Fréttablaðið - 06.02.2010, Page 35
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Segja má að hrein tilviljun hafi
ráðið því að Lilja Steingrímsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur ákvað að
taka þátt í hjálparstarfi á Haítí.
„Ég er með öndunarjóga á mínum
vegum og var að kynna það í Rauða
krossinum um daginn. Þá barst það
í tal að ég væri frönskumælandi.
Mér var kippt inn á teppi og ég
slapp ekki út fyrr en ég var búin
að sækja um að fara,“ segir Lilja
glaðlega og er þakklát fyrir að geta
hjálpað til.
Hún er þó ekki óvön hjálparstarfi
því hún hefur tvisvar áður starfað
fyrir Rauða krossinn, í Taílandi og
Pakistan. „Það er nú langt síðan,“
segir hún og býst fastlega við að
aðstæðurnar verði mun verri á
Haítí. „Sjúkrahúsið sem ég vann
á þá var byggt á gömlum grunni
og þar kom fólk sem hafði stigið á
jarðsprengjur og verið skotið. Það
er allt annað en sá harmleikur sem
dunið hefur yfir Haítí. Þar hefur
fólk misst allar eigur sínar og
jafnvel stóran hluta fjölskyldunnar
líka. Kvölin er því bæði andleg og
líkamleg,“ áréttir hún.
Lilja flýgur af stað um miðjan
dag á morgun til New York og fer
þaðan til Santo Domingo. „Þaðan
förum við með einhverju farar-
tæki til Port-au-Prince. Það er svo
mikil örtröð á þessum litla flugvelli
í borginni að aðeins fjórar flugvél-
ar geta lent á klukkutíma og það er
upppantað næstu tvo mánuðina,“
segir hún.
Lilja verður í mánuð á Haítí og
er það talinn nógu langur tími fyrir
eina manneskju enda eru aðstæð-
ur erfiðar og vinnan mikil. „Rauði
krossinn fær um þúsund nýja sjúkl-
inga á dag og reynir að sinna þeim
eftir bestu getu,“ segir Lilja sem
mun starfa í tjaldsjúkrahúsi í einum
fátækasta hluta Port-au-Prince sem
fór einna verst í hamförunum.
Innt eftir því hvort hún kvíði
ferðalaginu segir hún það koma í
bylgjum. Hún hefur þó ekki haft
mikinn tíma til að velta því fyrir
sér enda var brottförin ákveðin
á miðvikudaginn var og ganga
þarf frá mörgu og undirbúa áður
en lagt er í hann. „Ég veit í raun
lítið hvað ég er að fara út í. Ég hef
fengið mikið af upplýsingum frá
Rauða krossinum og hlutirnir eru
vel skipulagðir af hans hálfu en
maður veit ekkert hvernig þetta
verður fyrr en komið er á staðinn,“
segir Lilja sem dags daglega starf-
ar á gjörgæsludeild Landspítala í
Fossvogi. Hún segir vinnuveitend-
ur sína dásamlega og lítið mál hafi
verið að fá leyfi til að fara.
Í dag heldur Lilja áfram að
undirbúa ferðina. Eitt af verkefn-
unum er að setja niður í töskurnar.
Hvað ætli maður þurfi að hafa með
sér í slíka ferð? „Ekki mjög mikið.
Bómullarföt, peysu, regnföt, góða
skó því það er víst ekki góð færð
í kringum vinnustaðinn, malaríu-
vörn, sólarvörn og slíkt því það er
heitt þarna suður frá,“ telur hún
upp og heldur að því búnu áfram
undirbúningi ferðarinnar.
solveig@frettabladid.is
Til hjálparstarfs á Haítí
Frönskukunnátta Lilju Steingrímsdóttur hjúkrunarfræðings varð til þess að hún var beðin um að halda
utan til að taka þátt í hjálparstarfi Rauða krossins á Haítí. Hún heldur af stað á morgun.
Lilja Steingrímsdóttir starfar sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún heldur til Haítí á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK verður með tónleika í Nor-
ræna húsinu í dag klukkan 14. Nemendur skólans flytja íslenska
tónlist eftir menn á borð við Atla Ingólfsson, Eyþór Stefánsson,
Ríkharð Örn Pálsson, Sigfús Einarsson, Karl O. Runólfsson, Pál
Ísólfsson og marga fleiri. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 10. febrúar n.k.
Bergstaðastræti 4 - 101 Reykjavík - Sími: 562-0335
Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar
lokar 1. mars næstkomandi
Útsala hefst mánudaginn 8. febrúar
40% afsláttur af öllum vörum
Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af dömu- og herraskóm frá Gabor.
Götuskór Öryggisskór Herra-sandalar
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
30% afsláttur af völdum
vörum. Skoðaðu tilboðin
inn á heimsíðu Lín Design
www.lindesign.is
Tilboðsdagar
hjá Lín Design
Þriðjudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447