Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 74

Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 74
46 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Bandaríski plötusnúðurinn Lee Douglas þeytir skífum á Kaffi- barnum í kvöld. Douglas hefur verið duglegur við að færa gömul, sjaldheyrð diskólög í nýjan búning. Hann er í tveimur öðrum hljómsveitum sem heita TBD og Stallions. Með honum í fyrrnefndu sveitinni er Justin Vandervolgen úr hljómsveitinni !!! sem hefur spilað á Airwaves- hátíðinni. Andrew Hogge, eða Love- fingers, spilar með Douglas í Stallions. Það eru Haukur Heið- ar Leifsson og Símon Ragnar úr dúóinu FKNHNDSM sem skipu- leggja komu Douglas til lands- ins. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana. Douglas þeytir skífum LEE DOUGLAS Plötusnúðurinn Lee Douglas spilar á Kaffibarnum í kvöld. Plötusnúðarnir Óli Ofur, Fúsi Axfjörð og Bjarki Balrock hefja á sunnudagskvöld nýja tegund skemmtikvölda sem nefnast SunDaze. Fyrsta kvöldið verð- ur á Jacobsen og verður það í höndum Bjarka Balrock. „Mús- íkin á að vera áreynslulaus og í hæsta gæðaflokki. Hún þarf líka að búa yfir þeim eiginleikum að afrétta, gleðja og upplífga,“ segir Óli Ofur. „Með þessum kvöldum gefst tækifæri til að spila tónlist sem á það til að búa yfir töluvert meiri sál og hjarta en sú músík sem drífur helgargólfin áfram.“ Áreynslulaus danstónlist ÓLI OFUR Plötusnúðurinn er að byrja með skemmtikvöldin SunDaze ásamt Fúsa Axfjörð og Bjarka Balrock. Tónlistarmennirnir Arnar Már Friðriks- son og Birgir Sævarsson, sem vöktu fyrst athygli í þættinum Bandið hans Bubba, söfnuðu rúmri hálfri milljón króna á styrktartónleikum sem þeir héldu á Nasa 20. janúar. Þar komu fram Páll Óskar Hjálmtýsson, Stefán Hilmarsson og fleiri kunnir tónlistarmenn og voru áheyrend- ur fjögur hundruð. Allur ágóðinn rennur til fórnarlamba jarðskjálftans á Haítí í gegnum Rauða krossinn og afhentu þeir félagar samtökunum ávísun með þeirri upphæð í gær. „Við vissum ekki hverju við áttum von á. Þessir tónleikar voru skipulagðir á fimm sólarhringum. Miðað við að auglýs- ingar voru keyrðar í tvo daga og að þetta var fimm daga fyrirvari þá erum við mjög ánægðir með þessa upphæð,“ segir Arnar Már. Alls söfnuðust 451 þúsund á tónleikunum á Nasa og N1 bætti síðan við 100 þúsund krónum. „Ef tveir gæjar frá Íslandi ná hálfri milljón þá spyr maður sig hvað allur heimurinn gæti gert. Við Biggi erum rosalega stoltir af þessu.“ Þeir Arnar og Birgir feta þar með í fótspor heimsþekktra tónlistarmanna sem hafa lagt Haítí lið að undanförnu. Í Hollywood komu 75 stjörnur úr tónlist- ar- og kvikmyndaheiminum saman til að taka upp nýja útgáfu af laginu We Are The World sem kom upphaflega út árið 1985. Á meðal þeirra sem tóku þátt voru Pink, Santana, Celine Dion, Jeff Bridges, Vince Vaughn og Snoop Dogg. Allur ágóði lags- ins rennur til fórnarlamba jarðskjálftans en það verður fyrst spilað á sjónvarps- stöðinni NBC 12. febrúar. - fb Gáfu hálfa milljón til styrktar Haítí ÁVÍSUN AFHENT Arnar Már og Birgir afhenda Kristjáni Sturlusyni og Ottó Tynes hjá Rauða krossinum ávísun með peningaupphæðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > JUSTIN HEIÐRAÐUR Popparinn Justin Timberlake hefur verið útnefndur maður ársins af Hasty Pudding-leiklistarsamtökum Har- vard í Bandaríkjunum. Stutt er síðan leikkonan Anne Hatha- way var kjörin kona ársins af samtökunum. Kvikmyndaframleiðandinn og -leikstjórinn Michael Bay græddi mest allra í Hollywood á síðasta ári, samkvæmt rannsókn tíma- ritsins Vanity Fair, eða um sextán milljarða króna. Þrátt fyrir að minna fjármagn hafi flögrað um í Hollywood í fyrra en oft áður virðist það ekki hafa haft áhrif á toppana í kvikmyndaborginni. Samkvæmt útreikningum Van- ity Fair, sem eru byggðir á áætl- uðum tekjum, græddi Michael Bay um 9,6 milljarða króna á hasar- myndinni Transformers: Revenge of the Fallen, bæði fyrir leikstjórn sína og framleiðslu. Alls græddi myndin tæpa 107 milljarða í miða- sölu víðs vegar um heiminn, þrátt fyrir að hún hafi fengið misjafna dóma gagnrýnenda. Bay fékk einnig í vasann um 3,6 milljarða fyrir DVD-sölu myndarinnar og um 1,6 milljarða fyrir leikfanga- sölu og gjöld tengd höfundarrétti hans. Alls námu tekjur hans um 16 milljörðum bæði fyrir Trans- formers og önnur verkefni sem hann kom nálægt, sem eru ekki slæm árslaun hjá einum og sama manninum. Þeir ríkustu í Hollywood LEPJA EKKI DAUÐAN ÚR SKEL Þeir Michael Bay, Steven Spielberg, Roland Emmerich, James Cameron og Todd Philips eru ekki á neinum sultarlaunum í Hollywood. Þeir eru tekjuhæstu mennirnir í kvikmyndaborginni og geta leyft sér nánast hvað sem er þegar kemur að kvikmyndum. Daniel Radcliffe er síðan tekjuhæsti leikar- inn og skýtur mönnum á borð við Ben Stiller og Tom Hanks ref fyrir rass. Framleiðendur og leikstjórar eru einnig í næstu fjórum sætum á eftir Bay, eða þeir Steven Spielberg, Rol- and Emmerich, James Cameron og Todd Philips. Spielberg fékk tæpa 10,8 milljarða á síðasta ári, þar af um 2,5 milljarða fyrir að framleiða og leikstýra nýrri ævintýramynd um teiknimyndahetjuna Tinna sem kemur út á næsta ári. Emmerich græddi tæpa níu milljarða á stór- slysamyndinni 2012 sem var sýnd síðasta sumar en alls halaði hún inn tæpa 96 milljörðum króna. Cameron þénaði um 6,4 milljarða á stórmyndinni Avatar, sem er þegar orðin tekjuhæsta mynd allra tíma, og Todd Phillips fékk um 5,6 millj- arða í vasann fyrir hinn óvænta gamansmell The Hangover. Tekjuhæsti leikarinn á listanum var sjálfur Harry Potter, eða Dani- el Radcliffe, með svipaðar tekjur og Phillips, eða um 5,2 milljarða. Næstir á eftir honum komu leikar- arnir Ben Stiller og Tom Hanks. freyr@frettabladid.is Skólavörðustígur 2 101 Reykjavík S. 445 2020 www.birna.net ÚTSALA Opið lau. kl. 11–17 og sun. kl. 13–17 ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.