Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 33
• 5
Tónleikamynd og -plata rokk-
dúettsins The White Stripes,
Under Great White Northern
Lights, kemur út 15. mars. Í
myndinni er hljómsveitinni
fylgt eftir á tónleikaferð hennar
um Kanada árið 2007. Sýndar
verða upptökur frá tónleikum
og einnig verður skyggnst á
bak við tjöldin og tekin viðtöl
við þau Jack og Meg White.
Oxford-sveitin Radiohead
hélt nýverið styrktartónleika í
Los Angeles fyrir fórnarlömb
jarðskjálftans á Haítí. Sveitin
spilaði 24 lög, þar á meðal
eitt nýtt sem kallast Lotus
Flower. Aðeins hæstbjóð-
endur gátu tryggt sér miða á
tónleikana og talið er að um 72
milljónir króna hafi safnast til
Oxfam-samtakanna. Á meðal
tónleikagesta
voru stjörn-
urnar Justin
Timberlake,
Drew Barrym-
ore, Charlize
Theron og Daniel
Craig.
Poppprinsessan
Britney Spears
lætur ekki sitt eftir
liggja í fjáröflun
fyrir fórnarlömbin
á Haítí. Hún hefur
ákveðið að gefa kjól
sem hún klæddist
á MTV-verðlauna-
hátíðinni árið 2008
til góðgerðarsam-
taka og rennur allur
ágóðinn af sölunni
til fórnarlambanna.
Britney þurfti reyndar
dómsúrskurð til að
fá að gefa kjólinn þar
sem hún hefur lengur
ekki yfirráð yfir
fjármálum sínum.
Hljómsveitin The National frá
Brooklyn í Bandaríkjunum
gefur út sína fimmtu plötu í
maí hjá útgáfufyrirtækinu 4AD.
Til að fylgja henni eftir fer
sveitin í stóra tónleikaferð um
heiminn. Fyrst spilar hún á Big
Ears-hátíðinni í Tennessee og
seint í mars er ferðinni heitið til
Evrópu. Túrnum lýkur í Norður-
Ameríku í sumar.
Eðaltöffarinn og harðjaxlinn Clint
Eastwood hefur verið kjörinn upp-
áhaldskvikmyndastjarna Bandaríkja-
manna samkvæmt árlegri skoð-
anakönnun á vegum markaðsfyrir-
tækisins Harris. Eastwood hrifsaði
efsta sætið af Denzel Washington,
sem hafði setið á toppnum í þrjú ár
samfleytt. Í þetta sinn nær Denzel
aðeins þriðja sæti og Johnny Depp
er kominn upp í annað sætið eftir að
hafa verið áttundi í fyrra. Varð hann
jafnframt efstur hjá fólki á aldrinum
18 til 32 ára sem tók þátt í könnun-
inni.
Leikkonan Sandra Bullock, sem
hefur sópað til sín verðlaunum fyrir
leik sinn í The Blind Side, er efsta
konan á listanum og skýtur þar bæði
Meryl Streep og Juliu Roberts ref
fyrir rass. Það var fólk á aldrinum
33 til 44 ára sem var langduglegast
við að velja Söndru. Ekki snýst þó
allt um vinsældir í kvikmyndahúsum
því gamli sjarmörinn John Wayne,
kemst í sjöunda sæti á listanum, fyrir
ofan bæði Tom Hanks og hjarta-
knúsarann George Clooney.
Ýmsar frægar kvikmyndastjörnur
komust ekki á topp tíu í ár og má
þar nefna Will Smith, Harrison Ford
og Angelinu Jolie.
STJARNA EASTWOODS SKÍN SKÆRAST
TOPP TÍU:
1. Clint Eastwood
2. Johnny Depp
3. Denzel Washington
4. Sandra Bullock
5. Tom Hanks
6. George Clooney
7. John Wayne
8. Meryl Streep
9. Morgan Freeman
10. Julia Roberts
CLINT EASTWOOD Töffarinn Clint East-
wood hefur verið kjörinn uppáhalds kvik-
myndastjarna Bandaríkjamanna.
Clint Eastwood
er einn harðasti
gaurinn í bransan-
um. Það má samt ekki
gleyma því að hann
framleiddi, leikstýrði og
lék í tíu klúta myndinni
Bridges of Madiosn
County.