Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 62
34 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR TILNEFNINGAR Á rsins 2009 verður sennilega minnst fyrir þrennt í íslenskri kvik- myndagerð: Ólafs Ragnars, Georgs Bjarnfreðarsonar og Daníels Sævars sonar. Þessi þrenning, jafn- heilög og aðrar þrenningar, einok- aði íslenska afþreyingarmenningu á því árinu; mynddiskar með gömlu þáttunum tveimur seljast enn eins og heitar lummur og íslenska þjóð- in sat límd fyrir fyrir framan sjón- varpsskjáinn þegar síðasta þátta- röðin, Fangavaktin, var sýnd. Og síðan fór þjóðin í bíó, sá Bjarnfreð- arson, lokakaflann í þessar ein- stöku sögu sem sennilega mun lifa jafnlengi með þjóðinni og hennar merkustu rit. Engin tilviljun Það er því varla tilviljun að þessi tvö fyrirbæri skuli einoka Eddu- verðlaunin þetta árið. Átján til- nefningar eru ágætis vitnisburð- ur um yfirburði Georgs, Ólafs og Daníels. Fregnir af endurgerð þáttanna í Hollywood eru staðfest- ing á því að þetta er vafalítið eitt besta sjónvarpsefni sem litið hefur dagsins ljós á Íslandi. Leikið íslenskt sjónvarpsefni er reyndar áberandi sigursælt sem og leikararnir þar. Að sjálfsögðu eru þeir Jón Gnarr, Pétur Jóhann og Jörundur Ragnarsson tilnefnd- ir fyrir leik sinn í bæði Fangavakt- inni og Bjarnfreðarsyni en auk þeirra eru þeir Björn Hlynur Har- aldsson og Magnús Jónsson báðir tilnefndir fyrir leik sinn í sjón- varpsþáttum; Björn fyrir Hamar- inn en Magnús fyrir Rétt. Þær Ilmur Kristjánsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Margrét Helga Jóhannesdóttir eru einnig tilnefndar fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttum; Ilmur sem Ástríður, Jóhanna Vigdís fyrir frammistöðu sína í Rétti og svo auðvitað Margrét Helga sem Bjarnfreður í Fangavaktinni og Bjarnfreðarsyni. Auk þeirra er Laufey Elíasdóttir tilnefnd fyrir kvikmyndina Desember og Krist- björg Kjeld fyrir Mömmu Gógó. Sjónvarp í stað hvíta tjaldsins Í flokki meðleikara, sem áður voru kallaðir aukaleikarar, eru fulltrú- ar sjónvarpsþátta einnig áberandi. Nokkuð sérkennileg staða, eins og greint er frá annars staðar í blað- inu, er komin upp meðal leikkvenna því þar eru amman, dóttirin og barnabarnið meðal keppinauta; Herdís Þorvaldsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir eru tilnefndar fyrir leik sinn í Hamrinum og Tinna Gunnlaugsdóttir er tilnefnd fyrir hlutverk hórumömmunnar í Rétti. Guðrún Gísladóttir fær tilnefningu fyrir leik sinn í Desember og Þóra Karítas er tilnefnd fyrir frammi- stöðuna í Ástríði. Hjá körlunum er fangarnir úr Fangavaktinni áberandi; Björn Thors, Ólafur Darri og Gunn- ar Hansson fá allir tilnefningu auk þess sem Rúnar Freyr Gísla- son er tilnefndur fyrir Ástríði og Stefán Hallur Stefánsson fyrir Desember. Varla kemur það nokkrum á óvart að Ragnar Bragason skuli vera tilnefndur í flokki bestu leik- stjóra en hann fær verðuga sam- keppni frá íslenska kvikmynda- gerðarkónginum Friðriki Þór Friðrikssyni sem er tilnefndur fyrir Mömmu Gógó. Það vekur hins vegar athygli að þrátt fyrir að kvikmyndin Desember hafi feng- ið nokkrar tilnefningar er Hilm- ar Oddsson ekki tilnefndur sem leikstjóri. Þeir Friðrik og Ragnar keppa við þá Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason sem gerðu saman Draumalandið. Nýr flokk- ur lítur dagsins ljós, besta barna- efnið og þar eru Algjör Sveppi og leitin að Villa, Á uppleið, Latibær, Skoppa og Skrítla í bíó og Stund- in okkar tilnefnd. Sigurvegarnir verða síðan tilkynntir laugardag- inn 27.febrúar í Háskólabíó í beinni útsendingu Stöðvar 2. Ár Georgs, Daníels og Ólafs Kvikmyndin Bjarnfreðarson og sjónvarpsþáttaröðin Fangavaktin gnæfa yfir aðra í tilnefningum til Eddu-verðlaunanna í ár. Samanlagt hljóta þessi fyrirbæri átján tilnefningar. Mamma Gógó getur einnig vel við unað, átta tilnefningar alls. Leikarar úr sjónvarpsþáttum eru áberandi á listanum. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í Edduna þetta árið. FYRIRBÆRI Kvikmyndin um Georg Bjarnfreðarson og félaga hans, Ólaf Ragnar og Daníel, var mest sótt af þeim íslensku kvik- myndum sem frumsýndar voru á árinu. Því er það varla tilviljun að myndin og sjónvarpsþættirnir skuli hljóta flestar tilnefningar til Eddunnar. Bjarnfreðarson Leikstjóri: Ragnar Bragason Desember: Leikstjóri: Hilmar Oddsson Mamma Gógó Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson Kvikmynd ársins Björn Hlynur Haraldsson (Hamarinn) Jón Gnarr (Bjarnfreðarson/Fangavaktin) Jörundur Ragnarsson (Bjarnfreðarson/Fangavaktin) Pétur Jóhann Sigfússon (Bjarnfreðarson/Fangavaktin) Magnús Jónsson (Réttur) Leikari ársins í aðalhlutverki Ilmur Kristjánsdóttir (Ástríður) Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Réttur) Kristbjörg Kjeld (Mamma Gógó) Laufey Elíasdóttir (Desember) Margrét Helga Jóhannesdóttir (Bjarnfreðarson/ Fangavaktin) Leikkona ársins í aðalhlutverki Ragnar Bragason (Fangavaktin/Bjarnfreðarson) Friðrik Þór Friðriksson (Mamma Gógó) Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason (Drauma- landið) Leikstjóri ársins Björn Thors (Fangavaktin) Gunnar Hansson (Fangavaktin) Ólafur Darri Ólafsson (Fangavaktin) Rúnar Freyr Gíslason (Ástríður) Stefán Hallur Stefánsson (Desember) Meðleikari ársins Guðrún Gísladóttir (Desember) Herdís Þorvaldsdóttir (Hamarinn) Tinna Gunnlaugsdóttir (Réttur) Tinna Hrafnsdóttir (Hamarinn) Þóra Karítas Árnadóttir (Ástríður) Meðleikkona ársins Áramótaskaup Sjónvarpsins Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Ástríður Leikstjóri: Silja Hauksdóttir Fangavaktin Leikstjóri: Ragnar Bragason Hamarinn Leikstjóri: Reynir Lyngdal Réttur Leikstjóri: Sævar Guðmundsson Leikið sjónvarpsefni ársins Bogi Ágústsson Egill Helgason Þóra Arnórsdóttir Eva María Jónsdóttir Sölvi Tryggvason Sjónvarpsmaður ársins Algjör Sveppi og leitin að Villa Leikstjóri: Bragi Hinriksson Allt á uppleið Leikstjóri: Óskar Jónasson Latibær Leikstjórar: Magnús Scheving og Jonathan Judge Skoppa og Skrítla í bíó Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson Stundin okkar Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Björgvin Frans Gíslason Barnaefni ársins Enn meiri afsláttur á útsölunni! Laugavegi 7 101 Reykjavík Sími 561 6262 www.kisan.is Heimsþekkt vörumerki eins og Sonia Rykiel, Bonpoint, Isabel Marant , Orla Kiely og fleiri ... Opnunartími: mán - lau 11:00 - 18:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.