Samtíðin - 01.12.1934, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN
ÞRÁTT FYRIR KREPPUNA
EFTIR SIGRID BOO
Framh.
Seinna skildi ég að þér fóruð
manna vilt. Hefðuð þér bara ekki
sagt, að þér ættuð að vera þess-
um Bimi hjálplegar! Þá varð
freistingin ómótstæðileg.
— Þér kunnið vel að haga orð-
um yðar, sagði ég, fastákveðin í,
að láta ekki af vandlætingasvipn-
um. — Þér eruð efalaust duglegur
málafærslumaður.
— Ja, ef þér bara gætuð komið
öðrum í skilning um það! hróp-
aði hann upp og varð svo mikið
um, að hann varð að rísa á fætur
og fá sér göngu. — En komi þeir
ekki bráðlega auga á það, þá —.
Jæja, svo maður víki aftur að
Birni, þá varð ég þess fljótlega
var, að ég hafði hætt mér út á
hálan ís. Af vissum ástæðum fer
mér ekki vel að leika auðkýfing.
í hreinskilni sagt — þér hafið víst
komist á þá skoðun, að Bjöm
væri mesti nirfill?
— 0, það er engin synd að vera
^ægjusamur, sagði ég með hægð.
Hann leit undrandi á mig. —
Þetta hljómar einkennilega í
niunni ungrar stúlku. Þekkja þær
virkilega orðið nægjusemi, tilheyr-
*r það orðaforða þeirra?
Ég sagði að hann hefði kynleg-
AXCL 0UDMUNDB80N ISLEN8KAÐI
ar hugmyndir um ungu stúlkurn-
ar. Hann brosti. — Ég er hrædd-
ur um, að þér séuð ekki enn búin
að fyrirgefa mér. En satt að segja
fór ég að finna til samviskubits
strax um kvöldið. Samt frestaði
ég játningunni til næsta dags og
þér vitið hvernig þá fór. Og nú
eruð þér eftir alt saman komin
til mín. En vel heppnaðist grikk-
urinn. Skemtum við okkur kann-
ske ekki vel?
Nú, þegar hann þóttist auðsjá-
anlega sloppinn úr klípunni, gat
ég ekki neitað mér um, að kvelja
hann ofur lítið, og svaraði því
þurlega: — Það er gott, að þér
skemtuð yður.
Hann varð alvarlegur, sneri sér
undan og gekk út að glugganum.
— Satt að segja getur staðið svo
á, að maður grípi fegins hendi við
öllu, sem stytt getur manni stund-
ir, sagði hann án þess að snúa sér
við. Þér vitið, að á þessum vand-
ræða ....
Ég tók fram í fyrir honum áð-
ur en hann komst lengra, og minti
hann á krossinn í almanakinu.
Hann hló vandræðalega.
— Björn hefir ekkert af kreppu-
tímum að segja, en hjá Randers
er ástandið öðruvísi. Það væri ann-