Fréttablaðið - 04.02.2010, Blaðsíða 34
4. FEBRÚAR 2010 FIMMTUDAGUR
www.IKEA.is
PAX TONNES fataskápur 151.750,-
B250×D58, H236cm. Hvítt/hert gler.
PAX skáparnir fást í hvítu, birki, eik, gráu og svarbrúnu. Einingarnar
eru 50, 75 og 100 cm að breidd og hæðin er 201 og 236 cm. Þú getur
því sérhannað fataskápinn þinn, nákvæmlega eftir þínum þörfum, þínu
rými og þínum stíl. Við bjóðum upp á mikið úrval af hurðum, bæði
rennihurðum og hurðum á lömum. Þær fást í ýmsum litum og áferðum
– þú getur til dæmis valið hurðir með háglansandi áferð eða með
viðarspón. Síðan nýtir þú rýmið í fataskápnum þínum til fullnustu með
KOMPLEMENT aukahlutunum. Í KOMPLEMENT línunni finnur þú hillur,
skúffur, vírkörfur, buxnaslár, skógrindur, kassa, körfur og ýmislegt fleira.
PAX UGGDAL fataskápur
87.850,-
B150×D58, H236cm.
Eikarspónn/hert gler.
IKEA býður upp á mikið úrval
fataskápa sem má raða saman
að vild og laga að ólíkum
þörfum.
Skáparnir, sem fást í stöðluðum ein-
ingum, tveimur hæðum og þremur
breiddum, heita PAX en auk þeirra
fást stakir fataskápar í ýmsum stærð-
um og stílflokkum. KOMPL EMENT-
aukahlutalínan passar í PAX-skáp-
ana en hún býður upp á hagkvæmar
lausnir og gott innra skipulag.
„Hægt er að velja um hillur,
vírkörfur, viðarskúffur, fataslár,
buxnahengi, lausnir fyrir skó,
snaga, skilrúm, box og kassa sem
smellpassa í skápana og auðvelda
aðgengi og skipulag. Þannig geta föt
og fylgihlutir átt sinn stað og það
er auðvelt að ganga að smáhlutum
eins og beltum, bindum og slæðum
vísum,“ segir Atli Daðason, vöru-
stjóri húsgagna hjá IKEA. Hann
segir fólk í raun geta hannað sinn
eigin fataskáp eftir því hvernig
fjölskylduaðstæður eru og að auð-
velt sé að breyta skápunum. „Skáp-
ana má laga jafnt að einstaklingum,
hjónum og börnum. Eins eru börn
og fullorðnir stundum að samnýta
skápa og því getur þurft að laga
innra skipulag þeirra að því hvort
ætlunin er að geyma í þeim síða
kjóla eða skyrtur, buxur, barna-
föt eða annað.“ Atli segir hurð-
ir með lömum enn þá vinsælastar
þótt rennihurðir sæki á. „Við erum
með sextán tegundir af hurðum á
lömum og er hægt að velja um fjöl-
marga stílflokka; liti, viðartegund-
ir, spegla og gler. Undanfarið höfum
við svo fundið fyrir auknum áhuga
á rennihurðum og bætt við úrval-
ið. Þær eru sérstaklega hentugar ef
pláss er af skornum skammti auk
þess sem mörgum finnst þær smart
og auðvelda aðgengi.“
Á heimasíðu IKEA er að finna
teikniforritið IKEA Home Planner.
Þar er hægt að teikna upp heilu
herbergin og setja saman fata-
skáp að eigin vali. Þá eru fjölmarg-
ar útfærslur til sýnis í verslun-
inni auk þess sem starfsfólk IKEA
veit hvaða stærðum er best að raða
saman, hvaða hurðir henta og þar
fram eftir götunum. „Það er gott
að hafa málin með þegar komið er
í búðina og einhverja hugmynd um
það sem á að geyma í skápnum til að
geta útfært skápinn að innan. Síðan
er bara að fara heim og raða.“
Hægt að hanna eigin skáp
Atli segir hurðir með lömum vinsælastar en að rennihurðir sæki á. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439
● KLOFINN PERSÓNULEIKI Hollenski hönnuðurinn Mieke
Meijer á heiðurinn að þessum skáp sem kallast Alter Ego, eða æðra
sjálf. Skápurinn er settur saman úr nokkrum smærri einingum sem
hægt er að taka í sundur og leika sér með að vild. Meijer segir að
saman tákni skáparnir eins konar æðra sjálf, eða alter ego, en hver í
sínu lagi eigi þeir að tákna önnur sjálf skápsins. Þetta endurspeglist
jafnframt í myndinni af stólnum framan á skápnum sem tvístrast
þegar hann er tekinn í sundur.
Þess má geta að Meijer er nokkuð þekkt í föðurlandi sínu Holllandi
en hún tók meðal annars þátt í hollensku hönnunarvikunni sem fór
fram Eindhoven nú í október.
BESTÅ BURS
vegghilla 28.950,-
B180×D26, H26cm.
Háglans hvítt
Fæst einnig í háglans
rauðu og háglans svörtu
BESTÅ BURS sjónvarpsbekkur 49.950,-
B180×D41, H49cm. Háglans hvítt
Fæst einnig í háglans rauðu og háglans svörtu
BESTÅ sjónvarpsbekkur 38.550,-
Sjónvarpsbekkurinn er með tveimur
skúffum og tveimur skápum
B240×D40, H49cm. Hvítt
BESTÅ vegghilla 27.700,-
B240×D40, H38cm. Hvítt/hert gler
Höldur og ljós seld sér
Þú getur hannað þinn eigin
sjónvarpsbekk og vegghillu með
einingum úr BESTÅ línunni.