Fréttablaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 16
16 4. febrúar 2010 FIMMTUDAGUR Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hafi hvorki gefið bæjarstjórninni syndakvittun né sett fjár- mál bæjarins í gjörgæslu með bréfi þar sem tilkynnt er um að nefndin óski eftir ársfjórðungslegum upplýs- ingum um rekstur sveitar- félagsins í ár. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga (EFS) hefur sent Reykja- nesbæ bréf vegna fjárhagsáætl- unar 2010 og ætlar ekki að hafast að í málum sveitarfélagsins að svo stöddu en ítrekar varnaðarorð um forsendur rekstraráætlunar og fjár- hagsstöðu. Þrátt fyrir áætlanir um sjö milljarða hagnað árið 2009 vegna sölu á eignum í HS Orku séu skuldir yfir eðlilegum mörkum. Kallað er eftir ársfjórðungslegum upplýsing- um um rekstur þessa árs með sam- anburði við rekstraráætlun 2010. „Mér finnst ekki sanngjarnt að það sé horft á að við séum í gjör- gæslu eða undir einhverri smásjá,“ segir Árni Sigfússon. „Niðurlag bréfsins er að það verði ekki aðhafst frekar, að svo stöddu. Það eru ítrekuð varnaðarorð um óvissu í rekstrarforsendum og fjárhags- stöðu. Það er niðurstaða þessa erindis.“ Hvorki syndakvittun né í gjörgæslu „Það er bara eðlilegt að menn fái ársfjórðungslega upplýsingar,“ segir Árni. „Það er enginn að segja að bréfið sé hrein syndakvittun en þetta eru ekki alvarlegar athuga- semdir. Það er eðlilegt að nefnd- in óski eftir þessum upplýsingum. Tekjurnar sem við áætlum að komi inn á næstu árum eru meðal for- sendna fyrir bættri rekstrarstöðu. Það er eðlilegt að menn vilji fylgj- ast með því að hagræðing í rekstri gangi eftir.“ Eftirlitsnefndin minnir á nauðsyn þess að peningalegar eignir, sem fengust við 11,7 milljarða króna sölu eigna í HS Orku, verði nýttar til að greiða niður skuldir. „Við metum eftir aðstæðum hvað er eðlilegast að greiða niður,“ segir Árni. „Ég hef bent á að meðal þeirra eigna er 6,3 milljarða króna skulda- bréf sem greiðist upp árið 2016. Við höfum val um hvort við seljum það bréf eða eigum það og söfnum á það vöxtum. Við höfum talið skynsam- legra að geyma það en selja.“ Árni segist ekki túlka bréf nefndarinnar þannig að hún sé að leggja að sveit- arfélaginu að selja skuldabréfin. „Ég held ekki að hún sé að leggja áherslu á það, heldur á að það fjár- magn, sem við höfum, verði frekar nýtt í að greiða skuldir en að fara í nýjar fjárfestingar. Við tökum undir það.“ Í ykkar áætlun var byggt á for- sendum um fjölgun starfa, fjölg- un íbúa og auknar skatttekjur. Er slík bjartsýni réttlætanleg í miðri kreppunni? „Við gerum ráð fyrir að árið 2010 verði erfitt vegna þess að mörg verkefni sem eru komin af stað eru ekki komin að fullu til fram- kvæmda. Við gerum ráð fyrir að 60% af þeim störfum sem hér eiga eftir að verða til á svæðinu á næstu þremur árum komi til fólks sem býr í Reykjanesbæ. Við gerum áætlun um að á næstu þremur árum auk- ist skatttekjur um 1,5 milljarða, sem hefur mikil og jákvæð áhrif á rekst- urinn. Capacent hefur unnið nýja greiningu á áhrifum nýrra atvinnu- verkefna á skatttekjur Reykjanes- bæjar. Þær niðurstöður benda til að tekjuaukningin verði umtalsvert meiri en þeir 1,5 milljarðar sem við gerum ráð fyrir. Það er afskaplega ánægjuleg niðurstaða en hún er sýnd veiði en ekki gefin. Við teljum að við höfum farið varlega í sakirn- ar í okkar áætlun og höldum okkur við hana.“ Þau nýju verkefni sem Árni vísar í að muni standa undir auknum umsvifum og skatttekjum á næst- unni eru álver Norðuráls í Helguvík, gagnaver Verne Holding í Ásbrú, sjúkrahús á Ásbrú, ýmis verkefni tengd flugþjónustu og framkvæmd- ir vegna væntanlegrar kísilverk- smiðju. Hann segir að þarna sé farið varlega í sakirnar. Til dæmis sé ekki gert ráð fyrir auknum tekj- um af ferðaþjónustu og ýmsum öðrum verkefnum sem undirbúin hafa verið á síðustu árum. „En við gerum ráð fyrir að bygg- ingarframkvæmdir við álverið í Helguvík hefjist á vormánuðum og að fólk verði ráðið í tengslum við það. Það er búið að ljúka við fjár- mögnun sjúkrahússins á Ásbrú og byggingarframkvæmdir eru að fara af stað. Menn þekkja hvar gagnaverið stendur; það er verið að ljúka frágangi fjárfestingarsamn- ings vegna þess á Alþingi. Allt eru þetta verkefni sem líta ágætlega út og eiga ekki að tefjast frekar.“ Einhver áhætta um hraða uppbygg- ingarinnar Það er margt óljóst varðandi þessa uppbyggingu. Orkusölusamning- ar liggja ekki fyrir og virkjanaleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkj- unar hefur ekki verið gefið út. Er réttlætanlegt við þær aðstæður að leggja tekjur af þessum verkefnum til grundvallar í fjárhagsáætlun? „Þá má spyrja ríkisstjórnina og Seðlabankann á hverju þeir byggi þær forsendur að hér rísi efnahag- ur á forsendum álvers í Helguvík. Ef við trúum ekki á að þetta sé að gerast veit ég ekki hverjir eiga að gera það. Við höfum verið að berjast fyrir þessu í fimm ár. Hins vegar eru fjórir áfangar í álverinu. Fyrsti áfangi er 90.000 tonn og þar eru menn búnir að leggja hlutina saman og sjá tæki- færi til að fara af stað. Það er haft eftir forsvarsmönnum Norðuráls. Það er þeirra að meta aðstæður og forsendur fyrir sínum ákvörðun- um og þeir treysta sér til að fara af stað. Menn taka einhverja áhættu af því hversu hratt þeir geta byggt upp og það er Norðurál sem þarf að taka afstöðu til þess.“ Árni segist telja að gengið verði frá orkusölusamningum á næstu vikum vegna fyrstu áfanga álvers- ins. Þegar horft er til baka í ljósi fjár- hagsstöðu bæði Reykjanesbæjar og margra annarra sveitarfélaga: Hvar var farið of geyst og hvað hefðu menn átt að gera öðruvísi? „Ég tel að við höfum tekið réttar ákvarðanir í upphafi. Við búum á láglaunasvæði. Við stóðum frammi fyrir spurningunni: Ætlum við að gera þetta að annars eða þriðja flokks samfélagi, sem veitir lélega þjónustu, eða ætlum við að byggja upp auknar skatttekjur? Við ákváð- um að byggja upp nýjar skatttekjur og draga fram kosti svæðisins til að taka á móti nýjum atvinnutækifær- um. Það hefur kostað fjárfesting- ar. Þær eru að skila þeirri niður- stöðu að stór verkefni eru að koma inn og þau munu snúa við rekstri sveitarfélagsins. Út á það hefur þetta alltaf gengið. Auðvitað er ákveðin áhætta tekin og við höfum orðið fyrir áföllum. Við bjuggumst ekki við því að 900 manns misstu störf hjá Varnarliðinu. Það hefur gengið ágætlega að breyta því áfalli í tækifæri. Við áttum líka ekki von á öðru en hugmyndir um stálpípu- verksmiðju gætu gengið eftir en þau fóru forgörðum.“ Ekki offjárfesting Árni segist ekki kvitta undir það að það hafi verið offjárfesting í Reykja- nesbæ. Bærinn hafi fjárfesta í því að byggja upp stuðning við fjölskyldu- fólk, góða skóla og vistlegt og fjöl- skylduvænt umhverfi. Þegar nefnt er að fjölmargar íbúðir standi auðar í bænum, bæði á Vallarsvæðinu og í öðrum hverfum, bendir hann á að sú fjárfesting þýði að Reykjanesbær geti nú tekið við 1.700 nýjum íbúum án þess að það þurfi að kosta miklu til við innviði samfélagsins. Sú fjölg- un muni verða í tengslum við álverið í Helguvík og önnur verkefni, sem Suðurnesjamenn bíða nú eftir að verði að veruleika. FRÉTTAVIÐTAL: Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar Bæjarfélaginu hvorki veitt syndakvittun né sett í gjörgæslu ÁRNI SIGFÚSSON Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að athugasemdir Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hafi ekki komið á óvart. Meginniðurstaðan sé sú að EFS ætli ekki að grípa til aðgerða, þótt eðlilega vilji nefndin fylgjast vel með því hvernig fjárhagsáætlun gengur eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRÉTTAVIÐTAL PÉTUR GUNNARSSON peturg@frettabladid.is REYKJANESBÆR ÚR LOFTI Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist telja að gengið verði frá orkusölusamningum á næstu vikum vegna fyrstu áfanga álversins í Helguvík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.