Búnaðarrit - 01.01.1944, Blaðsíða 175
BÚNAÐARRIT
107
Frá sumrinu 1941 er þyngd byggsins eltki góð á
Suðurlandi og er um að kenna srnáu útsæði. Gró-
magnið má teljast ágætt. Byggið frá Norðurlandi hefur
rcynzt betur, bæði að þyngd og grómagni, enda var
þar hagstæðari uppskerutíð.
Grasfræræktinni hefur bæði árin verið haldið við
i liku horfi og undanfarin ár. Fræræktin 1941 varð
þó undir meðallagi, þó sumarið væri gott, stafar þetta
af því, að fræakrarnir voru orðnir of gamlir og varð
því fræsprotamyndun gisnari en í 2 ára gömlum ökr-
um. Framleiðslan varð alls 276 kg og var aðallega
túnvingull, hávingull, háliðagras og mjúkfax. Fræið
þroskaðist með fyrra móti og bjargaðist vel þurrt í
hlöðu áður en septemberrigningarnar dundu yfir.
Grasfræframleiðslan 1942 varð miklu ineiri, eða
minnsta kosti 800 kg fræ. Fékkst þetta af mun minna
landi en árið á undan, enda var mestur hluti fræ-
tekjunnar af nýjum ökrum. Fræið þroskaðist mun
siðar en árið á undan vegna lægri sumarhita. Að
ýmsu leyti var þó tíðin hagstæð grasfræþroskun, þvi
um frjógunartíma frægrasanna var tíð þurrviðrasöm.
Fræskurðurinn varð frá 15.—30. ágúst og náðist fræið
allt vel þurrt.
Tilraunir í frærækt eru ekki aðrar en með úrval i
túnvingul og vallarsveifgrasi.
Fræ það, sem selt var frá stöðinni 1941 og 1942,
reyndist eins og eftirfarandi yfirlit sýnir:
Arið 1940.
Tala Gróhraði Grómagn 1000 Iræ
Tegundir rannsóknn % % vega gr
lúnvingull (F. rúbra) ... 2 42.5 52,6 1,220
Háliðagras (A. pratcnsis) 1 55,2 80,0 0,872
Hávingull (F. pratcnsis) . 2 9,0 11,0 1,765
Mjúkfax (Bromus mollis) 2 66,5 82,0 3,574
Rygresi (.Lolium pcrennc) 1 7,0 9,0 1,832