Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 62
30 29. janúar 2010 FÖSTUDAGURNÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
12
12
L
L
7
L
10
L
IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35
IT´S COMPLICATED LÚXUS kl. 5.25 - 8 - 10.35
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 - 5.50
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 3.40 - 5.50
DYHAT MORGANS kl. 8 - 10.20
MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10
AVATAR 3D kl.4.40 - 8
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.50
SÍMI 462 3500
L
12
L
10
L
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 5.50
IT´S COMPLICATED kl. 5.30 - 8 - 10.35
MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10
AVATAR 3D kl. 8
NIKULÁS LITLI kl. 6 - 8 - 10 Íslenskur texti
SÍMI 530 1919
L
L
16
16
L
L
CLOUDY WITH MEATBALLS 2D kl. 5.50 - 8 - 10.10 enskt tal
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 5.50 íslenskt tal
HARRY BROWN kl. 8 - 10.20
THE ROAD kl. 8 - 10.20
ALVIN & ÍKORNARNIR 2 kl. 6 íslenskt tal
JULIE & JULIA kl. 5.30 - 8 - 10.35
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
100.000 GESTIR!
LANGVINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
L
12
7
10
L
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 6
IT´S COMPLICATED kl. 10.10
MAMMA GÓGÓ kl. 6
AVATAR 2D kl. 8
Fráskilin...
...með fríðindum.
Frá höfundi/leikstjóra
SOMETHING´S GOTTA GIVE
www.graenaljosid.is
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16
16 16
16
12
12
12
12
V I P
L
L L
L
L
L
L
L
L
L
7
THE BOOK OF ELI kl. 8D - 10:30D
WHERE THE WILD THINGS ARE 3:40-5:50 -8-10:30
UP IN THE AIR kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 3:40D - 5:50D
SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40
SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40
BJARNFREÐARSON kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30
PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ ísl. Tali kl. 3:20
THE BOOK OF ELI kl. 5:50D - 8:10D - 10:40D
IT’S COMPLICATED kl. 5:30 - 8 - 10:30
SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40
PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 3:40D
BJARNFREÐARSON kl. 3:40 - 5:50
PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ ísl. Tali kl. 3:30
PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 6
THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10
BJARNFREÐARSON kl 5:40
UP IN THE AIR kl. 8
SHERLOCK HOLMES kl. 10:10
Denzel Washington og Gary Oldman eru
frábærir í þessari mögnuðu spennumynd
í anda I Am Legend og Mad Max
- bara lúxus
Sími: 553 2075
IT’S COMPLICATED kl. 5.40, 8 og 10.20 12
SKÝAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM... 3D kl. 3.50 - Ísl. tal L
UP IN THE AIR kl. 5.50, 8 og 10.10 7
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 4 - Ísl. tal L
MAMMA GÓ GÓ kl. 4 10
AVATAR 3D kl. 6 og 9 10
Jón Gnarr var í gær út-
nefndur sem leikskáld Leik-
ritunarsjóðs við Borgar-
leikhúsið og tekur við þeirri
stöðu af Auði Jónsdóttur
sem nú er að ljúka störfum.
Hann segir þetta vera mikla
áskorun fyrir sig.
Jón Gnarr var valinn úr stórum
hópi umsækjanda en í umsögn
dómefndar segir meðal annars:
„Jón Gnarr hefur sýnt það og sann-
að með verkum sínum að hann er
snjall penni sem hefur gott næmi
fyrir samtalsforminu og persónu-
sköpun. Þó húmorinn sé gjarnan í
forgrunni er alvaran aldrei langt
undan. Það er mikill fengur að fá
þennan reynda listamann til liðs
við leikhúsið.“
Jón er ekki ókunnugur leikhúsi
að einhverju leyti. Hann þýddi
meðal annars Play it Again Sam
eftir Woddy Allen sem sett var upp
í Loftkastalanum fyrir heilum ára-
tug og lék þá sjálfur aðalhlutverk-
ið á móti Kötlu Margréti í leik-
stjórn Halls Helgasonar. Þá hefur
hann samið tvö útvarpsleiksrit sem
bæði hafa verið flutt á Rás 1. „Ég lít
fyrst og fremst á þetta sem viður-
kenningu fyrir mig. Og þetta hefur
engin áhrif á stjórnmálaþáttöku
mína, ég mun rækja þetta starf
eins og hvert annað starf,“ segir
Jón en hann stofnaði sem kunnugt
er Besta flokkinn fyrir skömmu og
hyggst ná sæti í borgastjórn.
Jón er fyrst og fremst upp með
sér yfir þessari útnefningu og
þykir þetta mjög spennandi og
skemmtilegt. „Ég hlakka ákaf-
lega mikið til að takast á við
þetta og ætla að reyna skrifa að
minnsta kosti eitt skemmtilegt
leikrit. Þetta er áskorun fyrir
MIKIL ÁSKORUN FYRIR MIG
LEIKSKÁLD LEIKRITUNARSJÓÐS
Jón Gnarr tekur við útnefningunni úr hendi Vigdísar Finnbogadóttur. Hann
verður leikskáld Leikritunarsjóðs við Borgarleikhúsið árið 2010 og tekur við
því starfi af Auði Jónsdóttur sem nú er að ljúka störfum. Jón var í góðum
hópi þegar þetta var tilkynnt og var með Vaktar-félaga sínum, Jörundi Ragn-
arssyni, á borði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kvikmyndir: ★★★★
Harry Brown
Leikstjóri: Daniel Barber
Aðalhlutverk: Michael Caine
Eðalkrimmi
Þegar vinur Harry Brown er myrtur
hrottalega af ótíndum smáglæpamönn-
um, ákveður hann að taka lögin í eigin
hendur, og ná fram réttlæti á morðingj-
unum.
Harry Brown er fantagóð frum-
raun leikstjórans Daniels Barber, sem
áður fékk Óskarsverðlaun fyrir bestu
stuttmynd frá 2008. Eflaust eru margir
sem sjá líkingu milli þessarar myndar
og Gran Torino, en þær eiga lítið meira
sameiginlegt en að fjalla um eldri
mann sem vill ná fram hefndum. Þar að
auki er Harry Brown mun áhugaverð-
ari og dýpri persóna en sú sem Clint
Eastwood lék í Gran Torino.
Caine (sem er á áttræðisaldri) sýnir
kraftmikinn leik sem Brown, sem fyrst tekur eftir hraðri hnignun þjóðfélags-
ins í kjölfarið á andláti eiginkonu sinnar. Það er afar ánægjulegt að Caine
hafi treyst jafn óreyndum kvikmyndagerðamanni og Barber, og þykir mér
myndin virkilega aðdáunarvert verk. Barber er án efa einn af þeim sem
maður á eftir að fylgjast náið með í framtíðinni.
Vignir Jón Vignisson
Niðurstaða: Frábær breskur krimmi
Rapparinn Curtis Jackson, betur
þekktur sem 50 Cent, er hætt-
ur að koma opinberlega fram
með skartgripi. Klæðskerasnið-
in jakkaföt eru núna aðalmál-
ið og „blingið“ kemst hvergi að.
„Ég var að reyna að
senda út ákveð-
in skilaboð með
skartgripunum en
núna hef ég ekki
lengur þörf fyrir
þá,“ sagði rapp-
arinn. Hann
hefur að undan-
förnu reynt fyrir
sér í fatahönnun
og leiklist með
ágætum árangri
og þess vegna
er ímynd hans
sem bófarappari
ekki eins mikil-
væg og áður.
Losar sig við
skartgripina
NÝR STÍLL Rapp-
arinn 50 Cent
hefur breytt um
fatastíl og losað sig
við skartgripina.
mig,“ segir Jón sem hefur hing-
að til aðallega unnið í heimi sjón-
varps. „Þetta er tvennt algjör-
lega ólíkt. Ég verð þarna í heilt
ár og það verður gaman fyrir
mig að vera þarna í leikhúsinu
og heyra hvað fólkið á fjölunum
hefur að segja.“ Jón segist vera
með nokkrar hugmyndir í kollin-
um en hann hafi alltaf verið hrif-
inn af leikritum Samuel Beckett.
„Eitthvað sem er nógu absúrd,“
segir Jón.
freyrgigja@frettabladid.is
Talið er að popparinn Elton
John og Lady Gaga ætli að
syngja dúett á bandarísku
Grammy-verðlaunahá-
tíðinni á sunnudaginn.
Ekki er vitað hvaða
lag þau ætla að syngja
saman. Engu að síður
bíða margir spennt-
ir eftir þessu óvænta
samstarfi þessara
tveggja vinsælu tón-
listarmanna.
„Það verður sann-
kölluð flugeldasýn-
ing að sjá Elton og
Lady Gaga saman
á sviði. Þetta gæti
orðið ein eftirminni-
legasta frammistaðan í
sögu Grammy-hátíðarinn-
ar,“ sagði heimildarmaður.
Verði dúettinn að veruleika
verður hann ekki sá fyrsti
hjá Elton á Grammy-hátíð-
inni. Síðast flutti hann dúett
með rapparanum Eminem
árið 2001 við góðar undir-
tektir. Á meðal þeirra tón-
listarmanna sem staðfest
er að komi fram á hátíð-
inni eru Pink, Beyonce,
Black Eyed Peas og Tayl-
or Swift.
Dúett Elton og Gaga í bígerð
ELTON JOHN Popparinn
litríki syngur líklega dúett
með Lady Gaga á Grammy-
verðlaunahátíðinni. Búast má
við litríku samstarfi enda bæði
tvö miklir skrautfuglar.