Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 28
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Strönd á Bretagne-skaga í Frakklandi
Pennar Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
Ljósmyndir Fréttablaðið, Getty
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson bfj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JANÚAR 2010
Gönguferðir á Tenerife
Gengið um skóga, gil
og tinda á Kanarí.
SÍÐA 8
PRÓFAÐU EITTHVAÐ NÝTT Í SUMAR
Leynistrendur
í Evrópu
Setti upp sýningu í Panama Ástrós
Gunnarsdóttir og ævintýrið í Suður-Ameríku. SÍÐA
2 FERÐALÖG
Í
hinu pínulitla þorpi Castelraimondo í
Marche-héraði á Mið-Ítalíu er starf-
ræktur málaskólinn Edulingua. Þar
er tilvalið að læra ítölsku og komast í
náin kynni við ítalska menningu. Jóhanna
Guðrún Gunnarsdóttir, ítölskukennari og
fararstjóri, hefur farið þangað tvisv-
ar með hópa Íslendinga og endurtaka
á leikinn í sumar. „Þetta er tilvalið
fyrir fólk sem vill verja sumarfrí-
inu á Ítalíu, kynnast landi og þjóð og
ná föstum tökum á tungumálinu,“ segir
Jóhanna. Lýsingar hennar á staðnum eru
síst til þess að draga úr áhuganum. „Þorp-
ið er í litlum fögrum dal, umkringt græn-
um hæðum með vínökrum og hveitiökrum
hvert sem augað eygir.“
Námskeiðin hjá Edulingua eru fyrir
alla, unga sem aldna, allt frá byrjendum
til þeirra sem eru langt komnir í ítölsku-
námi. Verðið fyrir tæplega mánaðarvist
er 898 evrur. Innifalið í því eru áttatíu
kennslustundir, gisting og fimmtán skoð-
unarferðir. Þar skemmir landfræðileg
lega þorpsins ekki fyrir, því stutt er til
allra átta. Ferðirnar eru því til margra
af frægustu borgum Ítalíu, þar á
meðal Rómar, Feneyja og Flórens. Á
rólegum dögum er svo hægur leikur
að skella sér niður á strönd.
Jóhanna Guðrún kennir ítölsku bæði við
Háskóla Íslands og við Menntaskólann í
Hamrahlíð. Hún segir áhuga Íslendinga
á ítölsku hafa aukist til muna á undan-
förnum árum, auk þess sem ítölsk yfir-
völd hafa verið dugleg við að styðja við
ítölskukennslu Íslendinga. Til dæmis hafi
Menntaskólinn við Hamrahlíð fengið tíu
þúsund evra styrk frá ítölskum yfirvöld-
um í desember síðastliðnum.
Jóhanna kynntist málaskólanum Edul-
ingua þegar hún fór sjálf í endurmenntun-
arferð fyrir nokkrum árum og féll kylli-
flöt fyrir þorpinu og skólanum. „Þetta er
góður skóli með frábærum og hámenntuð-
um kennurum. Þangað mætir alls konar
fólk, á öllum aldri og af öllu mögulegu
þjóðerni. Það skemmir heldur ekki fyrir
að það er mun ódýrara að búa í þorpi eins
og Castelraimondo heldur en í stórborg-
unum.“
Námskeiðin sem um ræðir eru tvö, hið
fyrra hefst 31. maí og lýkur 25. júní og hið
seinna stendur frá 5. júlí til 30. júlí. Frek-
ari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu
námskeiðanna, undir Námsfrí á Ítalíu 2010.
- hhs
LÆRÐU ÍTÖLSKU Í SUMAR
Innan um grænar hæðir Marche-héraðs á Mið-Ítalíu leynist smábærinn Castelraimondo. Þang-
að fer hópur Íslendinga í sumar til að læra ítölsku og drekka í sig menningu landsmanna. Jó-
hanna Guðrún Gunnarsdóttir ítölskukennari fer fyrir hópnum og getur varla beðið sumarsins.
Á Ítalíu Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir, ítölskukennari og fararstjóri, fyrir miðju, ásamt nokkrum nemendum í námsfríi á Ítalíu. MYND/JÓHANNA GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
BÓKAÐU
NÚNA
Höfuðborg Tyrklands, Istanbúl, hefur verið valin
menningarborg Evrópu árið 2010. Borgin er senni-
lega líka sú minnst evrópska af öllum borgum
álfunnar en Tyrkland er bæði hluti af Evrópu
og Asíu. Istanbúl er sannarlega exótísk og gífur-
lega fögur. Þar er að finna stórfenglegar mosk-
ur og bænakall bergmálar yfir borgina nokkrum
sinnum á dag. Hin fagurskreytta Topkapi-höll var
aðsetur Ottómanaveldis í þrjú hundruð ár og þar
er unnt að skoða fyrrum kvennabúr soldánsins
og fágætar gersemar og kristskirkjan í Chora er
heimsþekkt fyrir býsanskan arkitektúr. En Istan-
búl snýst ekki einungis um sögufrægar byggingar
heldur er hún orðin gífurlega „hipp og kúl“. Tón-
listar- og tískusenan þar blómstrar og þar er fjöld-
inn allur af flottum veitingahúsum og börum. Það
er mjög skemmtilegt að versla í borginni en þar
finnur maður allt frá tískuverslunum upp í litríka
„bazaar“-markaði þar sem hægt er að festa kaup
á teppum, leðurvörum og Aladdin-lömpum! Svo er
mikil stemning að prufa vatnspípu eða „narghyle“,
eða slaka á í „hammam“-gufubaði. - amb
EXÓTÍSK OG TÖFRANDI
Sögufræg borg Ottómanar réðu ríkjum í Istanbúl í þrjú hundruð ár.
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
F
rænka mín er að klára menntaskólann innan
skamms og var að ræða útskriftarferð við
mig. Hún hafði ákveðið að skella sér bara með
kærastanum í bakpokaferðalag um gríska
eyjaklasann þar sem henni leist ekkert á djammferð
með skólafélögunum. Mikið skildi ég hana vel. Mér
finnst ég alltof oft heyra um útskriftarferðir til exót-
ískra og spennandi staða þar sem ekkert verður eftir
í minningunni nema suddalegt fyllerí og vitleysa. Til
hvers að eyða peningum og ferðalagi í það þegar þú
getur alveg djammað heima hjá þér (ef þú hefur yfir-
leitt áhuga á því). Árið eftir menntaskóla er samt ein-
mitt kjörið til að leggja land undir fót og leggja á vit
ævintýranna. Þetta er tíminn sem er tilvalinn til að
nýta í bakpokaferðalög um fjarlægar slóðir og kynna
sér nýja menningarheima. Flest erum við heldur ekk-
ert alveg viss um hvað okkur langar að leggja fyrir
okkur í lífinu og langferðir þar sem við þurfum að
spreyta okkur sjálf í nýju umhverfi gera okkur alveg
óskaplega gott. Þær hjálpa nefnilega líka til við að
finna úr hverju við erum gerð í raun og veru. Svo er
eflaust líka sniðugt að fara í slíkar langferðir áður en
langt háskólanám og fjölskyldulíf taka við. En auðvit-
að er aldrei of seint að fara í svona ferðir. Mér finnst
líka margir veigra sér við að fara með krakka á fjar-
lægar slóðir af hræðslu við sjúkdóma, slys eða bara
ókunnar aðstæður. En við verðum líka að muna að
börnin smá þrífast í flestum heimsins hornum, fæð-
ast þar og lifa og þó það sé auðvitað nauðsynlegt að
fara varlega þá megum við heldur ekki afskrifa öll
ferðalög með smáfólki. En aftur að
útskriftarferðunum. Þeir sem ekki
hafa áhuga á subbulegri spænskri
strönd og endalausu fylleríi geta
sótt sér innblástur til strand-
anna á síðu 6 en það þarf ekk-
ert endilega að fara langt til
þess að finna fallega exótíska
strönd úr alfaraleið. Nú skora
ég á alla nýstúdenta að vera
dálítið hugrakkir og öðru-
vísi og skoða ævintýralega
möguleika næsta sumar.
Anna Margrét Björnsson skrifar
FYRSTA BRAGÐIÐ
AF FERÐALÖGUM