Fréttablaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 14.01.2010, Blaðsíða 40
BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggva- dóttur Ímynd Íslands út á við er ekki svo glæst þessa dagana. Heimspressan keppist við að flytja fréttir af því hversu mikið endem- is óreiðufólk við séum í fjármálum og nú ætlum við ekki einu sinni að borga til baka peninga sem okkur voru lánaðir! Íslend- ingar eru útmálaðir sem hrappar sem ekki sé á treystandi. Það er ekki gott. Þessari umræðu þarf að snúa við og sveipa Ísland aftur þeirri ímynd að hér búi þjóð sem heimsbyggðin geti ekki verið án, stórhuga víkingar, stórlaxar og athafnafólk sem lætur sér ekkert fyrir brjósti brenna. Vorum við ekki einu sinni best í heimi!? Bla bla … ÞETTA er auðvitað hugsunarháttur- inn sem kom okkur í þessar ógöngur til að byrja með. Mikilmennskubrjál- æði, stælar og vitleysa. Spéfuglinn Ari Eldjárn hitti naglann á höf- uðið þegar hann lýsti þjóð- inni í uppistandi um dag- inn, eins og óþolandi og ofvirkum litlum bróður í samfélagi þjóðanna, sem heldur að hann komist upp með allt. Ætli okkur væri ekki nær að lækka í okkur rostann og byrja uppbygg- ingu ímyndarinnar á raun- hæfum nótum. Byrja smátt og skipta stórlöxunum út fyrir smásíli. Fyrir stuttu rakst ég einmitt á skemmtilega fyrirsögn hér í Fréttablaðinu sem lofaði góðu og gæti markað upphafið í endurreisn ímyndar landsins: Íslensk horn- síli bæta skilning á þróun lífs, hvorki meira né minna. Það skyldi þó aldrei vera að það yrðu hornsílin sem kæmu okkur aftur á kortið. AUÐVITAÐ hafa íslenskir vísindamenn alltaf verið að gera merkar uppgötvanir, hvort sem það er á þróun hornsíla gegnum aldirnar eða einhverju öðru, það fór bara ekki eins mikið fyrir þeim og „vísinda- mönnunum“ í fjármálageiranum sem óðu uppi. Hér hefur alltaf verið fullt af færu fólki sem barst ekki alveg eins mikið á en vann sína vinnu. Nú blómstrar það en í gær las ég aðra frétt hér í blaðinu sem sagði frá hópi hönnuða sem vildi byggja upp orðspor íslenska tískuiðnaðarins en það þótti taka dýfu fyrir nokkru þegar illa var haldið á spöðunum. Íslenskir hönnuðir búa ekki að aldarlangri hefð í faginu eins og margar aðrar þjóðir en það hefur ekki haldið aftur af þeim. Það er frekar að þeir hafi nýtt sér þá sérstöðu í sköpun sinni þannig að íslensk hönnun er eftirtektarverð. SVONA byrjar þetta í rólegheitunum og smám saman byggist ímyndin upp aftur á réttum forsendum. Enginn gusugangur í stórlöxum, hornsílin vita hvað þau syngja. Stórlaxar og smásíli 28 14. janúar 2010 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Já, halló, mig vantar smá tækni- aðstoð! Heyrðu! Fá kaffi og blaðið! Láttu það gerast! Strax! Strax! Bara að grínast! Ekki meiða mig! Tel upp að þrem- ur... Sykur og mjólk? Náði því! Ég er að reyna ná Bob Dylan-útlit- inu! Guð sé lof, ég hélt að þú værir með harðlífi! Frissi Frískí, Svali, Gleðisafi, Hamingjudjús, Sólarbragð, Regnbogadrykk- urinn… Er ekki til eitthvað að drekka sem er ekki svona fjári hamingjusamt? Já, góðan daginn, sömuleiðis!10. HVERVINNUR! VILTUVINNAEINTAK? Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. FULLT AF AUKAVIN NINGUM TÖLVULE IKIR · DVD MYNDIR · PEPSI M AX OG MARG T FLEIRA! SENDU SM S SKEYTIÐ EST AT4 Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆ TIR UNNIÐ EIN TAK! 90 af 100 - PlayStation Official Magazine 85 af 100 - PSM3 Magazine 85 af 100 - IGN.com WWW.sena.is/army/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.