Heilbrigðismál - 01.03.1995, Page 18
Ólafur Þórðarson (Vikublaðið)
Annáll íslenskra heilbrigðismála árið 1994:
Löng verkföll heilbrigðisstétta og
breytingar samþykktar á lyfsölu
Janúar
• Deilt var um skipun formanns stjórnarnefndar Ríkis-
spítala og formanns stjórnar Hollustuverndar ríkisins.
• Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga var stofnað 15.
janúar með sameiningu Hjúkrunarfélags Islands og Fé-
lags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga.
• Kvenfélagið Hringurinn minntist 90 ára afmælis og
vakin var athygli á þörf fyrir nýjan barnaspítala.
Febrúar
• Deild fyrir fólk með Alzheimer sjúkdóm og aðra
heilasjúkdóma var opnuð í hjúkrunarheimilinu Eir.
• Lagt var fram frumvarp á Alþingi um að áfengi
verði merkt með viðvörunum um skaðsemi þess.
• Verslunarráð kynnti tillögur um stórfelldan sparnað í
heilbrigðisþjónustu. Meðal annars var bent á að spara
mætti hálfan milljarð króna á ári með því að láta sjúkl-
inga greiða fyrir fæði á sjúkrahúsum.
Mars
• Afhjúpaður var minningarskjöldur á húsinu nr. 12
við Hverfisgötu í Reykjavík en þar var röntgenstofa
Gunnlaugs Claessen, sú fyrsta á landinu.
• Sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar deildu um verka-
skiptingu, vegna ákvæða í frumvarpi til laga um störf
sjúkraliða.
• Ríkisspítalar sömdu við Reykjavíkurborg um að fá
húsnæði Fæðingarheimilis Reykjavíkur til afnota til að
reka þar svipaða starfsemi og áður var.
• Landlæknir sendi alþingismönnum o. fl. spurninga-
lista um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Sumir
tóku það illa upp.
• Birt var spá um tíðni krabbameina á Norðurlöndum
næstu áratugi. Samkvæmt henni fjölgar nýjum tílfell-
um af krabbameini verulega að óbreyttum aðstæðum.
• Könnun á kynhegðun ísiendinga sýndi nokkrar
breytingar í kjölfar fræðslu um smitleiðir alnæmis.
• Heilbrigðisráðuneyti og Tryggingastofnun hófu átak
til að kynna merkingar á lyfseðlum en með vali á svo-
nefndum samheitalyfjum í stað sérlyfja var vænst mik-
ils sparnaðar.
Apríl
• Meinatæknar fóru í verkfall 5. apríl. Það stóð í sjö
vikur, náði til 230 meinatækna og hafði víðtæk áhrif á
heilbrigðisþjónustuna. Samið var um 6% hækkun
launa.
• Kynnt var ákvörðun heilbrigðisráðherra um verka-
skiptingu sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu. Einn-
ig var ákveðið að nýr barnaspítali verði byggður á lóð
Landspítalans og tekinn í notkun 1997.
• Heilbrigðisráðuneytið og Landlæknisembættið leit-
uðu til fjögurra bæjarfélaga um samræmingu forvarn-
arstarfs og sérstakar aðgerðir til heilsueflingar. Þetta
„Meinatæknar eni svo vanir að vera blankir að þá
munar ekkert um að vera skítblankir."
Martha Á. Hjálmarsdóttir formaður verkfallsstjórnar
Meinatæknafélags íslands í viðtali við DV 2. maí, þegar
verkfall félagsins hafði staðið í fjórar vikur.
„Við stöndum ekki frammi Jyrir neinni alvarlegri
farsótt eða drepsótt afvöldum þessarar bakteríu."
Haraldur Briem yfirlæknir í viðtali við DV 27. maí
vegna umræðna um streptókokkabakteríu.
„Þetta er lífsreynsla sem ég held ég búi að alla ævi.
Ég hefði ekki viljað missa afþessu."
Sigurður A. Kristinsson læknir í viðtali við Morgun-
blaðið 16. október þegar varðskipið Óðinn kom úr
Smugunni.
18 HEILBRIGÐISMÁL 1/1995