Heilbrigðismál - 01.03.1995, Blaðsíða 6
Lovísa Einarsdóttir - Jóhannes Long
Innlent
Vítaverður
akstur
Þeir sem valda tjóni í
umferðinni af ásetningi
eða stórkostlegu gáleysi
verða iðulega að bera
tjón á sínu eigin farar-
tæki bótalaust en auk
þess krefjast trygginga-
félög oft endurgreiðslu á
bótum sem þau hafa
greitt öðrum vegna tjóna
í slíkum tilvikum. Á síð-
asta ári þurftu á annað
hundrað tjónvaldar að
endurgreiða trygginga-
félögum allt að tveimur
milljónum króna hver af
þessum sökum. í níu af
hverjum tíu skiptum
höfðu þeir sem ollu tjóni
verið ölvaðir við akstur.
Æfingar eftir
brjóstaaðgerð
Konum sem hafa farið
í skurðaðgerð vegna
brjóstakrabbameins hefur
síðustu sex ár staðið til
boða sérstök líkamsrækt
undir leiðsögn Lovísu
Einarsdóttur íþróttakenn-
ara. Frá upphafi hafa æf-
ingar farið fram á Hrafn-
istu í Hafnarfirði. Þar er
aðstaða mjög góð í leik-
fimisal og þar er sund-
laug og heitir pottar.
Vatnsleikfimi í sundlaug
Hrafnistu í Hafnarfirði.
„Markvissar líkamsæf-
ingar, ekki síst vatnsleik-
fimi, hafa víðtæk og góð
áhrif," segir Lovísa.
„Þær draga úr afleiðing-
um aðgerðarinnar, þar á
meðal þeirri röskun sem
verður á starfsemi sog-
æðakerfisins og áhrifum
lyfjameðferðar sem oft er
sársaukafull. Þjálfunin á
að auka vellíðan og
hjálpa konunni að öðlast
góða starfsgetu á nýjan
Ieik. Æfingum þarf að
haga á þann veg að kon-
urnar, hver og ein, reyni
á sig eftir getu hverju
sinni."
Áfram veginn . . .
Sextíu milljónum króna
verður árlega varið til að
auka öryggi í umferð á
þjóðvegum landsins,
samkvæmt vegaáætlun
sem lögð var fram á Al-
þingi í vetur. Unnið verð-
ur að úrbótum á hættu-
legum stöðum, en Vega-
gerð ríkisins heldur skrá
um öll slys á vegum úti
og getur á þann hátt
fundið hvar þörfin er
mest.
Nú eru um 130 þúsund
bifreiðar á landinu og er
það þrefaldur sá fjöldi
sem var fyrir aldarfjórð-
ungi. Þjóðvegakerfið er
alls um 12300 kílómetrar
og á því eru 370 brýr,
þar af er þriðjungurinn
með ófullnægjandi burð-
arþol og meirihluti þeirra
er mjórri en sex metrar,
en það er talið geta aukið
slysahættu.
Fer þorramatur
vel í fólk?
Enda þótt Þorrinn sé
liðinn fyrir nokkru er
fróðlegt að velta fyrir sér
hollustu þess matar sem
þá var á borðum. Helsti
mælikvarði á hollustu er
fita, og ekki bætir úr að
hún er að mestu leyti
mettuð þegar um kjötaf-
urðir er að ræða. Ekki
kemur á óvart að af hefð-
bundnum þorramat eru
súrsaðir bringukollar feit-
astir, 38% þeirra eru fita
samkvæmt upplýsingum
frá fæðudeild Rann-
sóknastofnunar landbún-
aðarins, magáll er einnig
mjög feitur, 37%, þá
koma súrsaðir lunda-
baggar og hákarl, 30%,
síðan soðinn blóðmör,
23%, soðin svið, 22%, og
soðin lifrarpylsa, 17%.
Sviðasulta er helmingi
fituminni en soðin svið.
Rétt er að hafa í huga að
lifrarpylsa og blóðmör eru
járnríkar fæðutegundir.
Þeir sem þurfa að tak-
marka fituneyslu sína á
næsta þorrablóti geta val-
ið sér harðfisk, sem er
aðeins 5% feitur, súrsaða
hrútspunga, 3%, og rófu-
stöppu sem er nær fitu-
laus.
Krabbameins-
félagið fær
stóran arf
Anna Sveinsdóttir, sem
lést í nóvember 1994,
rúmlega 93 ára að aldri,
arfleiddi Krabbameinsfé-
lag íslands að öllum eig-
um sínum, samtals 4,2
milljónum króna. Þetta
kemur til viðbótar 3,5
milljónum króna sem
Anna afhenti Krabba-
meinsfélaginu á aðal-
fundi félagsins fyrir tæp-
um fimm árum. Samtals
hefur Anna því lagt nær
átta milljónir króna til
baráttunnar gegn krabba-
meini og kemur það
sannarlega að góðum
notum við margvísleg
viðfangsefni. í frétt frá
Krabbameinsfélagi ís-
lands segir að stjórn fé-
lagsins vilji þakka þann
mikla stuðning sem
Anna hefur sýnt málefn-
um félagsins og votta
minningu hennar virð-
ingu.
Anna Ragnheiður
Sveinsdóttir fæddist á
Kolsstöðum í Miðdölum
í Dalasýslu í janúar 1901.
Hún var áttunda í röð
ellefu systkina en meðal
þeirra var Ásmundur
Sveinsson myndhöggv-
ari. Rúmlega tvítug fór
hún til Stokkhólms og
síðan til Kaupmanna-
hafnar þar sem hún
kynnti sér framleiðslu á
sælgæti. Hún var síðan
lengi verkstjóri í sælgæt-
isgerðinni Víkingi og
hlaut árið 1973 viður-
kenningu frá Félagi ís-
lenskra iðnrekenda fyrir
meira en fjörutíu ára
starf í þágu íslensks iðn-
aðar. Síðustu árin dvald-
ist Anna Sveinsdóttir á
Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund í Reykjavík.
6 HEILBRIGÐISMÁL 1/1995