Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 8
8 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
RANNSÓKN Atvinnulaus ungmenni sem voru
rúmlega fimm hundruð í desember, standa
fyrir utan kerfið að mörgu leyti, erfitt er
að nálgast þau og þar sem hefðbundnar for-
varnir, til að mynda gegn áfengi og vímu-
efnum, fara að miklu leyti fram í framhalds-
skólum þá ná þær ekki til hópsins.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri
Reykjavíkur, tóku til máls á fundinum og
kom fram í máli þeirra áhyggjur af stöðu
þessa hóps, sem fer stækkandi. „Þetta litla
samfélag þolir ekki atvinnuleysi í þessum
hópi,“ sagði Hanna Birna sem sagði mjög
mikilvægt að ná til sem flestra, svo það gerð-
ist ekki hér á landi sem gerðist til dæmis í
Finnlandi þar sem atvinnulaust ungt fólk rat-
aði ekki aftur á vinnumarkaðinn eða í skóla.
Menntamálaráðherra var sama sinnis
og sagði nauðsynlegt að rjúfa vítahringinn
sem ungmennin væru stödd í. Niðurstöð-
urnar væru einnig hvatning til foreldra til
að fylgjast með og rækta samband við börn
sín. Hún sagði og niðurstöðurnar kalla á að
hlúð verði að óhefðbundnum námsleiðum.
Einar Magnús Magnússon hjá Umferð-
arstofu sagði menn á þeim bæ mikið velta
fyrir sér hvernig ná eigi til þessa hóps í
forvörnum þar sem hann kemur við sögu í
mörgum alvarlegum umferðarslysum.
Menntamálaráðherra og borgarstjóri
bentu á að verið væri að vinna að verkefn-
um til að mynda hjá Vinnumálastofnun og
Reykjavíkurborg sem hefði það að mark-
miði að ná til þessa hóps.
- sbt
RANNSÓKN Viðamikil rannsókn á
ungu fólki á framhaldsskólaaldri
sem ekki stundar nám í framhalds-
skólum leiðir í ljós að sá hluti hóps-
ins sem er atvinnulaus hefur það
miklu verr en jafnaldrar þeirra
sem eru í einhverju námi eða
vinnu.
Rúmur þriðjungur hópsins sem
tók þátt í könnun Rannsóknar og
greiningar, rannsóknarstofnunar
við Háskólann í Reykjavík, var í
öðru námi en hefðbundnum fram-
haldsskólum og reyndist sá hluti
vera hliðstæður framhaldsskóla-
nemum, jafn vel staddur félags-
lega, í góðum tengslum við foreldra
sína og svo framvegis.
Hópurinn sem aðallega sagðist
stunda vinnu var í flestum spurn-
ingum mitt á milli þeirra atvinnu-
lausu og þeirra sem voru í námi,
en þó má nefna að ríflegur helm-
ingur þeirra reykti dag hvern, rétt
eins og atvinnulaus ungmenni.
Einungis sjö prósent námsfólks-
ins yngri en átján ára reykti dag-
lega, en nítján prósent þeirra eldri
en átján ára.
Atvinnulaus ungmenni skera
sig frá jafnöldrum sínum að mjög
mörgu leyti, stórum hluta þeirra
líður illa, segist vera einmana,
mikill minnihluti þeirra segir að
foreldrar viti af ferðum þeirra.
Stór hluti atvinnulausu ung-
mennanna hefur prófað hass og
önnur ólögleg vímuefni og sagði
Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor
við Háskólann í Reykjavík, sem
stýrði rannsókninni, ekki hafa séð
viðlíka tölur í rannsóknum undan-
farin ár en Rannsóknir og grein-
ing hafa gert margar rannsóknir á
lífsstíl ungmenna undanfarin ár.
Álfgeir benti á það á kynningar-
fundi um rannsóknina í gær að
atvinnulausu ungmennin stæðu
mjög höllum fæti, þau væru ein-
mana, þætti framtíðin vonlaus.
Það væri afar mikilvægt að ná
til þeirra. Nú um stundir væri
litla vinnu að fá og hætta á að þau
einangruðust væri veruleg, yrði
ekkert að gert. sigridur@frettabladid.is
1. Hvað vill eigandi hússins
við Barónsstíg sem áður hýsti
Heilsuverndarstöðina gera við
það?
2. Hvað á Höfðatún í Reykja-
vík að heita samkvæmt tillögu
skipulagsráðs borgarinnar?
3. Hvað ætlar Arion banki að
gera við Haga?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
FYLGST MEÐ Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri við kynn-
ingu rannsóknarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ríflega 60 % yngri en 18 segja andlega heilsu slæma
Hlutfall ungmenna sem meta andlega
heilsu sína sæmilega eða lélega.
Yngri en 18 ára
18 ára og eldri
70
60
50
40
30
20
10
0%
Aðallega
í námi
Aðallega
í vinnu
Atvinnulaus
Yngri en 18 ára
18 ára og eldri
50
40
30
20
10
0%
Aðallega
í námi
Aðallega
í vinnu
Atvinnulaus
Hlutfall ungmenna sem hafa notað
hass, einu sinni eða oftar.
Fyrir stuttu fékk ég fund með
stjórnendum Múrbúðarinnar til
að sýna hvernig fyrirtækið gæti
náð miklu meiri sölu með nútíma
marketing.
Best ég komi mér strax að
efninu: - öðrum eins hallærisgangi
í markaðs málum hef ég aldrei
kynnst og hjá Múrbúðinni. Samt
er ég búinn að vera í sjö ár í
bransanum og þar áður rak ég
grill sjoppu.
Ég hreinlega GAF Múrbúðinni
uppskritt að topp árangri í markaðs -
setningu. Vera með tilboð, útsölur,
vask-free, súperdíla, sölusprengjur
og verðhrun. Þannig smalar maður
liðinu inn í búðina. Ég benti þeim á
að hakka verðið og lakka það svo
aftur. Þá halda allir að þeir séu að
græða feitt.
Andlitið hreinlega datt af
mér þegar Múrbúðin sagði
nei takk við tilboði mínu um
markaðsráðgjöf. Í staðinn ætlar
Múrbúðin að halda sig við gamla
og myglaða hallærisganginn.
Einga afslætti, bara gott verð alltaf
og fyrir alla. Þeir
sögðust ekki vilja
hakka verðið til
að lakka það svo
aftur.
Ég spurði hvort
þeir ættu ekki skrújárn þarna í
búðinni til að herða eitthvað af
lausu skrúfunum í hausnum á
sér. Marketing gengur nefnilega
ekki út á að vera alltaf með gott
verð, heldur að láta fólk HALDA
að það sé að fá gott verð. Það
er geðveikt lame að hjakka bara
alltaf á sömu tuggunni, afslátt eða
gott verð, afslátt eða gott verð.
Vegna þess að einhverjir sáu
bílinn minn fyrir utan Múrbúð-
ina og hafa þekkt hann á einka-
númerinu, þá vil ég taka fram að ég
ber einga ábyrð á þessari hallæris-
legu markaðssetningu fyrir tækis-
ins. Einga.
Markús Láki Salómonsson
sexy@musko.is
Höfundur er forstjóri
Musko Marketing
Myglaðar auglýsingar
Múrbúðarinnar
A
U
G
L
Ý
SI
N
G
Lífsstíll og viðhorf ungmenna á
aldrinum 16 til 20 sem ekki er í
framhaldsskólum hefur ekki verið
kannaður á jafn umfangsmikinn
máta áður og gert var í rann-
sókn Rannsóknar og greiningar.
Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við
kennslu og lýðheilsudeild HR og
stjórnandi rannsóknarinnar, greindi
frá því í gær að mikið hefði verið
haft fyrir því að ná til sem flestra
úr hópnum. Fengust að lokum
svör frá tæplega 800 ungmenn-
um sem Rannsóknir og greining,
rannsóknarmiðstöð við Háskólann
í Reykjavík, hafa unnið úr. Það eru
um 56 prósent þeirra ungmenna
sem síðastliðið vor voru utan
hefðbundinna framhaldsskóla. Af
þeim sem tóku þátt í rannsókninni
sögðust tæp 35 prósent vera aðal-
lega í skóla, 42 prósent í vinnu en
23 prósent atvinnulaus. Fram kom
á fundinum að ef hefði náðst í alla
væri hlutur þeirra líklega hærri.
Niðurstöðurnar verða aðgengi-
legar á vef stofnunarinnar, öllum
áhugasömum til frekari nota.
ERFITT AÐ NÁ TIL HÓPSINS
Standa höllum fæti
Ungmennum á aldrinum sextán til tuttugu ára sem eru atvinnulaus líður verr
en jafnöldrum þeirra sem eru í námi. Þau reykja frekar en jafnaldrar þeirra,
neyta frekar vímuefna og stunda síður líkamsrækt svo fátt eitt sé nefnt.
Atvinnulausir á aldrinum 16 til 19 ára voru rúmlega fimm hundruð í desember:
Einangrun atvinnulausra ungmenna áhyggjuefni
ATVINNULEYSISÁTAK HINS HÚSSINS Ungu fólki án atvinnu í Reykjavík hefur meðal
annars staðið til boða að taka þátt í verkefni á vegum Hins hússins þar sem hug-
myndafræðin er sú að allir geti fundið hugmynum sínum farveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?