Samtíðin - 01.10.1940, Blaðsíða 13

Samtíðin - 01.10.1940, Blaðsíða 13
SAMTÍÐIN 9 Þjóðverjar 17.000 smálestir af gúmmíi í Englandi fyrir meira en 5 milj. dollara, og tveim dögum áð- ar en núverandi styrjöld slcall á, tókst Þjóðverjnm að kaupa frá Eng- landf 9000 smálestir af kopgr! Þessar staðreyndir eru birtar hér eftir mjög áreiðanlegum amerískum heimildum. Og liið ameríska tímarit, sem þær eru teknar úr, segir að lok- um: Það er vissara að hafa gát á fleirum en stríðsæsingamönnunum, ef friður á nokkurn tíma að geta haldist hér í heimi. Hrelðar E. Geirdal: H A U S T Margur þykist vita um auð í annars garði, og íslendinga dreymir titt um höpp i Suðurlöndum. En altaf verður reynslan hinn rétti mælikvarði og ráðlegast er okkur því að gæta, hvar við stöndum. Þó að liafís komi og fylli vík og voga, og vöruskipin tefjist ögn lijá klakagirtum ströndum, jörðin taki kippi og Ivatla fari að loga; þá kostar þetta minni fórn en stríðið út’ i löndum. Nú er haustið komið. í fjöllin fer að snjóa, og frost og myrkur virðist okkur taka saman liöndum. En seinna kemur vorið með gull og græna skóga, og Guð og Lukkan flytja aldrei burt af Norðurlöndum. Fyrir vétti LÖGFRÆÐINGUR einn þótti stundum nokkuð gleyminn. Eitt sinn var hann skipaður verjandi sakhornings. Fyrir réttinum mælti lögfræðingurinn: — Þessi sakborn- ingur líefur alt útlit fyrir að vera samviqfkul'aus þcxrpari. I sama hili laut einhver að lög- fræðingnum og hvislaði: — En þér eruð verjandi mannsins! Lögfræðingurinn lét sér hvergi hilt við verða og hélt áfram: — En hvaða afbragðsmenn eru það, sem ekki hafa orðið fyrir aðkasti og sleggjudómum í lifanda lífi? VINNUMAÐUR á prestssetri kom til prestsins og kvaðst hafa séð draug undir kirkjuveggnum kvöldið áður. — Hvernig var hann í laginu? spurði prestur. — Hann var eins og stór asni, svar- aði vinnumaður. — Nú þetta hefur hara verið skugginn vðar, Jón minn, ansaði prestur. MAÐUR nokkur var ákærður fyr- ir tilraun til morðs. Vopnin, sem hann hafði notað, voru: Skannn- hvssa, skegglmífur, sópskaft og skör- ungur. Vopnin, sem andstæðingur hans hafði gripið til, voru: Sláttu- ljár, sleggja, riffill og heljarmikill járnkarl. Gjörðardómur í málinu hljóðaði á þessa leið: Vér gjörðar- dómsmenn hefðum viljað gefa 100 krónur lil þess að sjá mennina eig- ast við með þessum verkfærum.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.