Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.02.2010, Blaðsíða 12
 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR NORÐUR-ÍRLAND, AP Sambandssinnar og lýðveldissinnar á Norður- Írlandi náðu loks samkomulagi í gær eftir langvinnar deilur um framhald heimastjórnarinnar. Samkomulagið felur í sér að umsjón löggæslu og dómsmála verður færð frá bresku stjórninni til heimastjórnar Norður-Írlands ekki síðar en 12. apríl, eins og kaþólskir lýðveldissinnar höfðu gert kröfu um. Nýtt ráðuneyti dómsmála verður stofnað í þessu skyni á Norður-Írlandi. Í staðinn fengu sambandssinnar því framgengt að nýtt fyrir- komulag verður á skrúðgöngum Óraníumanna, sem báðir aðilar verða að koma sér saman um. Sinn Fein, flokkur kaþólskra, hafði hótað því að segja sig úr stjórn- inni, sem hefði hugsanlega orðið banabiti friðarsamkomulagsins frá 1998. - gb BÖRN Á HAÍTÍ Vinstra megin á myndinni er eitt af börnunum þrjátíu og þremur sem trúboðarnir reyndu að flytja úr landi án tilskilinna pappíra. NORDICPHOTOS/AFP HAÍTÍ, AP Tíu bandarískir trúboðar eiga yfir höfði sér ákærur vegna mannráns á Haítí, en þeir ætluðu að flytja 33 börn úr landi í síðustu viku. Lögmaður hópsins reynir að fá níu þeirra látna lausa, en segir leiðtoga hópsins bera alla ábyrgð. „Ég ætla að gera allt sem ég get til að ná þessum níu út. Þetta var barnaskapur í þeim. Þau höfðu ekki hugmynd um hvað var að gerast og þau vissu ekki að þau þyrftu opinbera pappíra til að fara yfir landamærin. Silsby vissi það,“ segir lögmaðurinn Edwin Coq en Laura Silsby er leiðtogi hópsins. Trúboðarnir hugðust flytja börnin yfir landamærin og til Dóminíska lýðveldisins, þar sem meiningin var að koma þeim fyrir á hóteli sem breyta átti í heimili fyrir munaðarlaus börn. Að minnsta kosti tvö af hverj- um þremur börnum úr hópnum eiga hins vegar foreldra á lífi. Flest koma þau úr þorpinu Celle- bas og sumir foreldranna segjast, í samtali við bandarísku fréttastof- una AP, hvorki hafa getað útveg- að börnum sínum mat né fatnað. Trúboðarnir hafi lofað að börnin fengju betra líf og góða menntun, en jafnframt hafi þeir lofað að ætt- ingjar fengju að heimsækja þau. Þessar frásagnir foreldranna stangast á við yfirlýsingar frá Silsby, sem segir að börnin hafi ýmist komið frá heimilum munað- arlausra barna sem eyðilögðust í jarðskjálftanum, eða fjarskyldir ættingjar hafi afhent þau. Aðstandendur trúboðanna tíu segjast sannfærðir um að þeir hafi haft gott eitt í huga. Silsby hófst handa strax síðasta sumar við að breyta umræddu hóteli í heimili fyrir munaðarlaus börn. Þegar jarðskjálftinn reið yfir 12. janúar fékk hún trúfélaga sína til að slást í för með sér til að ná í börnin, sem eru á aldrinum tveggja til tólf ára. Flestir eru trúboðarnir úr tveim- ur kirkjusöfnuðum baptista í Idaho í Bandaríkjunum. Hópurinn seg- ist hafa ætlað að bjarga munaðar- lausum börnum frá Haítí, þar sem munaðarlaus börn töldust vera 380 þúsund fyrir jarðskjálftann, sam- kvæmt tölum frá Barnahjálp Sam- einuðu þjóðanna. Trúboðarnir voru hverjir fyrir sig ákærðir fyrir bæði mannrán og aðild að glæp. Þeir gætu átt yfir höfði sér allt að fimmtán ár í fang- elsi. Dómari fær málið til meðferð- ar og úrskurðar er að vænta innan þriggja mánaða. gudsteinn@frettabladid.is Flest börnin áttu foreldra Bandarísku trúboðarnir, sem handteknir voru fyrir viku, hafa verið ákærðir fyrir mannrán á Haíti. Lög- maður hópsins segir leiðtoga hans bera alla ábyrgð. GERRY ADAMS Leiðtogi Sinn Fein blaðar í samningnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Samkomulag tókst á Norður-Írlandi: Stjórninni bjargað LAURA SILSBY Leiðtogi trúboðahópsins sem nú situr í fangelsi. NORDICPHOTOS/AFP Viltu verða dagforeldri í Reykjavík? Leitað er eftir dagforeldrum til starfa í Reykjavík, sérstaklega í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum og Laugardal. Allar upplýsingar fást hjá daggæsluráðgjöfum í þjónustumiðstöðvum borgarinnar í síma 411 1111 Næsta réttindanámskeið fyrir verðandi dag- foreldra verður haldið hjá Námsfl okkum Hafnarfjarðar 27. febrúar. Nánari upplýsingar í síma 664-5510/ 585-5860. VIÐVÖRUN Þið verðið að hakka verðið til að geta lakkað það aftur. Vera með afslátt og tilboð og útrýmingarsölu og lúðrasveit fyrir utan og svoleiðis. Það bara svínvirkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.