Fréttablaðið - 23.01.2010, Síða 4
4 23. janúar 2010 LAUGARDAGUR
HAÍTÍ, AP Stjórnvöld á Haítí ætla að hjálpa um 400 þús-
und manns að flytja úr höfuðborginni Port-au-Prince
í nýjar tjaldborgir utan við borgina. Tilgangurinn er
sá að koma í veg fyrir að smitsjúkdómar breiðist út
meðal borgarbúa, sem hafa þurft að hola sér niður
hvar sem þeir geta eftir að harður jarðskjálfti lagði
borgina nánast í rúst snemma í síðustu viku.
Tjaldborgirnar verða mun öruggari vistarverur
með hreinlætisaðstöðu sem á að tryggja að heilsu
fólks sé ekki stefnt í voða.
Nú þegar hafa að minnsta kosti 200 þúsund manns
flúið borgina á troðfullum langferðabílum og ferjum,
og margir bara fótgangandi. Flestir reyna að komast
til ættingja sinna í sveitahéruðum landsins.
Rétt utan við borgina hafa risið meira en 500
hverfi bráðabirgðaskýla sem fólk hefur tjaslað
saman úr pappa, spýtum, teppum og hverju öðru sem
til fellur. Þar búa nú hátt í 500 þúsund manns.
Björgunarfólk telur litlar líkur á að fleiri finnist á
lífi í rústunum. Jarðskjálftinn, sem mældist 7,0 stig,
varð líklega um 200 þúsund manns að bana. Um 250
þúsund manns hlutu misalvarleg meiðsli og um tvær
milljónir misstu húsaskjól. - gb
Hundruð þúsunda Haíta hafa flúið höfuðborgina:
Fólk verður flutt í tjaldbúðir
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
8°
-7°
-3°
3°
2°
6°
-3°
-3°
21°
7°
14°
6°
24°
-3°
6°
12°
-3°
Á MORGUN
5-13 m/s
Hvassast S- og SA-til.
MÁNUDAGUR
8-16 m/s,
hægast NV-til
8
7
5
6
3
4
4
7
5
9
3
15
16
12
11
7
6
7
10
8
17
15
7
4
6
6 7
3 6
6
6
2
ROK OG RIGNING
Í dag verður vætu-
samt á landinu
en þó úrkomulítið
norðaustanlands.
Á morgun má
búast við skúrum
og hægari vindi
en á mánudaginn
hvessir á ný og
bætir hressilega í
úrkomuna. Áfram
verður nokkuð hlýtt
í veðri miðað við
árstíma.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
VIÐSKIPTI Ekki er hægt að segja nú
um stundir hvort lífeyrissjóðirnir
tapi fjármunum á falli Kaupþings.
Þetta er mat Arnars Sigurmunds-
sonar, formanns Landssambands
lífeyrissjóða. Hann segir lífeyr-
issjóðina hafa lagt fram ýtr-
ustu kröfur í þrotabú Kaupþings
og muni sumum þeirra verða
skuldajafnað til móts við gjald-
eyrisskiptasamninga lífeyrissjóð-
anna við bankann en samningarn-
ir reiknast sem skuld þeirra við
hann.
Heildarfjárhæð krafna í þrota-
bú Kaupþings nemur 7.316 millj-
örðum króna, að því er fram
kemur í kröfuskrá þrotabúsins,
sem birt var kröfuhöfum í gær.
Þar af nema kröfur lífeyrissjóð-
anna rétt tæpum áttatíu milljörð-
um króna, sem jafngildir tæpu
prósenti af heildarkröfum. Til
samanburðar námu kröfur í bú
Glitnis 3.436 milljörðum króna
og í bú Landsbankans 6.500 millj-
örðum.
Alls var 28.167 kröfum lýst í
bú Kaupþings frá 119 löndum,
þar af er um helmingurinn frá
innstæðueigendum í Þýskalandi.
Þýski bankinn Deutsche Bank er
stærsti einstaki erlendi kröfuhaf-
inn í þrotabú Kaupþings. Bankinn
átti jafnframt stærstu kröfuna í
bú Landsbankans.
Sumum kröfum var tví- og þrí-
lýst auk þess sem einhverjar höfðu
þegar verið greiddar og því við-
búið að heildarraunkrafan muni
lækka um að minnsta kosti fjöru-
tíu prósent, niður í 4.416 milljarða
króna. jonab@frettabladid.is
Krefjast sautján þúsund
milljarða úr bönkunum
Innlend og erlend fjármálafyrirtæki gera kröfu upp á rúma 7.300 milljarða úr þrotabúi Kaupþings. Vogun-
arsjóðir sem keyptu skuldabréf bankanna á útsölu eftir fall þeirra gera kröfur upp á hundruð milljarða.
■ Deutsche Bank gerir kröfu upp
á níu hundruð milljarða króna.
Tryggingarsjóður innstæðueigenda
gerir kröfu upp á 840 milljarða og
Seðlabankinn upp á 330 milljarða.
■ Aðrir stórir kröfuhafar eru Exista og
Kjalar Investment, félag í eigu Ólafs
Ólafssonar, sem kenndur er við Sam-
skip. Bæði félögin, sem voru stórir
hluthafar Kaupþings, gerðu gjald-
miðlaskiptasamninga við bankann
upp á hundruð milljarða króna og
hafa deilt um uppgjör samninganna.
Samanlögð krafa þeirra er fjögur
hundruð milljarðar króna.
■ Talsverður fjöldi fjárfesta- og vog-
unarsjóða gerir kröfu á Kaupþing. Þar
á meðal gerir bandaríski fjárfestingar-
sjóðurinn Silver Point Capital og sjóð-
ir honum tengdir kröfu upp á níutíu
milljarða króna. Burlington Loan
Management Capital, sem skráð er á
Írlandi, gerir kröfu upp á 74 milljarða
og Centerbridge Capital Partners gerir
kröfu upp á fimmtíu milljarða. Aðrir
sjóðir eru bandarísku vogunarsjóðirn-
ir York Capital Management og Eton
Park Capital Management. Sjóðirnir
keyptu allir skuldabréf gömlu bank-
anna á eftirmarkaði eftir fall þeirra
með ríflegum afslætti og hafa hagn-
ast verulega á viðskiptunum. Sjóðirnir
gera jafnframt kröfu í bú Glitnis og
Landsbankans.
■ Bræðurnir Robert og Vincent
Tchenguiz eiga hæstu kröfu einstakl-
inga. Kröfurnar hljóða samtals upp
á 440 milljarða króna, að mestu
skaðabætur í tengslum við þvingaða
sölu Roberts á hlut hans í bresku
versluninni Somerfield. Robert var
umsvifamikill viðskiptavinur Kaup-
þings í Bretlandi og fékk um þrjú
hundruð milljarða króna að láni hjá
bankanum. Ólíklegt er að bræðurnir
fái nokkuð í vasann þar sem lítill
lagalegur grundvöllur er fyrir skaða-
bótakröfum.
■ Fyrrverandi starfsmenn Kaupþings
leggja fram 42 kröfur um laun upp á
samtals 1,6 milljarða króna. Sigurður
Einarsson, stjórnarformaður bankans,
á hæstu kröfuna, eða upp á 244
milljónir króna. Krafa Peters Holm,
forstjóra Kaupþings í Færeyjum,
hljóðar upp á 158 milljónir, og krafa
Ingólfs Helgasonar, forstjóra Kaup-
þings á Íslandi, upp á 81,5 milljónir.
Aðrar launakröfur voru lægri. Hreiðar
Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings, leggur ekki
fram launakröfu. Öllum
launakröfum var hafn-
að nema einni.
■ Þrotabú Baugs
krefur Kaupþing um
32,4 milljarða. Krafan
tengist riftun Baugs á
sölu Haga, að sögn
Erlends Gíslasonar,
skiptastjóra Baugs.
Málið fer fyrir dóm
á næstu vikum.
SKAÐABÆTUR OG LAUN EKKI GREIDD
VIÐSKIPTI Ólíkt öðrum stjórnend-
um Kaupþings gerir Ármann H.
Þorvaldsson, fyrrverandi for-
stjóri Kaupthing Singer & Fried-
lander, kröfu í þrotabú Kaup-
þings upp á 122,6 milljónir króna
í formi skuldabréfs.
Ármann keypti bréfið í ágúst
2008, tveimur mánuðum fyrir fall
bankans. „Þá var ég bjartsýnn á
að bankinn væri að komast út úr
erfiðleikunum og ákvað að taka
allt laust fé sem ég átti í Bret-
landi og kaupa skuldabréf á bank-
ann á markaði með tíu prósenta
afslætti,“ segir hann og reiknar
með að bréfið gangi að mestu upp
í eldri skuld hans við bankann.
Skilanefnd hefur ekki tekið
afstöðu til kröfu Ármanns. - jab
Ármann H. Þorvaldsson:
Gerir kröfu upp
á 122 milljónir
KRÖFURNAR FLOKKAÐAR Starfsfólk skilanefndar Kaupþings vann á vöktum við að
flokka rúmlega 28 þúsund kröfur sem bárust í þrotabú bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BJÖRGUN Fjögur íslensk bókafor-
lög hafa ákveðið að gefa rústa-
björgunarsveit Landsbjargar
söluandvirði sjö nýrra bóka til að
kaupa búnað í stað þess sem skil-
inn var eftir á Haítí.
Bækurnar verða seldar í
Eymundsson fram á mánudag.
Söluverðmæti þeirra er um 4,5
milljónir króna. Auk þess mun
Eymundsson bæta tíu prósentum
af sölu íslenskra barnabóka um
helgina í söfnunina.
Félag íslenskra bókaútgef-
enda hyggst standa fyrir fleiri
verkefnum af þessu tagi á næstu
vikum til stuðnings björgunar-
starfinu á Haítí. - bj
Forlög styðja björgunarsveit:
Gefa andvirði
4,5 milljóna
LANGAR BIÐRAÐIR Haítar bíða í biðröð eftir matarpökkum hjá
dreifingarstöð Sameinuðu þjóðanna. NORDICPHOTOS/AFP
Áslaug María Friðriksdóttir, sem býður
sig fram í fjórða sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík sem fram
fer í dag, var ekki í prófkjöri flokksins
fyrir fjórum árum. Þess vegna hafði
hún engum upplýsingum að skila til
Ríkisendurskoðunar.
LEIÐRÉTTING
HAÍTÍ Ættingjar 69 ára gamallar
konu drógu hana lifandi úr húsa-
rústum í Port-au-Prince í gær, tíu
dögum eftir að jarðskjálfti lagði
borgina í rúst.
Læknar segja ólíklegt að konan
lifi af þrátt fyrir björgunina, að
því er fram kemur á vef BBC. Að
mestu hefur verið hætt að leita að
fólki í húsarústum.
Franskar fjölskyldur tóku í gær
á móti 33 börnum sem eru mun-
aðarlaus eftir skjálftann. Börnin
eru á aldrinum eins til sex ára. - bj
Enn fólk á lífi í rústunum:
69 ára kona
fannst á lífi
GENGIÐ 22.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,4578
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,56 127,16
205,64 206,64
179,03 180,03
24,043 24,183
21,880 22,008
17,588 17,692
1,4008 1,4090
197,66 198,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is