Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 6
6 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR SKIPULAGSMÁL „Það er mikilvægt, ef af verður, að breytingarnar verði framkvæmdar af virð- ingu við þetta merka hús,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs Reykja- víkur, um ósk eiganda Heilsuverndarstöðvar- innar á Barónsstíg að innrétta húsið sem hótel. Júlíus bendir á að um sé að ræða atvinnu- húsnæði í einkaeigu. „Þeir sem vilja reka hótel í atvinnuhúsnæði hafa rétt til þess og geta byggt umsókn um slíkt á þeim forsend- um. Það er hálf sorglegt að svona flott hús sem er ákveðið kennileiti hér í Reykjavík skuli ekki vera í notkun,“ segir hann. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær kveðst eigandi hússins, Álftavatn ehf., árang- urslaust hafa reynt að koma því í notkun sem læknamiðstöð og sjúkrahótel. „Auðvitað hefði maður helst viljað sjá þetta hús í þeirri notkun sem það var byggt fyrir – í þágu heilbrigðisgæslu,“ segir Júlíus. Skipulagsráð hefur ekki tekið afstöðu til málsins. Álftvatn ehf. leggur áherslu á að vinnslu málsins sé hraðað svo að Icelandair Hotels geti hafið þar rekstur strax í vor en Júlíus segir margt ógert. Við blasi að gera þurfi miklar breytingar á innviðum hússins. „Ég reikna með að húsafriðunarnefnd og fleiri fagaðailar hafi áhuga á að fylgjast vel með þessu máli. Þá verður að hafa í huga hvaða áhrif breytt notkun geti haft á nærumhverfið,“ segir formaður skipulagsráðs. - gar Formaður skipulagsráðs vill helst lækningastarfsemi í Heilsuverndarstöðinni: Breytingar verði gerðar af virðingu NÝTT HLUTVERK Á BARÓNSSTÍG? Eigandi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar vill leigja hana til Icelandair Hotels. SAMSETT MYND/FRÉTTABLAÐIÐ N1 Deildin KONUR Laugardagur Framhús Víkin Vodafone höll Fram - KA/Þór Víkingur - Fylkir Valur - Haukar 15:00 16:00 16:00 2009 - 2010 STJÓRNSÝSLA Ríkiskaup þurfa ekki að hætta við útboð á fjarskipta- þjónustu fyrir Landspítalann. Kærunefnd útboðsmála segir Ríkiskaup hins vegar bera skaða- bótaskyldu gagnvart Símanum fyrir að hafa brotið á rétti fyrir- tækisins í sams konar útboði í fyrravetur. Tvö tilboð bárust í fyrra útboð- inu: frá Símanum og frá Vodafone sem bauð lægri upphæð. Samið var við Vodafone en Síminn kærði það og benti á að Vodafone hefði á þeim tíma ekki uppfyllt skilyrði um jákvæða eiginfjár- stöðu. Kærunefndin tók undir það. Í stað þess að semja þá við Símann, sem átti hitt tilboðið, ákváðu Ríkiskaup að efna til nýs útboðs. Síminn kærði það en kærunefndin segir að nýja útboðið sé löglegt. - gar Ekki hætt við fjarskiptaútboð: Fær bætur en ekki nýtt útboð STJÓRNMÁL Mannréttindamál í Íran voru til umfjöllunar á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær. Komu starfsmenn utanríkis- ráðuneytisins fyrir nefndina. Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir líklegt að ríkisstjórnin eða utanríkisráðu- neytið muni í framhaldinu senda írönskum stjórnvöldum ályktun þar sem mannréttindabrot verði hörmuð. „Nefndin hvetur ríkis- stjórnina til þess,“ segir Árni. Í Íran er fólk tekið af lífi fyrir að mótmæla stjórnvöldum. - bþs Utanríkismálanefnd Alþingis: Framferði Írana verði mótmælt Ramos áfram í varðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis að brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan fjallað er um framsalsmál hans. Ekki er langt síðan Ramos reyndi að flýja úr haldi og hótaði fangaverði með heimatil- búnu eggvopni. DÓMSTÓLAR KRÖFUR SKRÁÐAR Skilanefnd Kaup- þings leitar eftir því að stokka upp í kröfuhafaráði bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Skilanefnd Kaupþings auglýsti í fyrradag eftir nýjum fulltrúum í kröfuhafaráð bank- ans. Stefnt er að því að það verði endurnýjað í lok mánaðar, að því er segir í tilkynningu. Óformlegt kröfuhafaráð Kaup- þings hefur verið starfandi frá í nóvember 2008. Í því sitja sjö fulltrúar fyrir hönd stærstu kröfuhafa, lánveitenda og skulda- bréfaeigenda. Eftir að kröfuhafalisti lá fyrir í lok síðasta árs var ákveðið að stokka upp í ráðinu. Fulltrúi frá alþjóðlegu lögmannsstofunni Bingham er á meðal þeirra sem sitja í kröfuhafaráðinu. - jab Skilanefnd Kaupþings banka: Kröfuhafaráðið endurnýjað DANMÖRK Fyrstu uppgjör danskra kúabúa fyrir árið 2009 sýna verri niðurstöðu en sést hefur í áraraðir, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Tap af rekstrinum er sagt tæpar 1,6 milljónir danskra króna, sem séu tæp 42 prósent af veltu. „Þetta byggir á tölum úr rekstri 55 kúabúa á starfssvæð- um LRØ, LandboNord og Land- boSyd, sem öll eru á Jótlandi,“ segir á vefnum. Tapið er að mestu sagt vegna lágs mjólkurverðs til framleiðenda. Spáin fyrir þetta ár er sögð líta mun betur út. „Mjólkurverðið er komið í 2,22 dkk/kg, fallandi fóð- urverð og lækkandi vextir gefa möguleika á að lítils háttar hagn- aður verði af búrekstrinum.“ - óká Kúabændur í Danmörku: Meira tap en lengi hefur sést STJÓRNMÁL Vinstrihreyfingin – grænt framboð oftaldi framlög frá einstaklingum en lét ekki getið um framlög til flokksins frá sveitar- félögum þegar ársreikningi 2008 var skilað til Ríkisendurskoðunar. Fyrr í vikunni birti Ríkisendur- skoðun útdrætti úr ársreikn- ingum þeirra stjórnmálaflokka sem skilað höfðu upplýsingum til stofnunarinnar. Þar kom fram að VG hefði engar tekjur fengið frá sveitarfélögum. Þó er sveitarfélögum með fleiri en 500 íbúa skylt að styðja stjórn- málaflokka, sem fengið hafa meira en 5 prósent atkvæða í sveitar- stjórnarkosningum, samkvæmt lögum sem sett voru 2006. Í reikningum Samfylkingarinn- ar kemur fram að sá flokkur hafði rúmlega 15 milljónir króna í tekjur frá sveitarfélögum en Framsókn- arflokkurinn tæpar 5 milljónir. „Það urðu mistök hjá VG, þeir blönduðu þessu saman við framlög frá einstaklingum,“ segir Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun. Hann segir að Ríkisendurskoðun muni senda frá sér leiðréttingu vegna reiknings VG þegar upplýsingar hafa borist frá flokknum. Aðspurður sagði Lárus að vænt- anlega hefði VG átt að færa „ein- hverjar milljónir“ sem tekjur frá sveitarfélögunum. Lárus segir að fjárhæð styrkj- anna séu alfarið á valdi hverr- ar sveitarstjórnar. Hins vegar sé sveitarfélögum skylt að dreifa framlögum jafnt á flokkana í hlutfalli við atkvæðamagn þeirra. VG gaf upp 18,7 milljóna króna tekjur frá einstaklingum, þar með talin félagsgjöld. Samfylkingin gaf upp 17 milljóna króna tekjur frá einstaklingum og Framsóknar- flokkurinn 10,6 milljónir. Árið 2007 gaf VG upp 7,7 millj- ónir króna í tekjur frá sveitar- félögum en 9,8 milljónir frá einstaklingum. Drífa Snædal, framkvæmda- stjóri VG, staðfesti við Frétta- blaðið að flokkurinn hefði fengið styrki frá sveitarfélögum. Sum aðildarfélög hefðu ekki aðgreint þau frá öðrum framlögum. Verið sé að vinna að leiðréttingu. Styrk- urinn frá Reykjavíkurborg nam 4- 5 milljónum króna, að sögn Drífu, en mun lægri fjárhæðir komu frá öðrum sveitarfélögum. Samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfirði fékk VG þaðan um 543.850 krónur en framlagið frá Mosfellsbæ var rúmar 182.000 krónur. peturg@frettabladid.is Villa í reikningi VG VG láðist að telja fram styrki frá sveitarfélögum í ársreikningi 2008. Flokkurinn fékk um 5 milljónir frá Reykjavíkurborg og hálfa frá Hafnarfirði. Sveitarfélög- um skylt að styrkja flokka sem fá yfir 5 prósent atkvæða í hlutfalli við atkvæði. 5. gr. Framlög til stjórnmálasam- taka frá sveitarfélögum. Sveitarfélögum með fleiri en 500 íbúa er skylt, en öðrum sveitarfé- lögum heimilt, að veita stjórnmála- samtökum, sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosning- um, fjárframlög til starfsemi sinnar. Ákvörðun um slík framlög tekur sveitarstjórn samhliða samþykkt fjárhagsáætlunar. Fjárhæðinni skal úthlutað í hlutfalli við atkvæða- magn. LÖG UM FJÁRMÁL STJÓRNMÁLASAMTAKA EKKI AÐGREINT Framkvæmdastjóri VG segir að einstaka aðildarfélög hafi skellt saman framlögum frá sveitarfélögum og öðrum framlögum. Unnið er að leiðréttingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON STYRKIR TIL FLOKKANNA 2008* Hafnarfjörður 4.250.000 Garðabær 3.500.000 Mosfellsbær 1.500.000 Kópavogur 0 Reykjavík svar barst ekki *heildarstyrkir skv. svörum við fyrirspurn um styrki skv. lögum um fjármál flokkanna, sem send var til þessara sveitarfélaga 5. febrúar 2010. DÓMSMÁL Brot karlmanns sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróf kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, sem hann kynnt- ist í gegnum Facebook, varða allt að sextán ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að maðurinn sitji í gæsluvarðhaldi til 3. mars. Þrjú þessara brota eru komin til ríkissaksóknara og hið fjórða á leiðinni. Að auki hefur ríksisaksóknari til meðferðar mál er varðar vörslu mannsins á barnaklámi. Kynferðisbrotamál mannsins gegn stúlkunum fjórum komu til kasta lögreglu í árslok 2009 með stuttu millibili og eiga það sammerkt að meintir brotaþolar eru ungar stúlkur undir lögaldri, þar af tvær undir kynferðisleg- um lögaldri. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum enda hafi maðurinn yfirburði í aldri og þroska fram yfir stúlkurnar. Þá endurspegli það aukinn ásetning mannsins að hann láti ekki segj- ast og hafi ekki liðið nema vika frá því að ákærði hafi verið yfirheyrð- ur vegna meints kynferðisbrots gegn ungri stúlku og þar til hann hafi sett sig í samband við fjórðu stúlkuna. - jss Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Facebook-manninum staðfestur í Hæstarétti: Gæti fengið sextán ára fangelsi FACEBOOK-MAÐURINN Sakborningurinn leiddur fyrir dómara. Verður þú vör/var við að húsa- leiga hafi lækkað verulega? Já 15,3% Nei 84,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á Landhelgisgæslan að fá aukið fjármagn til að halda úti þyrlurekstri? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.