Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 77

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 6. febrúar 2010 49 „Ég hlakka til að fara í fangelsi,“ sagði rapparinn Lil Wayne í nýlegu viðtali. Lil Wayne var á dögunum dæmd- ur í árs fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð. Hann hefur afplánun í New York seinna í mánuðinum. „Enginn sem ég get talað við getur sagt mér hvernig er að vera í fang- elsi,“ sagði Wayne og bætti við að fangavistin hafi verið eitthvað sem átti að gerast. „Ég lít svo á að hlut- irnir gerist ekki að ástæðulausu. Ég veit að þetta er upplifun sem ég þarf á að halda þar sem Guð er að láta þetta gerast.“ Lil Wayne gaf nýlega út plötuna Rebirth, sem markar hans fyrstu spor í rokkbransanum – en hann hefur hingað til verið þekktur sem rappari. Platan hefur fengið slæma dóma og gagnrýnendur tala um slæma tilraun. Hann þarf ekki að velta sér upp úr því þar sem hann mun sitja inni næstu mánuði. Lil Wayne hlakkar til að fara í fangelsi Í STEININN Lil Wayne var gripinn með byssu og tekur afleið- ingunum. Bandaríska leikkonan Brittany Murphy lést af völdum lungna- bólgu í desem- ber síðastliðn- um. Hún hefði getað lifað af ef hún hefði farið til lækn- is í tæka tíð, samkvæmt úrskurði dán- arstjóra í Los Angeles. Járnskortur og blanda ýmissa lyfseðilsskyldra lyfja átti einnig þátt í dauða hennar. Eiginmaður Murphy, Simon Monjack, og móðir hennar sögðu að leikkonan hefði verið með ein- kenni flensu nokkrum dögum áður en hún lést. Murphy var þekktust fyrir leik sinn í myndunum Clueless, Sin City og 8 Mile. Einnig talaði hún fyrir Luanne Platter í yfir 200 þáttum af teiknimyndun- um King Of The Hill. Hún var aðeins 32 ára. Lést úr lungnabólgu BRITTANY MURPHY Leikkonan Charlize Theron stundar meiri líkamsrækt en áður vegna þess að hún óttast að hún sé að fitna með aldrinum. Theron, sem er 37 ára, leiðist samt fátt meira en líkamsrækt. Þrátt fyrir það æfir hún sig nokkrum sinnum í viku til að halda lín- unum í lagi. „Ég hef alltaf nóg fyrir stafni. Ég á hunda og mér finnst gaman að vera úti í náttúrunni,“ sagði Theron. „Ég er ekki nógu dugleg í ræktinni en ég verð að fara þangað. Ég er komin yfir þrítugt og brennslan í líkamanum hefur minnkað. Ég fitna ef ég borða og æfi ekki. Ég borða nefnilega mjög mikið.“ Leiðinlegt í ræktinni CHARLIZE THERON Conrad Murray, læknir popparans sáluga Michaels Jackson, verður að öllum líkindum ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Lögfræðing- ur Murrays segir að skjólstæðing- ur sinn sé staddur í Los Angeles og muni gefa sig fram við lög- reglu ef óskað verði eftir því. Ef Murray verður ákærður mun dóm- ari skera úr um hvort réttað verði yfir honum. Úrskurðað hefur verið að Jack- son hafi verið myrtur síðasta sumar og hefur dauði hans verið rekinn til deyfilyfja. Murray hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og segist ekki hafa útvegað lyf sem hafi valdið dauða poppar- ans. Fjöldi lyfja fannst í líkama Jacksons en talið er að hið sterka deyfilyf Propofol hafi átt stærstan þátt í dauða hans. Murray segist hafa gefið Jackson Propofol vegna svefnleysis sem hann þjáðist af. Læknir ákærður CONRAD MURRAY Læknir Michaels Jackson verður líklega ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Frances Bean Cobain, dóttir Kurts Cobain úr Nirvana og Courtney Love, kemur fram á sinni fyrstu plötu 30. mars. Plat- an nefnist Evelyn Evelyn frá samnefndri hljómsveit. Frances, sem er átján ára, syngur bak- raddir í laginu My Space ásamt hópi þekktra einstaklinga á borð við Weird Al Yankovich, Andrew W.K., Gerard Way úr hljómsveit- inni My Chemical Romance og rithöfundinum Neil Gaiman. Á meðal annarra laga á plötunni er ukulele-útgáfa af lagi Joy Division, Love Will Tear Us Apart. Frances á nýrri plötu MÆÐGUR Frances Bean Cobain og móðir henn- ar, Courtney Love. Leikkona ársins í aðalhlutverki Kristbjörg kjeld Kvikmyndataka ársins Ari Kristinsson Búningar ársins Helga I. Stefánsdóttir Tónlist ársins Hilmar Örn HIlmarsson Gervi ársins Fríða María Þórðardóttir Leikstjóri ársins Friðrik Þór Friðriksson Leikmynd ársins árni Páll Jóhannsson Kvikmynd ársins Mamma Gógo – Kvikmyndin Mamma Gógó er tilnefnd til 8 Edduverðlauna –
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.