Samtíðin - 01.12.1934, Síða 5

Samtíðin - 01.12.1934, Síða 5
SAUTÍÐXN því, að eitthvað kæmi' inn fyrir bækurnar — að bækurnar seld- úst. Ef það er ekki, verður út- .i * gáfudeildin ekkert annað en ó- magi á hinu opinbera, sem að vísu safnar óseldum bókum í hlöður, en nær ekki þeim aðaltil- gangi að láta lesa bækumar. Kemur þar tvent til greina, fyrst 1 að velja þær svo, að þær annars- vegar fullnægi kröfunum um innra gildi óg nytsemi, og hins- vegar að þær séu eitthvað það, sem almenningur vill lesa og síð- an að verðleggja þær svo, að al- menningi sé kleift að kaupa þær. Hið síðara hefir vel tekist, en það skal játað, að hið fyrra var í sjálfu sér ekki neitt létt verk, því að smekkur almennings er að ýmsu leyti miður góður. En með því að láta kjósa sig til forstöðu þessa fyrirtækis, hafa þeir, sem það gerðu, tekist á herðar að rata þennan meðalveg, og þeir bera því siðferðilega ábyrgð á vali rit- anna, og jafnframt lagalega á- byrgð á því samkv. 5. gr., sem auðvitað er einskis virði. Það hlýtur forstöðumönnunum að vera ljóst, eins og öllum öðrum, að það er ekki útgáfustarfsemi. að eiga óseld upplög, því útgáfa er það að koma bókum á fram- * færi við almenning. Það er hér ekki verið að liggja þeim mönn- 'im á hálsi, sem þessu veittu for- stöðu, þeir hafa vafalaust gert hað, sem þeir vissu réttast og best, en mistekist hefir, — það er jafnvíst og rétt. Hingað til hefir menningar- sjóður gefið út 16 rit. Af þessum ritum eru 12, sem rétt virðist hafa verið að gefa út í sjálfu sér. Eru það ritin: „Vestan um haf“, „Á íslandsmiðum" eftir Pierre Loti, „Þýdd ljóð“ eftir Magnús Ásgeirsson, 2 hefti, „Þú vinviður hreini“ og „Fuglinn í fjörunni" eftir Halldór Kiljan Laxness, „Úrvalsgreinar“ er Guðmundur Finnbogason þýddi, „Aldahvörf í dýraríkinu“ eftir Árna Friðriks- son, „Land og lýður“ eftir Jón Sigurðsson, „Hákarlalegmr og há- karlamenn“ eftir Theódór Frið- riksson, ,,íslendingar“ eftir Guð- und Finnbogason, „Lagasafnið" og „Bréf Jóns Sigurðssonar". Nú kunna menn að segja, að þetta sé í raun réttri glæsileg útkoma, að ekki hafi verið gefin út nema 4 rit, sem talið verði, að ekki hefðu átt að birtast. En vel að gáð er útkoman ekki svona glæsileg. Af þessum ritum eru tvö, sem aðrir en menningarsjóður hefðu tví- mælalaust átt að gefa út. Er þar fyrst að nefna „Lagasafnið", sém er ágætt rit á sína vísu, en sem hvorki verður talið „alþýðlegt fræðirit" né heldur „úrvals skáld- rit“. Þegar af þeirri ástæðu átti menningarsjóður ekki að gefa þetta rit út, en jafnframt héldur ekki vegna þess, að þessi útgáfa var ótvírætt einhliða í þágu rík- 3

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.