Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 14
14 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Boðskapur forseta Íslands í Icesave-málinu er þessi: Efnahagslegir hagsmunir þjóðarinnar eiga að víkja fyrir rétti hennar til að greiða atkvæði um þau mál sem honum sjálfum sýnist. Spurningin er: Felst lýðræðisbót í þessari afstöðu? Sumir segja að enn alvarlegri efnahagsþrengingar fylgi í kjölfar þess að Icesave-lögin verði felld, jafnvel greiðslufall ríkisins. Aðrir eru þeirrar skoðunar að Hollend- ingar og Bretar muni kikna í hnjá- liðunum þegar þeir sjá niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Enginn veit neitt með vissu um þetta. Hitt er víst að synjun leysir ekki málið. Lyktir deilumálsins fást ein- faldlega ekki með slíkri niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er kjarnaatriði þegar svara á spurn- ingunni hvort í þjóðaratkvæðinu felst lýðræðisumbót. Staðan er þessi: Forsetinn ber ekki ábyrgð á efnahagslegum afleiðingum af ákvörðun sinni. Hann fær rós í hnappagatið ef allt endar vel en er laus allra mála ef illa fer. Eftir eðli máls getur þjóð- in aldrei borið ábyrgð á niður- stöðum kosninga. Hún tekur bara afleiðingunum. Alþingi situr uppi með ábyrgð- ina. Ríkisstjórnin þarf ekki að víkja meðan hún nýtur stuðnings Alþingis. Af því leiðir að þjóðin fær ekki tækifæri til að kjósa fulltrúa á Alþingi að nýju til að fylgja eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðisins. Hér hefur það gerst að völd og ábyrgð hafa verið greind hvort frá öðru. Það er þverbrestur í lýðræð- isskipulaginu en ekki bót. Sam- staða um nýjan Icesave-samning gæti leitt þjóðina fram hjá þessum stjórnskipulegu ógöngum. Alveg óháð því hvaða afstöðu menn hafa til Icesave-samning- anna er ljóst að stjórnskipunar- reglurnar þarf að endurskoða eða framkvæma þær eins og ráð- gert var í öndverðu þannig að völd og ábyrgð fari saman. Réttmæt gagnrýni á Icesave má ekki leiða til hentistefnuviðhorfa gagnvart stjórnskipaninni. Hættulegt er að skilja ábyrgð frá valdi Fjármálaráðherra bar Icesave-lögin upp við for-seta í ríkisráði. Nokkrum dögum seinna synjaði for- seti um staðfestingu með ákvörð- un utan ríkisráðs. Þetta var brot á stjórnskipunarreglum. Fjármála- ráðherra gat af þessum sökum ekki komið fram andmælum á fundi ríkisráðs eins og starfsreglur þess mæla skýrt fyrir um. Í þessu tilviki var það bæði rétt- ur og skylda forsætisráðherra að taka fram fyrir hendur forseta til þess að tryggja stjórnskipu- lega rétta málsmeðferð. Forsætis- ráðherra kaus hins vegar að láta forseta fara á svig við réttar stjórnskipunarreglur. Það var þátt- ur í að breyta stjórnskipuninni án umræðu; trúlega í hugsunarleysi. Varðandi ábyrgð ráðherra í þessu tilliti verður að hafa hugfast að í sumum tilvikum blasir ábyrgð- in við eins og með staðfestingar- synjun utan ríkisráðs. Í öðrum til- vikum gerast hlutir af þessu tagi smám saman. Í raun sést þá ekki fyrr en um síðir hvað hefur gerst. Ráðherrar eru þar af leiðandi oft í erfiðri stöðu til að grípa inn í. Þannig háttaði til þegar forseti tók sæti í Þróunarráði Indlands. Þáver- andi utanríkisráðherra bar á því ábyrgð án þess að vita um ákvörð- unina. Ráðið er í tengslum við Teri-stofnunina sem komið hefur að jöklarannsóknum í Himalaja, sem nú eru viðkvæmar á alþjóða- vettvangi. Í þessu samhengi þarf einnig að hafa í huga að ákvarð- anaferill forsetaembættisins ógagnsær. Ákvarðanir eru tekn- ar bak við luktar dyr án lýðræð- islegra umræðna og verða stund- um að veruleika í samtölum sem aldrei er greint frá. Af sjálfu leiðir að lýðræðið veikist þegar völd fær- ast frá Alþingi til forsetans. Opin umræða er svo veigamikill þáttur lýðræðisins. Ábyrgð ráðherra Háskólamenn hafa sett fram rökstuddar skoð-anir um að embætti for-seta Íslands hafi breyst úr ópólitísku sameiningartákni í pólitíska valdastöðu. Staðfesting- arsynjun forsetans á Icesave-lög- unum og þátttaka hans í umræðum á alþjóðavettvangi er talin taka af allar efasemdir í því efni. Þetta merkir með öðrum orðum að í framkvæmd hafi orðið grund- vallarbreyting á íslenskri stjórn- skipan. Þessi breyting er ekki niðurstaða umræðna. Hún er því lítt yfirveguð og hefur ekki verið tekin af þjóðinni eins og ráð er fyrir gert með stjórnarskrár- breytingar. Stjórnarskráin er að sönnu nógu loðin til þess að slíkar grund- vallarbreyting- ar geta gerst án formlegra ákvarðana. Spurningin er: Hver ber ábyrgð á því? Forsetinn er frumkvöð- ullinn. Um það er ekki deilt. Ríkisstjórnirnar á valdatíma hans eiga hins vegar einnig hlut að máli með því að ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarathöfnum forsetans öðrum en lagasynjunum. Í mars árið 2006 hélt stjórnar- skrárnefnd ráðstefnu um for- setaembættið. Strax þá staðhæfði Svanur Kristjánsson prófess- or í erindi að núverandi forseti hefði með pólitísku áhrifavaldi sínu og í krafti embættisins lyft utanríkisstefnu landsins á nýtt stig með frumkvæði að útrásinni svokölluðu og þeirri einurð að gera hana að veruleika. Þessi kenning er ekki óumdeild. Engar athugasemdir voru þó gerð- ar af hálfu forsetaembættisins á þeim tíma. Fyrir nokkrum mánuð- um lét forsetinn þess hins vegar getið opinberlega að útrásarvík- ingar hafi misnotað forsetaemb- ættið. Það gat ekki gerst nema embættið færi með utanríkispól- itískt áhrifavald. Rannsóknar- nefnd Alþingis hlýtur að fjalla um þetta. Stjórnskipulagsbreyting án umræðu ÞORSTEINN PÁLSSON Í nýliðnum mánuði skrifaði Risto Penttilä, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Finnlands (EVA) og þingmaður á Evrópuþing- inu, lesendabréf í Financial Times sem beint var sérstak- lega til okkar, Íslendinga. Skrifin eru í fullri vinsemd og byggja á reynslu Finna. Risto samhryggist Íslendingum að vera í þeirri stöðu að þurfa í þjóðaratkvæðagreiðslu að gera upp á milli slæmra kosta, en kveðst um leið ekki ætla að bætast í hóp þeirra sem ítreka alvarlegar afleiðingar þess að borga ekki, alþjóðlega einangrun, gífurlegan lántökukostnað, vantraust og útskúfun alþjóðasamfélagsins. „Hefur einhver bent ykkur á hvað gæti unnist með því að segja: „Já, við borgum, hvað sem það kostar. Við borgum jafnvel þótt það hafi verið bankamenn okkar sem komu okkur í kreppu. Jafn- vel þótt vinir okkar í Evrópu hafi brugðist þegar við þörfnuðumst þeirra mest. Jafnvel þótt þeir hafi notað lög sem ætluð voru gegn hryðjuverkum til að fást við borðleggjandi gjaldþrotamál“? Hefur einhver reynt að gera það?“ spyr Risto Penttilä. Hann bendir á að Finnland hafi verið eina landið sem endur- greiddi Bandaríkjunum skuldir sem urðu til í fyrri heimsstyrj- öldinni, þrátt fyrir miklar raunir í kjölfar borgarastyrjaldar, sem kostaði tugþúsundir lífið, og nýfengins sjálfstæðis 1917 sem varð til þess að Rússar hættu að kaupa timbur af Finnum. Finnar reiddu sig á timbrið líkt og Íslendingar á fisk. „Samt héldum við áfram að borga af lánum okkar. Væntanlega vorum við dálítið vitlaus, eða enginn sagði okkur að aðrar þjóðir hefðu einfaldlega hætt að borga. En við höfðum skrifað undir samning og héldum því áfram að borga.“ Þjóðir heims sýndu Finnum stuðning í vetrarstríðinu 1939 þegar Stalín réðst inn í landið, þótt ekki hafi komið til hernaðar- stuðnings. Og þrátt fyrir að hafa stutt nasista gegn sameiginleg- um óvini í austri þá bauðst Finnlandi betri friðarsamningur en flestir höfðu búist við. Risto lýsir því svo hvernig Finnar stóðu á ný frammi fyrir kreppu fimmtíu árum síðar þegar fall Sovét- blokkarinnar þurrkaði út fimmtung af utanríkisviðskiptum lands- ins. „Bankakerfið hrundi og atvinnuleysi nálgaðist 20 prósent. Ríkisstjórnin var ekki viss um að bankar myndu halda áfram að lána peninga til Finnlands, en samt gerðu þeir það. Af hverju? Vegna þess að Finnland var eina landið sem greitt hafði skuldir sínar úr heimsstyrjöldinni fyrri. Vegna þess að Finnland hafði aldrei hlaupið frá skuldbindingum sínum.“ Í grein sinni bendir Risto Penttilä okkur á að hægt sé að endur- greiða gífurlegar skuldir, jafnvel þótt þær virðist í fyrstu óyfir- stíganlegar. Erfið staða neyddi Finna til að leita nýrra markaða og tækifæra með góðum árangri. Hinn lærdómurinn er að í erfiðri stöðu þarfnist lönd vina og þá sé auðveldara að finna ef orðsporið er gott. Ísland er ekki fyrsta Evrópuþjóðin sem gengur í gegnum þreng- ingar. Bæði Svíar og Finnar hafa upplifað hrun bankakerfis og það fyrir skömmu, á tíunda áratug síðustu aldar. Óskandi væri að við bærum gæfu til að læra af reynslu frænda okkar og legðum við hlustir þegar við fáum frá þeim hollráð. Risto Penttilä bendir réttilega á að heilindi skipti meira máli en skuldir sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Hvað getum við lært af reynslu Finna? Virði orðsporsins ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON SKRIFAR Erling Ásgeirsson 1.sæti Áfram traust og framsækin forysta í Garðabæ www.erlingasgeirsson.is Ég hvet allt sjálfstæðisfólk til þess að taka þátt í prófkjörinu í dag og stilla þannig upp öflugu sigurliði fyrir Garðabæ. Með góðri kveðju,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.