Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 35
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Segja má að hrein tilviljun hafi ráðið því að Lilja Steingrímsdótt- ir hjúkrunarfræðingur ákvað að taka þátt í hjálparstarfi á Haítí. „Ég er með öndunarjóga á mínum vegum og var að kynna það í Rauða krossinum um daginn. Þá barst það í tal að ég væri frönskumælandi. Mér var kippt inn á teppi og ég slapp ekki út fyrr en ég var búin að sækja um að fara,“ segir Lilja glaðlega og er þakklát fyrir að geta hjálpað til. Hún er þó ekki óvön hjálparstarfi því hún hefur tvisvar áður starfað fyrir Rauða krossinn, í Taílandi og Pakistan. „Það er nú langt síðan,“ segir hún og býst fastlega við að aðstæðurnar verði mun verri á Haítí. „Sjúkrahúsið sem ég vann á þá var byggt á gömlum grunni og þar kom fólk sem hafði stigið á jarðsprengjur og verið skotið. Það er allt annað en sá harmleikur sem dunið hefur yfir Haítí. Þar hefur fólk misst allar eigur sínar og jafnvel stóran hluta fjölskyldunnar líka. Kvölin er því bæði andleg og líkamleg,“ áréttir hún. Lilja flýgur af stað um miðjan dag á morgun til New York og fer þaðan til Santo Domingo. „Þaðan förum við með einhverju farar- tæki til Port-au-Prince. Það er svo mikil örtröð á þessum litla flugvelli í borginni að aðeins fjórar flugvél- ar geta lent á klukkutíma og það er upppantað næstu tvo mánuðina,“ segir hún. Lilja verður í mánuð á Haítí og er það talinn nógu langur tími fyrir eina manneskju enda eru aðstæð- ur erfiðar og vinnan mikil. „Rauði krossinn fær um þúsund nýja sjúkl- inga á dag og reynir að sinna þeim eftir bestu getu,“ segir Lilja sem mun starfa í tjaldsjúkrahúsi í einum fátækasta hluta Port-au-Prince sem fór einna verst í hamförunum. Innt eftir því hvort hún kvíði ferðalaginu segir hún það koma í bylgjum. Hún hefur þó ekki haft mikinn tíma til að velta því fyrir sér enda var brottförin ákveðin á miðvikudaginn var og ganga þarf frá mörgu og undirbúa áður en lagt er í hann. „Ég veit í raun lítið hvað ég er að fara út í. Ég hef fengið mikið af upplýsingum frá Rauða krossinum og hlutirnir eru vel skipulagðir af hans hálfu en maður veit ekkert hvernig þetta verður fyrr en komið er á staðinn,“ segir Lilja sem dags daglega starf- ar á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Hún segir vinnuveitend- ur sína dásamlega og lítið mál hafi verið að fá leyfi til að fara. Í dag heldur Lilja áfram að undirbúa ferðina. Eitt af verkefn- unum er að setja niður í töskurnar. Hvað ætli maður þurfi að hafa með sér í slíka ferð? „Ekki mjög mikið. Bómullarföt, peysu, regnföt, góða skó því það er víst ekki góð færð í kringum vinnustaðinn, malaríu- vörn, sólarvörn og slíkt því það er heitt þarna suður frá,“ telur hún upp og heldur að því búnu áfram undirbúningi ferðarinnar. solveig@frettabladid.is Til hjálparstarfs á Haítí Frönskukunnátta Lilju Steingrímsdóttur hjúkrunarfræðings varð til þess að hún var beðin um að halda utan til að taka þátt í hjálparstarfi Rauða krossins á Haítí. Hún heldur af stað á morgun. Lilja Steingrímsdóttir starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún heldur til Haítí á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK verður með tónleika í Nor- ræna húsinu í dag klukkan 14. Nemendur skólans flytja íslenska tónlist eftir menn á borð við Atla Ingólfsson, Eyþór Stefánsson, Ríkharð Örn Pálsson, Sigfús Einarsson, Karl O. Runólfsson, Pál Ísólfsson og marga fleiri. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeið hefst 10. febrúar n.k. Bergstaðastræti 4 - 101 Reykjavík - Sími: 562-0335 Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar lokar 1. mars næstkomandi Útsala hefst mánudaginn 8. febrúar 40% afsláttur af öllum vörum Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga LAGERSALA Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík Allar upplýsingar í síma 517-2040 Mikið úrval af dömu- og herraskóm frá Gabor. Götuskór Öryggisskór Herra-sandalar Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is 30% afsláttur af völdum vörum. Skoðaðu tilboðin inn á heimsíðu Lín Design www.lindesign.is Tilboðsdagar hjá Lín Design Þriðjudaga Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.