og hóf feril sinn hjá
Valsliðinu á yngra ári í þriðja flokki og
er nú á þriðja ári með Val. Eftir að hann
fluttist til Reykjavíkur frá Álftanesi valdi
hann að ganga til liðs við Val vegna þess
að félagið er stórt með merka sögu. „Mér
finnst heiður að fá að klæðast Valstreyju
og leika fyrir þetta lið. Ég bjó á Álfta-
nesi, sem hét Bessastaðahreppur áður, og
byrjaði mjög ungur að spila með UMFB
sem heitir núna UMFÁ og spilaði með
því liði þangað til að ég gekk í Val. Báðir
foreldrar mínir sýna íþróttaiðkun minni
gífurlegan áhuga. Pabbi mætir á alla
leiki og mamma sér um að undirbúa mig,
eldar hollan og góðan mat fyrir leiki
þegar það á við. Mamma mæt
einnig á alla þá leiki sem
hún getur. Þetta skiptir mig
mjög miklu máli. Hjálpar
mér óneitanlega sem knatt-
spyrnumanni “
- Hvernig gekk ykkur í
sumar?
Okkur gekk ekki nógu
vel, hvorki í þriðja
flokki né öðrum.
Við féllum niður í
B-deild í báðum
flokkum. En
það þýðir bara
að við munum
bæta okkur
í sumar. Við
tókum einnig
þátt í ýmsum
undirbún-
ingsmótum og
bikarkeppni
KSÍ. Áætlað
var að fara í
utanlandsferð, en
því miður þurfti að
hætta við hana. Hún
hefði án efa þjappað
hópnum vel saman.
Hópurinn í öðrum flokki er mjög sterkur
og þjálfarinn góður. Ég býst við miklu af
okkur í sumar. Ég held að þessi 2. flokk-
ur sé framtíð Vals.
- Fyrirmyndir í boltanum?
Ég á mér auðvitað fyrirmyndir í bolt-
anum. Mest af öllum fylgist ég með Rio
Ferdinand hjá Manchester United. Mér
finnst hann vera leikmaður sem allir mið-
verðir ættu að reyna að verða. Hann er
fljótur, sterkur, teknískur, útsjónarsamur
og fyrst og fremst frábær vamarmaður.
Ég hrífst af yfirvegun hans inni á vell-
inum. Finnst hún aðdáunarverð. Ég reyni
að horfa á eins mikinn fótbolta og ég get
og reyni að læra af sem flestum.
- Hvað þarf til að ná árangri í
íþróttum?
Að ná langt í íþróttum kost-
ar fómir. Maður þarf að hafa
rétt hugarfar og vera tilbúinn
að takast á við allan þann
mótbyr sem verður á vegi
manns. Tfmabilið er langt og
maður verður að vera tilbúinn
að horfast í augu við það.
Maður má ekki tapa
sér í gleði eftir
hvern einasta sig-
urleik eða gráta
eftir hvert tap.
Horfa verður á
heildarmynd-
ina. Til þess
að ná langt
í íþróttum
þarf einn-
ig að hugsa
vel um lík-
amann, borða
rétt, teygja vel
og hvílast nóg.
Það sem ég gæti
gert til að bæta mig
er til dæmis að huga
betur að mataræð-
inu og borða meira
af grænmeti. Einnig myndi ég vilja bæta
hraðann hjá mér og úthald, þó svo að ég
sé ekki hægur leikmaður eða í slæmu
formi. Það er bara alltaf gott að hafa
nægan hraða og úthald.
- Hvers vegna fótbolti?
Ég stunda einnig körfuknattleik, með
fótboltanum. Fótboltinn er þó alltaf
númer eitt. Karfan er meira hugsuð sem
aukagrein. f körfuboltanum reynir á aðra
vöðva og er þetta annars konar leikur.
Mér finnst fínt að nota körfuknattleik til
að halda mér við. Fótboltinn er mér afar
mikilvægur. Segja má að fótboltinn sé
mjög stór partur af lífi mínu.
- Framtíðardraumar í fótbolta?
Ég stefni fyrst og fremst á að komast
að í meistaraflokki Vals í sem nánustu
framtíð. Svo vonast maður alltaf eftir því
að komast að í atvinnumennsku, hvar svo
sem það verður. Draumurinn væri þó allt-
af að komast að í ensku úrvalsdeildinni.
Alltaf gott að hafa drauma, þeir gætu
orðið að veruleika. Samhliða knattspyrn-
unni stefni ég að því að Ijúka við fram-
haldsskólanámið og svo vonandi læra
eitthvað tengt íþróttum í framtíðinni.
- Einhver þekktur Valsari í fjöl-
skyldunni?
Nei, enginn þekktur Valsari í minni
fjölskyldu. Pabbi minn, Kjartan
Sigtryggsson, var markvörður Keflavíkur
og landsliðs íslands. Hann spilaði með og
á 'móti mörgum frábærum Valsmönnum.
- Hvaða þýðingu hefur
Friðriksbikarinn fyrir þig?
Ég er auðvitað mjög stoltur af því að
hafa fengið Friðriksbikarinn. Ég met
nafnbótina mikils.
- Hver stofnaði Val?
Séra Friðrik Friðriksson stofnaði Val,
árið 1911.
- Lífsspeki?
Ég er sagður vera frekar latur við
heimilisstörfin og rólegur í tíðinni. Ætli
lífsspeki mín sé því ekki: Ekki gera neitt
í dag sem þú getur gert á morgun.
98
Valsblaðið 2006