Fréttablaðið - 28.01.2010, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
28. janúar 2010 — 23. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ULLIN hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi undanfarið. Nú virðast
fleiri þjóðir vera að vakna til lífsins um gæði þessarar náttúruafurðar.
Karl Bretaprins hefur til að mynda vakið athygli á ullinni. Þá hefur
verið ákveðið að alþjóðleg ullarvika verði haldin vikuna á undan
tískuvikunni í London í september.
Fatasmekkurinn mótað-ist af dansáhuganumSandra Erlingsdóttir kennir bæði hiphop dfatnaði í and hi
Sandra kennir hip hop- og afródans í Kramhúsinu milli þess sem hún hannar og smíðar skartgripi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
eirberg.is • 569 3100 • S
Fæst í apótekum
Rodalon– alhliða hreingeog sótthreinsun
• Fyrir baðherbergi • Eyðir lykt úr íþrótt• Vinnur gegn mygl• Fjarlægir óæskile• Eyðir fúkka úr tjöl
Augnháralitur og augnbrúnaliturTana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!Plokkari með ljósi
VEÐRIÐ Í DAG
verkfÆri
Sérblað • Fimmtudagur 28. janúar 2010
SANDRA ERLINGSDÓTTIR
Hip hop-dansinn
litar fatasmekkinn
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
...er að eiga
alltaf lýsi
VERTU MEÐ Á
BYLGJUNNI OG
FACEBOOK
EM 2010 Íslenska landsliðið í handknattleik mætir
Noregi á EM í dag en leikurinn hefst klukkan 15.00.
Strákunum dugar jafntefli í leiknum til þess að kom-
ast í undanúrslit keppninnar og leika þar með til
verðlauna á öðru stórmótinu í röð.
Íslenska þjóðin mun hvetja strákana til dáða
bæði hér heima sem og í Austurríki þar sem unn-
ustur og eiginkonur margra leikmanna eru mætt-
ar.
Sjómenn frá Grundarfirði munu þó líkast til
hafa hæst allra í Wiener Stadthalle í dag en þeir
hafa farið mikinn á pöllunum í síðustu leikjum.
Þeir kváðu meðal annars hina háværu króatísku
áhorfendur í kútinn með frumsömdum lögum og
textum. Hér heima má nefna að foreldrum nem-
enda í Grandaskóla er boðið að koma að horfa á leik
íslenska liðsins í dag.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari býst
við erfiðum leik enda verður Noregur að vinna
leikinn með fjórum mörkum til þess að eygja von
um að komast í undanúrslit.
Ólafur Stefánsson fyrirliði býst einnig við hörku-
leik og varar við því að menn séu of hrokafullir.
- hbg/sjá síðu 44 og 50
Strákarnir okkar eru aðeins einu skrefi frá því að spila til verðlauna á EM:
Þjóðin verður límd við skjáinn
MÁR GUÐMUNDSSON
Hafði tröllatrú á
skegg-kokkunum
Hárskeri seðlabankastjóra sá um raksturinn
FÓLK 40
Feminískt sjónarhorn
Brynhildur og Þórey
Mjallhvít Heiðar- og
Ómarsdætur endur-
segja ævintýri og
þjóðsögur um
stelpur.
TÍMAMÓT 30
Deilt um ís-
lenska tungu
Páll Magnússon segir
það koma til greina
að breyta reglum
í Söngvakeppni
Sjónvarpsins.
FÓLK 50
HANDVERKFÆRI
Nýjungar, fróðleikur og
gagnlegar ábendingar
Sérblað um handverkfæri
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
ÉL Á STÖKU STAÐ Í dag verður
hæg vestlæg átt, víða 3-8 m/s.
Él eða slydduél á stöku stað en
yfirleitt þurrt og bjartara NA-lands.
Hiti víða um eða undir frostmarki.
VEÐUR 4
1
0
-2
2
4
Úr rokkinu í fótboltann
Ásgeir Börkur Ásgeirsson hættir
í Shogun til að einbeita sér að
Fylki.
FÓLK 50
HEILBRIGÐISMÁL Ný úttekt landlækn-
isembættisins á stöðu öryggismála
vegna mönnunar á Landspítalanum,
sem unnin var að beiðni heilbrigðis-
ráðherra, var að stórum hluta byggð
á upplýsingum úr sjúklingaflokkun-
arkerfi sem hefur ekki verið upp-
fært í langan tíma og var aflagt í
nóvember. Félag íslenskra hjúkrun-
arfræðinga (FÍH) gagnrýnir úttekt-
ina harðlega.
„Við greiningu embættisins er
notað tæki sem hefur ekki verið upp-
fært síðan 2004 og innleiða á nýtt
matskerfi sem mælir raunverulega
hvað er gert,“ segir Elsa B. Frið-
finnsdóttir, formaður FÍH. „Þetta er
því mjög ófullkomið mælitæki sem
þarna er byggt á. Á sama tíma hvet-
ur heilbrigðisráðherra landlæknis-
embættið til að auka eftirlit vegna
niðurskurðar, þegar í raun eru engin
áreiðanleg mælitæki til svo að emb-
ættið geti sinnt lögbundnu eftirlits-
hlutverki sínu.“
Vegna niðurskurðar á Landspít-
ala var upptöku nýs sjúklingaflokk-
unarkerfis frestað. Eins og stað-
an er í dag fer því engin skráning
fram á Landspítala til þess að meta
hjúkrunarþyngd eða þá hjúkrun
sem veitt er.
Sjúklingaflokkunarkerfið sem
liggur til grundvallar niðurstöðu
landlæknisembættisins er frá
árinu 1994. Samningi á milli Land-
spítala og fyrirtækisins sem sá um
uppfærslu kerfisins var sagt upp
árið 2004 og hefur það ekki verið
uppfært síðan. Vegna fyrirhug-
aðs flutnings á sjúklingabókhaldi
á Landspítala í nýtt kerfi var sjúk-
lingaflokkun og þar með mælingu
á hjúkrunarþyngd hætt í nóvember
2009.
Elsa segir að fleira veiki niður-
stöðu landlæknisembættisins. „Það
vita það allir að atvikaskráningin
sem embættið vitnar til í úttektinni
er mjög ófullkomin, en hún hefur
reyndar verið það lengi. Það er því
verið að bera ófullkomna mælingu
við aðra ófullkomna.“ Atvikaskrán-
ing LSH tekur til frávika sem hjúkr-
unarstarfsfólk telur að geti ógnað
öryggi sjúklinganna, segir Elsa.
Laura Sch. Thorsteinsson, verk-
efnisstjóri gæða- og lýðheilsusviðs
landlæknisembættisins, vildi ekki
tjá sig um gagnrýni FÍH þegar eftir
því var leitað. Ástæðan er að emb-
ættið vinnur nú að frekari skoðun á
öryggi á LSH. - shá
Úttekt landlæknis á
öryggi sögð gölluð
Félag hjúkrunarfræðinga gagnrýnir úttekt landlæknisembættisins á stöðu ör-
yggismála á Landspítalanum harðlega. Gagnagrunnurinn sem úttektin byggist
á var síðast uppfærður 2004. Embættið tjáir sig ekki en vinnur í málinu.
BRUGÐIÐ Á LEIK Herbergisfélagarnir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson, sem ganga undir nafninu Snobbi í
landsliðinu, brugðu á leik í herbergi sínu í gær. Róbert les hér fyrir Snorra Stein. FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN
TÆKNI Steve Jobs, forstjóri tækni-
fyrirtækisins Apple, svipti hul-
unni af nýrri tölvu á tækni-
ráðstefnu í San Fransisco í
Bandaríkjunum í gær ásamt því
að kynna netbókaverslunina
iBooks.
Tölvan nefnist iPad og kemur á
markað eftir um tvo mánuði. Hún
er 24 sentimetrar á hæð, nítján
sentimetrar á breiddina, aðeins
1,3 sentimetra þykk og vegur rétt
tæp sjö hundruð grömm.
iPad-tölvan er með snertiskjá
en við hana má tengja lyklaborð.
Tengja má tölvuna við staðar-
net (Wi-Fi), vafra um á netinu og
gera flest það sem mögulegt er
með hefðbundnum tölvum. - jab
Nýjungar úr ranni Apple:
Nýr iPad lítur
dagsins ljós
STEVE JOBS Forstjóri Apple svipti hul-
unni af nýrri tölvu og netbókaverslun í
San Fransisco í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Markið dugði ekki
Carlos Tevez skoraði
aftur gegn Man. Utd en
United vann leikinn
og komst í úrslit
deildarbikarsins.
ÍÞRÓTTIR 46
EFNAHAGSMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, segir
að örlög Íslands í efnahagskrepp-
unni ættu að vera öðrum þjóðum
víti til varnaðar. Þetta sagði for-
setinn, sem nú er á fundi í Davos
í Sviss, í viðtali við Wall Street
Journal.
Ólafur segist telja að íslenskt
efnahagslíf fari að sækja í sig
veðrið á seinni hluta þessa árs og
á því næsta. Lykillinn að bættu
efnahagslífi sé lausn á Icesave-
deilunni. Hann segist ekki hafa
rætt við fulltrúa Breta og Hol-
lendinga í Davos. „Torgið í þess-
um bæ er stórt og það á eftir að
koma í ljós hvort við hittumst.“ - th
Forsetinn um örlög Íslands:
Öðrum víti til
varnaðar