Fréttablaðið - 23.01.2010, Síða 58
30 23. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Hvernig myndirðu útskýra tónlist Sólstafa
fyrir 90 ára gamalli frú? Hún elskulega
amma mín Ruth er nú á þeim aldri (fyrir-
gefðu, amma). Ég reyni ekki að hafa fyrir
því. Tónlist er bara tónlist.
Hver er hápunktur tónlistarferils þíns til
þessa? Frekar margir minni en einn stór,
en að fara á pósthúsið og fá eintak af nýút-
komnum plötum manns hafa verið sérstök
augnablik, sem og að labba á svið í kabboj-
stígvélunum útataður í hveiti, með fínu Ray
Ban-gleraugun og spila fyrir 15.000 manns
síðasta sumar, upplifa svo Beatlemania eftir
gigg. Gefa áritanir í klukkutíma er nánast
óraunverulegt. 25 gigg á 27 dögum í fyrra
var líka eitthvað sem maður gleymir seint.
Ef þú værir að taka þátt í Wipeout, hvað
myndirðu þá öskra áður en þú legðir af
stað? „There is no point in being alive if you
cant do the deathlift!“
Hvað þyrfti að gerast til að þú tækir þátt í
Söngvakeppni sjónvarpsins? Einhver þyrfti
að lauma LSD í kranavatn landsmanna.
Hvar er fallegast á Íslandi? Get ekki ákveð-
ið, Landmannalaugar, Ísafjörður, Strandir,
Neskaupstaður …
Hvað er það besta við Ísland? Að geta
drukkið almennilegt vatn úr krananum.
Og hvað almenningssamgöngur eru léleg-
ar, fullkomin afsökun til þess að eiga bíl.
En það versta? Stundum er þetta aðeins of
lítið og þröngt samfélag sem við búum í.
Þú færð tímavél upp í hendurnar. Hvert
stillir þú hana? New York rétt eftir alda-
mótin 1900. Langafi minn átti víst vænd-
ishús þar.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Skyr.
Uppáhaldsskemmtistaðurinn þinn? Dillon
(Krúsi, ég heimta almennilegt verð sko!).
Hefurðu lent í lífsháska? Já, hélt það sem
krakki, var að klifra upp Kubbinn sem er
fjall á Ísafirði, rann svo nokkur hundruð
metra á svelli í átt að klettum. Ein sem var
neðar náði að stöðva mig. Veit samt ekki
hvernig ég myndi skilgreina þessa hættu
í dag.
Uppáhaldsbúðin þín? Geisladiskabúð Valda
(Valdi, ég heimta afslátt!).
Hver er síðasta uppáhaldsplatan þín? After
the Goldrush (Neil Young, 1970).
Hvað myndi fullkomna líf þitt? Að geta
lifað á tónlist. Eignast sæta púka með sætri
konu.
Hvernig er hin fullkomna kona? No such
thing.
Besta bókin? Engin sérstök.
Besta bíómyndin? For a few dollars more.
Hvort er skemmtilegra, kreppa eða góð-
æri? Æ, ég veit það ekki. Ég var svona mitt
á milli áður og er þar nánast enn. Kreppan
er gott raunveruleikasjokk, en það sem ég
hef fundið mest fyrir er blessað gengið. Ég
held samt að Hannes Smárason hafi fílað
góðærið betur.
Hvað er næst á dagskrá? Afdrifaríkasta ár
lífs míns er í uppsiglingu, mikið af ferðalög-
um milli tónlistarhátíða úti í heimi, Rosk-
ilde, Wacken og fleiri.
Þetta verður alveg hörkusumar.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN OG HVAÐ ERTU KALL-
AÐUR? Aðalbjörn Tryggvson, kallaður
Addi.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST ÞÁ
HELST Í VERALDARSÖGUNNI? 1977,
Elvis dó, ég fæddist.
LÍF ÞITT Í HNOTSKURN: Ísafjörður ‘77-
’87, Rvk ‘87-’97, Hönefoss ‘97-’98, Rvk
‘98-´’08, Glasgow ‘08-’09, Rvk ‘09 -
Afdrifaríkt ár í uppsiglingu
Aðalbjörn Tryggvason er söngvari þungarokkshljómsveitarinnar Sólstafir, sem fyrst íslenskra hljómsveita hefur fengið boð um
að spila á Hróarskelduhátíðinni í ár. Þar – og á fleiri erlendum hátíðum í sumar – ætla Sólstafir að kynna plötu sína, Köld, sem
kom út í fyrra hjá finnsku útgáfufyrirtæki. Aðalbjörn svarar aðgangshörðum spurningum Þriðju gráðunnar að þessu sinni.
MITT Á MILLI KREPPU OG GÓÐÆRIS Aðalbjörn Tryggvason í hljómsveitinni Sólstafir kann að meta vatnið úr
krananum, en það þyrfti samt að blanda það með LSD áður en hann tæki þátt í Söngvakeppni sjónvarps-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Á uppleið
Klikkað veður. Manni fer að detta
í hug loftslagsbreytingar jarðar og
að allt sé að fara til fjandans þegar
óveður, eldingar og haglél steypast
yfir okkur Íslendinga. Nema að Eng-
lendingar séu að stríða okkur með
hátækni veðurvopnum.
Skyndibrúðkaup. Ef
þér leiðist í skammdeg-
inu og ert ástfangin/nn
upp fyrir haus, hvers
vegna ekki að taka
Las Vegas-stílinn á
þetta og láta loksins
pússa sig saman?
Franskar kvikmyndir.
Uppselt á flestallar sýningar
á franskri kvikmyndahátíð. Greinilegt
að Íslendingar nenna ekki að láta
mata sig einungis á Hollywood-
myndunum.
Núðlur. Tveir snilldar núðlu-
staðir á Skólavörðustíg sem
eru ódýrir og góðir í
kreppunni.
■ Á niðurleið
Þulur. Nú heyra þær sögunni til á
RÚV. Þær voru skemmtilega tilgangs-
laus hefð. Verst er að konur á RÚV eru
almennt á niðurleið.
Heilsutal. Megrúnarkúrar eru
mjög leiðinlegir og það er enn
leiðinlegar að hlusta á fólk
tala um hráfæði, spelt eða
prótíndrykki.
Frambjóðend-
ur. Þetta er
eina skipti á árinu
sem þið eruð að
reyna að vera næs.
Við erum ekkert að
kaupa þetta.
Skræpóttar
hettupeys-
ur. Nakti
apinn er
liðin tíð og
því er hægt
að jarða
þessar
flíkur.
MÆLISTIKAN