Heilbrigðismál - 01.03.1995, Page 20
Jónas Ragnarsson
Heimskulegar tfflogur Biðligtar lengjast SJÚKRAHff<s
heilbiigöisrabtora . *** SAMElNUT)
SlvQÍn í Ekki er hægt að safna v
W-12m!íjjan5°áári réttilldumtílnámsferða \]tlitíyrir
Áformumum Heilbrigðiskerfið Vætaraskort
niðurskurð mótmælt í vanda árið 2v) 1»
almennum markaði í nóvember og voru margir um
boðið.
• Landsmönnum var boðin ókeypis rannsókn á
lungnastarfsemi í tilefni af tuttugu ára afmæli Samtaka
gegn astma og ofnæmi.
• Alþjóða heilbrigðismálastofnunin baðst afsökunar á
því að ísland og önnur fámenn ríki voru ekki talin upp
í frétt um langlífustu þjóðir heims.
ÁgÚSt
• Tannlæknafélag íslands mælti sérstaklega með einni
tegund tannkrems, gegn þóknun í vísindasjóð félags-
ins.
• Bændasamtökin og Náttúrulækningafélagið efndu til
fundar um áhrif mataræðis á heilsuna. Bandarískir vís-
indamenn voru frummælendur.
• Húsfyllir var á samkomu bandaríska sjónvarps-
prédikarans Benny Hinn í Kaplakrika. Sumir sam-
komugesta töldu sig hafa læknast.
September
• Óttast var að faraldur heilahimnubólgu af völdum
meningókokka væri yfirvofandi en þrettán ný tilfelli
höfðu verið greind á tveim mánuðum.
• Krossgötur efndu til átaks undir slagorðunum: „Lát-
um ekki í minni pokann fyrir vímuefnum."
-t ■' ■ Miia — g> jj!
■ Wi I
í ■ i I i Hi! ÍÍÍÍI | .
fc 1 I iili ‘ • íiiii I
• Deilt var um greiðslur til starfsmanna Trygginga-
stofnunar og heilbrigðisráðuneytis fyrir ónotað náms-
leyfi o.fl.
• Þess var minnst að 50 ár voru síðan hornsteinn var
lagður að sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs, sem nú
er nefnt Sjúkrahús Suðurnesja.
• Félag heilablóðfallsskaðaðra var stofnað.
Október
• Nýtt hús fyrir heilsugæslustöðina í Grundarfirði var
tekið í notkun. Það var byggt á innan við tveim árum.
• Birtar voru niðurstöður könnunar sem gerð var í
apríl 1994 á reykingum grunnskólanema. Þær höfðu
aukist frá könnun fjórum árum áður.
• Sjúklingum var gert skylt að greiða fyrir flest læknis-
vottorð vegna umsókna til Tryggingastofnunar.
• Varðskipið Óðinn kom úr Smugunni eftir átta vikna
ferð. Sigurður Ásgeir Kristinsson læknir veitti 63 sjó-
mönnum aðstoð á þessum fjarlægu miðum.
Nóvember
• Verkfall sjúkraliða hófst 10. nóvember. Það stóð til 30.
desember.
• Læknafélag Akureyrar minntist 60 ára afmælis með
sýningu og hátíðardagskrá.
• Ríkisstjórnin og borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykktu að sameina Borgarspítala og Landakotsspítala
undir nafninu Sjúkrahús Reykjavíkur. Sameiningin tek-
ur gildi í árslok 1995.
Desember
• Upplýsingamiðstöð um eitranir var opnuð í Borgar-
spítalanum í Reykjavík.
• Deild fyrir blinda og sjónskerta var opnuð í hjúkrun-
arheimilinu Eir í Grafarvogi.
• Reynir Arngrímsson læknir hlaut hvatningarverð-
laun Rannsóknaráðs fyrir rannsóknir á meðgöngueitr-
un.
• í ársskýrslu Ríkisspítala kom fram að veikindafjar-
vistir starfsfólks höfðu aukist um 50% á fjórum árum.
Árið 1993 voru launaðar fjarvistir alls um fimmtungur
af 2620 stöðugildum.
• Rætt var um lokun tannlæknadeildar Háskóla ís-
lands vegna mikils kostnaðar við menntun fárra nem-
enda.
• Hugmyndir um að leggja niður embætti borgarlækn-
is í Reykjavík voru dregnar til baka við afgreiðslu fjár-
laga. -jr.
20 HEILBRIGÐISMÁL 1/1995