Heilbrigðismál - 01.03.1995, Síða 8
Erlent
Hver sentimetri
getur skipt máli
Hávöxnu fólki er síður
hætt við hjartasjúkdóm-
um en þeim sem eru
lægri í loftinu. Þetta kom
í ljós þegar fylgst var
með heilsufari rúmlega
tuttugu þúsund banda-
rískra lækna (karlmanna)
í fimm ár. Hætta á að
deyja úr hjartaáfalli var
þriðjungi minni í hæsta
hluta hópsins (185 senti-
metrar eða hærri) en í
lægsta hlutanum (170
sentimetrar og lægri).
Hver sentimetri í aukinni
hæð virtist draga úr
hættunni um 1%.
American Health,
nóvember 1994.
Eyrnabólga
vegna ofnæmis
Foreldrar bama sem fá
oft eyrnabólgu ættu að
láta kanna hvort börnin
eru með ofnæmi. Læknar
í Georgetown i Banda-
ríkjunum telja að í mörg-
um tilvikum megi skýra
þráláta eyrnabólgu með
ofnæmi fyrir ákveðnum
fæðutegundum svo sem
mjólk, hveiti, eggjum og
hnetum.
Health, jamiar-febrúar 1995.
Komin tími
til að hætta
Tíðni krabbameins í
brisi hefur verið að auk-
ast, það er mjög erfitt
viðureignar og lítið hefur
verið vitað um orsakir
þess. Nú hefur viðamikil
rannsókn leitt í ljós að
fjórðungur tilfella í
Bandaríkjunum stafar af
reykingum. Þeir sem
reykja eru í tvöfaldri
hættu á að fá þetta
krabbamein, samanborið
við þá sem ekki reykja.
Norsk rannsókn bendir
til að konur sem reykja
verði frekar en karlar fyr-
ir barðinu á lungna-
krabbameini af völdum
reykinga. Hugsanlega
hafa krabbameinsvald-
andi efni í tóbaksreyk
fremur áhrif á erfðaefni
kvenna en karla.
Þá hefur rannsókn sem
gerð var í Melbourne í
Astralíu sýnt að rekja má
um fjórðung veikinda-
fjarvista frá vinnu til
áfengis- og tóbaksneyslu.
Quit, nóvember 1994.
Hreyfing
bætir heyrnina
Hávaði nútímans hefur
skaðleg áhrif á heyrnina.
En nú er komið í ljós að
þeir sem reyna á sig
reglulega, t.d. í þolfimi,
verða ekki fyrir eins mik-
illi heyrnarskerðingu og
aðrir - og geta jafnvel
bætt heyrnina. Þetta er
að sjálfsögðu háð því að
tónlistin á líkamsræktar-
stöðvunum sé ekki of
hátt stillt!
Prevention, febrúar 1995.
Áður þótti fínt að verða
dökkbrúnn á hörund
eins og sýnt er á teikn-
ingunni til vinstri, sem
er úr þekktri auglýsingu
fyrir sólarolíu. En nú
eru afleiðingar sóldýrk-
unarinnar að koma í
ljós: Búist er við að
þriðji hver Bandaríkja-
maður greinist með húð-
krabbamein fyrir 75 ára
aldur! Það er því ekki
nema von að auglýsing-
unni hafi verið breytt,
eins og vakin var at-
hygli á í tímaritinu
Health nú í ársbyrjun.
Litla stúlkan er komin
með derhúfu og sólgler-
augu og er í bol til að
verja húðina. Ekki er
annað að sjá en liturinn
á húðinni sé orðinn
mun ljósari en áður,
enda er það í sam-
ræmi við hina nýju
tísku.
Einföld fóstur-
rannsókn
Vísindamenn við
læknaskóla í London
telja sig geta sagt fyrir
um kyn fósturs með
blóðrannsókn eftir fimm
vikna meðgöngu. Hingað
til hefur legvatnsástunga
verið gerð í fjórtándu
viku til að Ieita að erfða-
göllum og hefur þá einn-
ig verið hægt að sjá kyn
fóstursins. Vonast er til
að þessi nýja og einfalda
rannsóknaraðferð geti
með tímanum auk þess
gefið vísbendingu um
erfðasjúkdóma og komið
í stað legvatnsástungna,
sem eru ekki alveg
hættulausar.
Illustreret Vidensknb,
janúar 1995.
Gráu hárin hafa
sitt að segja
Niðurstöður rannsókn-
ar sem gerð var í Boston
í Bandaríkjunum gefa til
kynna að fólki sem orðið
er nokkuð mikið gráhært
fyrir fertugt sé fjórfalt
hættara en öðrum við
beinþynningu á efri ár-
um.
Hægt er að vinna gegn
þessum áhrifum á styrk
beina með því að huga
vel að kalkneyslu og
hreyfa sig nóg.
Health, janúar-febrúar 1995.
8 HEILBRIGÐISMÁL 1/1995