Fréttablaðið - 06.02.2010, Page 18

Fréttablaðið - 06.02.2010, Page 18
18 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Kristrún Heimisdóttir skrifar um Icesave Ísland stendur nú í þeim sporum að bæði Icesavelög I og II eru ógild að efni sínu þótt formlega séu þau gild. Þetta þýðir að samn- ingarnir sem Svavarsnefndin gerði eru sennilega sjálfkrafa niður fallnir. Ekki ber á inn- heimtuaðgerðum eða aðför að eignum af hálfu Bretlands eða Hollands eins og sumir óttuðust enda hafa þessi ríki ekki raunhæf önnur tæki til inn- heimtu meintrar skuldar Íslands en pól- itískar þvingunaraðgerðir sem þeir þess vegna hafa beitt af mikilli hörku frá því málið kom upp. Bretar og Hollendingar geta skilgreint þessa stöðu með margvíslegum hætti. Þeir tala um upplausn á Íslandi, óstöðug- leika í stjórnmálum og að Ísland sé ekki hæft til samninga en þeir gætu sjálfum sér um kennt. Sú harka sem Bretland sýndi Íslandi og bæði ríkin gengust fyrir innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins braut niður lýðræðislegt umboð og stofnan- ir í landi sem háði glímu á sama tíma við bankakreppu og gjaldmiðilshrun. Framganga þeirra í garð Íslands í októb- er og nóvember 2008, þegar afgreiðsla efnahagsáætlunar var látin bíða í á fimmtu viku, braut gegn grundvallar- reglum og tilgangi AGS og var atlaga að öryggi og velferð íslensks samfélags á viðkvæmustu stundu. Staðan er að fullveldishafinn út á við sem er ríkisstjórnin, verður að leysa milliríkjadeiluna en getur ekki gert það án fulltingis fullveldishafans inn á við, sem er Alþingi og undan þeim báðum verður sennilega stungið í þjóðaratkvæða greiðslu 6. mars. Þá flæk- ir enn málið að báðar mögulegar niður- stöður eru afleitar, jáið vegna þess að samþykki í þjóðaratkvæði myndi enn styrkja lögmæti samninga þannig að ógerlegt yrði að breyta síðar. Hvað gerist þá? Góðu fréttirnar eru að þá stendur eftir ályktun Alþingis frá 5. desember 2008 og samhljóða samkomu- lag sem allir deiluaðilar milliríkjadeil- unnar stóðu að ásamt Evrópusambandinu og voru jafn bundnir af, sem eru Brussel- viðmiðin svonefndu. Viðræður stjórn- ar og stjórnarandstöðu um sameinaða afstöðu út á við eru þannig ekki í lausu lofti heldur á skýrum grunni. Hvað eru Brusselviðmið? Þau eru sam- komulag um forsendur marghliða samn- ingaviðræðna Íslands, Bretlands, Hol- lands og Evrópusambandsins. Um þau samþykkti Alþingi ályktun um pólitíska samningaleið 5. desember 2008 og á þeim byggðist afgreiðsla efnahagsáætlunar Íslands í stjórn AGS undir lok nóvember 2008. Hér á eftir skýri ég nánar hvað í þeim fólst, hvernig þeim var fylgt eftir og hvernig ný samninganefnd lét efni þeirra niður falla frá febrúar 2009 með neikvæðum afleiðingum. Brusselviðmiðin binda bæði íslenska fullveldishafann út á við og fullveld- ishafann inn á við þannig t.d. að ef ný ríkisstjórn kæmi til mála eftir þjóðar- atkvæðagreiðslu þyrfti þingmeirihluta til þess að nema þau úr gildi með nýrri ályktun þingsins. Útilokað virðist að sá meirihluti sé fyrir hendi. Góðu fréttirnar eru einnig að samningarnir frá júní eru þannig gerðir að það er þjóðarhagur að þeir falli niður. Útgangspunktur þeirr- ar samningagerðar var rangur frá upp- hafi eins og ég vík nánar að hér á eftir. Aðstæður þýða að samningarnir eru nú þegar lifandi dauðir, afar fáir telja þá góða og þeir eru beinlínis háskalegir ofskuldsettu smærra ríki langt fram í 21. öldina vegna varnarleysis Íslands innan þeirra og óviðunandi veikrar réttarstöðu. Nægir að nefna algjörlega haldlaus end- urskoðunarákvæði því til staðfestingar. Þetta er staða sem Ísland má ekki með nokkru móti selja sig í. Ríkisstjórnin á að opna málið í heild. Því fyrr því betra. Ódrepandi Brusselviðmið Eftir ályktun Alþingis í desember 2008 var það stærsta einstaka hagsmunamál þjóðarinnar af öllum á þeim tíma, að fylgja Brussel-viðmiðunum eftir sam- kvæmt orðalagi sínu, en Ísland vissi t.d. að breska fjármálaráðuneytið taldi Bret- land hafa samið af sér með viðmiðunum. Með þeim voru Bretar enda búnir að samþykkja marghliða ferli, þar sem taka skyldi tillit til sérstakra og fordæmis- lausra aðstæðna á Íslandi og nauðsynjar þess að endurreisa efnahagslíf lands- ins. Þeir voru búnir að samþykkja texta sem fól ekki í sér neitt afsal réttarstöðu fyrir Ísland, ekki viðurkenningu á greiðsluskyldu samkvæmt lögum heldur einungis að EES- réttur gilti eins á Íslandi og hann gerir alls staðar á innri mark- aðnum. Og þeir voru búnir að samþykkja aðild ESB að málinu. Til að klóra í bakkann beittu þeir sér til að breyta AGS-yfirlýsingu Íslands en tókst ekki að breyta henni þannig að það skuldbindi Ísland umfram Brussel-viðmiðin – í yfirlýsingunni vísar Ísland til þess samningaferlis sem hafið sé þá, þ.e. Brusselviðmiðanna. Í júní 2009, viku eftir að undirritaðir höfðu verið Icesavesamningar með hraði undir miðnætti á föstudagskvöldi án þess að ríkisstjórn, þingflokkar eða Alþingi fengju að sjá þá eða vita að formleg og óafturkræf undirritun yrði svo skjótt, var ég gestur Hallgríms Thorsteinsson- ar í Vikulokaþætti á Rás 1 sem tileinkað- ur var Icesave. Með mér í þættinum var m.a. Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoð- armaður formanns samninganefndar. Þá höfðu samningarnir ekki enn verið birtir þingi og þjóð, að sögn fjármálaráðherra vegna þess að þeir væru „einkaréttar- legir samningar sem trúnaður ríkti um við Breta og Hollendinga“. Nokkru síðar var ég frummælandi á ríflega hundrað manna opnum hitafundi Ungra jafnað- armanna um Icesave ásamt Indriða Þor- lákssyni, þá ráðuneytisstjóra í fjármála- ráðuneytinu, en það sama kvöld voru samningarnir loksins birtir og varð inni- hald þeirra mörgum þungt áfall, þar á meðal þeirri sem þetta ritar. Bæði í útvarpsþættinum og á opna fundinum var auðheyrt að hvorki aðstoðarmaðurinn né ráðuneytisstjór- inn í fjármálaráðuneytinu höfðu tekið Brusselviðmiðin alvarlega og þekktu varla innihald þeirra né skildu mikil- vægi þess samningaferlis – pólitísku samningaleiðar – sem Alþingi ákvað að veita framkvæmdavaldinu umboð til með þingsályktun 5. desember 2008. Þegar Alþingi allt náði friðsamlegu samstarfi sumarið 2009 um gerð fyrirvara við Icesavesamningana urðu Brussel-viðmið- in ein meginforsenda þessa starfs til að rétta hlut Íslands og bæta samningana þó að þeirra hafi hvorki verið getið í erind- isbréfi í febrúar né samningunum í júní. Þeirra er getið í Icesavelögum II en sú tilvísun er því miður til málamynda. „Ný nálgun“ Svavarsnefndarinnar Á vefsíðunni island.is er að finna erindis- bréf nýrrar samninganefndar sem fjár- málaráðherra gaf út 28. febrúar 2009 sem sýnir hvernig Icesavemálið var þar og þá tekið úr marghliða pólitísku samn- ingaferli og umbreytt í tvíhliða lána- samning eingöngu. Það skýrir margt að á island.is er yfirskrift skjalsins: „Ný nálgun – erindisbréf samninganefndar um gjaldeyrislán.“ Margir töldu að skip- un reynds og öflugs sendiherra væri til marks um alþjóðapólitískt eðli samninga- leiðarinnar, en hið gagnstæða kemur í ljós þegar gáð er að því hvernig ráðu- neytið lagði verkefnið upp og ber frem- ur ábyrgð á en sendiherrann. Í erindis- bréfinu, sem varð ekki opinbert fyrr en í júní 2009, er sú óskiljanlega for- senda lögð til grundvallar að Ísland sé þá þegar búið að taka lán enda þótt opin- bert og augljóst hafi verið að Bretar og Hollendingar ákváðu einhliða að greiða innistæðu eigendum svo sem skjalfest er í viðaukasamningum frá júní. Indriði Þor- láksson hefur svarað því til í fjölmiðlum að Ísland hafi „í raun tekið lán í október“. Sú túlkun er svo algjörlega einstæð að ég hef hvergi fundið hana rökstudda í gögn- um málsins. Í henni felst bæði ótrúlegt afsal réttarstöðu og sjálfsákvörðunar- réttar Íslands og illbærileg viðurkenn- ing á réttmæti kúgunaraðferða Breta og Hollendinga. Munum að samningarnir leggja allan kostnað á Ísland meðan Bretar og Hollendingar hafa fjárhags- legan hagnað af þeim. Höfum í huga að á þessum grunni greiða Íslendingar vexti til ríkjanna tveggja frá 1. janúar 2009 að telja sem nema ríflega 20 millj- örðum íslenskra króna og var þó enginn samningur um lán undirritaður fyrr en í byrjun júní (og er ekki enn kominn á). Ef samráð við Alþingi hefði eitthvert verið hefði hvorki þetta ákvæði samn- inganna né mörg önnur nokkurn tíma komist til íslensks samþykkis enda margir þingmenn vel að sér í málinu eftir þingumræður og ályktun Alþingis. Fjárskuld bindingar höfðu verið með öllu ófrágengnar alveg eins og lánsvilyrði Norðurlandanna, Póllands og Rússlands voru ófrágengin og enduðu misjafnlega. Í erindisbréfi Svavarsnefndarinnar, sem varð ekki opinbert fyrr en í júní 2009, er hins vegar hvergi minnst á Brussel-viðmiðin og efni þeirra virt að vettugi. Útgangspunktur samninga af nefndarinnar hálfu var þannig óhjá- kvæmilega Íslandi meira í óhag en efni stóðu til. Að auki var aðild ESB að samn- ingaferlinu látin niður falla sem og teng- ingin við framgang efnahagsáætlunar- innar innan AGS svo sem ég lýsi nánar hér á eftir. Ávinningur Íslands af pólitískri samningaleið Markmið Íslands eftir ályktun Alþingis meðan ég þekkti til innanfrá voru þjóð- réttarlegir samningar um fjölþætta pól- itíska lausn deilunnar. Ísland varð að sækja tryggingu um lífvænleg efnahags- leg skilyrði til framtíðar í samstarfi við alþjóðastofnanir og nágranna. Einfald- ir einkaréttarlegir lánasamningar voru hins vegar óásættanleg leið með öllu fyrir Ísland. Óleyst deila væri skárri staða en einkaréttarlegir lánasamningar eingöngu. Vegna alls þessa og óásættanlegra kjara rifti ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks viljayfirlýsingu við Holland sem gerð var í bráðræði 11. október 2008, hafnaði því að gera vilja- yfirlýsingu við Bretland, hafnaði hlut- drægri laganefnd ESB og lét ekki undan gífur legum þrýstingi um að borga fyrr en tryggð væri pólitík viðspyrna sem landið gæti nýtt sem voru Brusselvið- miðin. Sú niðurstaða um aðkomu þriðja aðila ESB, enga viðurkenningu greiðslu- skyldu heldur einungis forsendunnar um einsleitni réttarkerfis innri markað- ar Evrópu, um tillit til fordæmislausra aðstæðna á Íslandi og nauðsyn endur- reisnar efnahagslífsins og trygging þess að efnahagsáætlun Íslands hlyti loks- ins afgreiðslu í stjórn AGS. Á móti kom að Ísland lýsti yfir í alþjóðlegri frétta- tilkynningu að landið ábyrgðist að lág- markstrygging upp á ríflega 20 þús- und evrur yrði greidd hverjum hinna þúsunda innistæðueigenda til bjargar trúverðugleika kerfisins en hvernig það yrði gert yrði samið um á grundvelli Brussel-viðmiðanna. Út úr bóndabeygju nágranna og alþjóðastofnana sem hertist um Ísland sem smærra ríki í október og nóvember 2008 var engin leið að komast nema með pólitískum leiðum byggðum á lögfræði- legri málafylgju og hagfræðilegri yfir- sýn. Fjármálaráðuneyti Bretlands og Hollands vildu beita pólitískum þvingun- araðgerðum til að knýja þyngstu greiðsl- ur út úr Íslendingum, pólitíska samn- ingaleiðin varð að vera marghliða til að brjóta þá stöðu upp. Skyndilega og án samráðs við Alþingi var hins vegar í júní undirritaður hefð- bundinn, hreinn einkaréttarlegur lána- samningur við Bretland og Holland. Furðu vakti að sú undirritun Íslands var ekki nýtt til að skuldbinda gagnaðila til að aflétta þvingunaraðgerðum þannig að Bretar og Hollendingar yrðu bundnir af því að tefja ekki meir í stjórn AGS. Þegar allt varð stopp í byrjun ágúst 2009 kom það fjármálaráðherra bersýnilega í opna skjöldu. Bretar og Hollendingar skrifuðu samn- ingstextana og yfir honum ráða einungis ensk lög og enskir dómstólar, þar kemst enginn þjóðaréttur að og engin sjónar- mið önnur er fjármuna- og kröfurétt- ar. Engin lögfræðileg eða hagfræðileg greining á forsendum samninganna lá fyrir af hálfu Íslendinga þegar samn- ingarnir komu undirritaðir til þingsins. Í viðtali lét formaður samninganefndar þess beinlínis getið að á lögfræðingum hefði nefndin ekki þurft að halda. Hvernig hvarf skuldbinding ESB? Embættismannafundur var haldinn með þátttöku fulltrúa ESB í Haag í framhaldi af samþykkt ályktunar Alþingis í byrjun desember 2008 og sama dag átti utan- ríkisráðherra Íslands fjölda funda í Helsinki með starfsbræðrum um fyrir- komulag aðkomu ESB, skuldaþol Íslands, hugsan legar breytingar á Evrusamstarfi, fjármögnunarmöguleika, skilmála og kjör vegna innistæðutrygginga. Átti hún langa fundi með utanríkisráðherrum Frakklands, Spánar, Þýskalands, Hollands og Bretlands auk félaga sinna frá Norðurlöndum og flugvélarfund með Karel Schwarzenberg utanríkisráðherra Tékklands á leið frá Osló til Helsinki í þotu á vegum norsku ríkisstjórnarinnar. Að öllum þessum fundum loknum var samdóma álit allra sem að komu að vel- vilji innan ESB væri meiri en við höfðum vænst og andrúmsloftið hefði breyst til batnaðar. Íslendingar vildu fylgja form- legu marghliða ferli fast eftir en um leið töldu allir að tíminn myndi vinna með Íslandi, ógnin af allsherjarhruni banka- kerfa í Evrópu og víðar, sem hafði haft gríðarleg áhrif á hörkuna sem Íslandi var sýnd, var í rénun. Þetta var einnig ábend- ing sumra af evrópsku ráðherrunum. Af hverju kom ESB ekki neitt að samn- ingunum frá júní 2009? Staðreyndin er að fjármálaráðherra hafði aldrei samband til Brussel. Því var ekki fylgt eftir sem þó stóð svart á hvítu í Brussel-viðmiðun- um og ályktun Alþingis. Ef samráð við þingflokka hefði eitthvert verið hefði ráð- herra verið bent á efni umboðs síns frá Alþingi. Hvernig var samningaferlið þá? Á opnum fundi Ungra jafnaðarmanna í júní var samningaferlinu lýst sem alls óformlegu, engir formlegir samninga- fundir hefðu verið haldnir og miklum tíma varið til að sannfæra Hollendinga og Breta um samningsvilja Íslendinga. Ljóst er að andstaða VG við pólitíska samn- ingaleið og Brusselviðmið voru alþekkt meðal annarra ríkja þegar flokkurinn tók málið í sínar hendur í febrúar 2008 en á hinn bóginn mælti stjórnarsáttmál- inn fyrir um samninga um Icesave. Í stað þess að skipta opið og heiðarlega um skoðun og kynna nýjan samningsvilja sinn fyrir ríkisstjórnum á Norðurlöndum, framkvæmdastjórn AGS og Evrópusam- bandinu fór allt fram í leyni hér heima og erlendum samskiptum var haldið á lægri stigum embættismanna. Ekki er vitað til þess að fjármálaráðherra hafi átt fundi með erlendum ráðherrum um Icesave fyrr en í september 2009. Þá voru liðnir sjö mánuðir frá því hann tók við málinu og Alþingi búið að vinna að fyrirvörum í þrjá mánuði samfleytt. Aftur á rétta braut Ísland má ekki gera sjálfu sér að axla byrðarnar hljóðalaust. Eva Joly hefur réttilega bent Íslendingum á að þeir séu ekki einstök glæpaþjóð heldur hafi íslenskir bankar og viðskiptajöfrar verið hluti af alþjóðlegu fjármálakerfi sem brokkar áfram óbreytt þrátt fyrir ham- farir haustsins 2008. Formaður samn- inganefndar sagði hins vegar í blaða- viðtali um samningsniðurstöðuna í júní 2009 að Ísland væri „lamb Guðs sem bæri burt heimsins syndir“. Sú trú er, þegar að er gáð, fullkomlega ábyrgðar- laus gagnvart bæði alþjóðasamfélaginu og Íslandi – að það sé Íslands að taka að sér að grafa syndina hjá sér eins og hvern annan kjarnorkuúrgang svo að voldugri ríki a.m.k. jafn bersyndug taki enga ábyrgð er auðvitað trygging þess að enginn læri neitt. Mikið hefur breyst á rúmu einu ári. Ég hef sjálf á langri leið málsins oft talið upp vandamálin við óvissuna um Icesave á opinberum vettvangi, en nú er svo komið að Icesave er hluti af stærra við- fangsefni sem er ofskuldsetning lands- ins. Þorvaldur Gylfason og Ólafur Ísleifs- son hafa báðir réttilega bent á að staða efnahagsáætlunar Íslands og AGS hefur hríðversnað á árinu 2009. Ísland þarf að víkka sjónarhornið af þeim sökum. Þeir fjölmörgu málsmetandi aðilar í öðrum löndum sem á síðustu vikum hafa tekið undir málstað Íslands skilja allir þetta samhengi og eru mikilvægir bandamenn. Það er ekkert í boði nema samstaða Alþingis út á við um marghliða samn- ingaviðræður helst með aðkomu þriðja aðila með heildarmyndina á samninga- borðinu. Sömu grundvallaratriði Brussel- viðmiðanna eiga enn við þótt staða efna- hagsmála sé verri en vænst var. Fjórtán mánuðum eftir að Alþingi samþykkti þingsályktun um pólitíska samningaleið erum við komin aftur á þá réttu braut, sem betur fer. Fundur forsætisráðherra með Barroso í Brussel gaf góð fyrirheit. Norðmenn eru komnir í sama lið og Fær- eyingar. Það eru góðar fréttir. Ísland verður að sanna sig fyrir sjálfu sér og öðrum á réttum forsendum. Höfundur var aðstoðarkona utanríkisráðherra 2007 til 2009 og lögfræðilegur ráðgjafi félagsmála- ráðherra 2009 til 2010. Er nú sjálfstætt starfandi lögfræðingur og ber alfarið sjálf ábyrgð á efni greinarinnar. Góðar fréttir af Icesave KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR Staðan er að fullveldishafinn út á við sem er ríkisstjórnin, verður að leysa milliríkjadeiluna en getur ekki gert það án fulltingis fullveldishafans inn á við, sem er Alþingi og undan þeim báðum verður sennilega verður stungið í þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.