Fréttablaðið - 06.02.2010, Page 37
LAUGARDAGUR 6. febrúar 2010 3
Verslunin Ísfólkið-ísbúðin okkar í
Spönginni í Grafarvogi hefur verið
opin í nokkra daga en um helgina
verða opnunartilboð og annað húll-
umhæ. Hjónin Jósep Grímsson og
Regína Ómarsdóttir eru eigendur
búðarinnar en þetta er frumraun
þeirra í ísbúðarrekstri. „Við vild-
um fara varlega af stað enda hefur
hvorugt okkar komið nálægt svona
rekstri. Við auglýstum lítið sem
ekkert áður en við tókum úr lás síð-
astliðinn sunnudag en viðtökurn-
ar hafa verið framar vonum. Hér í
þessu átján þúsund manna hverfi
hefur aldrei verið alvöru ísbúð og
er ljóst að íbúar eru ánægðir með
framtakið,“ segir Jósep.
Jósep og Regína leggja leið sína í
Spöngina á hverjum degi og höfðu
lengi horft á húsnæðið þar sem
ÁTVR var áður til húsa standa
autt. „Þegar ég missti vinnuna í
vetur sem sölu- og markaðsstjóri
hjá Ofnasmiðjunni með fimm börn
á heimilinu rann á okkur eitthvað
brjálæði og hófust samninga-
umleitanir við húseigandann.“
Búðin var standsett á 28 dögum
og þó hún sé öll hin glæsilegasta
segjast þau hjónin hafa reynt
að stíga varlega til jarðar. „Þótt
afgreiðsluborðið, sem er kolsvart
með glansandi plexí-plötum, líti út
fyrir að kosta milljón þá er raun-
in sú að ég smíðaði það ásamt vini
mínum með umtalsvert minni til-
kostnaði. Þá erum við með mynd-
ir á veggjunum af fjölskyldunni
að borða ís og reynum að hafa
umhverfið persónulegt og hlýlegt
en auk íssins verður hægt að fá
sér kaffi, heimabakað bakkelsi og
smurbrauð á staðnum.“
Jósep og Regínu langar sérstak-
lega að bjóða þingmenn velkomna
í búðina um helgina til að sýna
þeim að enn sé framtakshugur í
fólki. „Tveir þeirra, þeir Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson og Guðlaugur
Þór Þórðarson, búa í hverfinu og
ætti þeim nú að renna blóðið til
skyldunnar,“ segir Jósep og hlær.
Samvinnan hjá þeim hjónum
hefur gengið vonum framar en það
eina sem þau gátu ekki komið sér
saman um var nafnið á búðinni.
„Ég vildi láta hana heita Ísfólkið
en Regína vildi Ísbúðin okkar og
varð lendingin sú að skeyta þessu
saman.“ Ísfólkið hefur eflaust tvö-
falda merkingu í huga margra og
þá sérstaklega þeirra sem hafa
spænt í sig bækur Margit Sand-
emo um hina töfrum gæddu Ísfólk-
sætt. Höfuð ætarinnar, Þengill,
leikur þar stórt hlutverk og þegar
ljósmyndari Fréttablaðsins mætti
á staðinn vildi svo til að Þeng-
ill nokkur Ólafsson var einmitt á
staðnum. Hann fékk að sjálfsögðu
ókeypis ís. vera@frettabladid.is
Fyrsta ísbúðin í Grafarvogi
Um helgina verður formleg opnun á fyrstu ísbúðinni í Grafarvogi en hún hefur fengið nafnið Ísfólkið-ís-
búðin okkar. Nafnið hefur eflaust tvöfalda merkingu í huga sumra og er Þengill Ólafsson einn þeirra.
Regína gefur Þengli Ólafssyni að smakka Ísfólksís en hann var mættur til að kynna sér nýja staðinn. Jósep, eiginmaður og með-
eigandi Regínu, náðist ekki á mynd enda önnum kafinn við að afgreiða ísþyrsta Grafarvogsbúa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Æskulýðsnefnd hestamanna-
félagsins Fáks stendur fyrir
hesta nammigerðardegi á
morgun.
„Við stöndum fyrir þessari uppá-
komu til að skemmta hestafólki
framtíðarinnar. Krökkunum finnst
þetta voða mikið sport,“ segir
Bergljót Rist, sem situr í æsku-
lýðsnefnd Hestamannafélagsins
Fáks. Nefndin stendur fyrir
hestanammigerðardegi á morgun
annað árið í röð.
Börn sem eru skráð félagar í
Fáki geta mætt í félagsheimilið og
búið til bollur handa hestum. Boll-
urnar eru búnar til úr hráefni sem
félagið útvegar, eins og til dæmis
höfrum, vatni og fleiru. Nammi-
gerðarfólkið tekur svo bollurnar
heim með sér og eldar þær. Félag-
ið hefur einnig fest kaup á litl-
um boxum sem krakkarnir geta
svo skreytt, málað á þau myndir,
sett á þær límmiða, glimmer,
slaufur, borða og þar fram eftir
götunum.
„Nammið er hugsað sem verð-
laun fyrir hestana,“ segir Berg-
ljót. Ef þeir hafa gert eitthvað vel
þá er kjörið að verðlauna þá með
smá nammi endrum og eins. Boxin
sem krakkarnir skreyta verða per-
sónuleg og flott og geta nýst undir
eitthvað annað í framtíðinni, til
dæmis kamba eða eitthvað slíkt.“
Bergljót segir mikinn áhuga á
hestaíþróttum hjá ungu fólki í dag.
„Það er dálítið magnað að geta
iðkað svona sveitasport á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er líka mjög
skemmtilegt hvernig hestarnir
brúa kynslóðabilin. Krakkar geta
auðveldlega farið á hestbak með
ömmu sinni, en þeir fá ekki ömmu
með sér út í handbolta svo glatt,“
segir Bergljót Rist.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið er að finna á www.fakur.
is. - kg
Búa til hestanammi
Berljót Rist segir margt ungt fólk hafa áhuga á hestaíþróttum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skákíþróttin á auknu
fylgi að fagna hjá
ungu kynslóðinni og
stúlkum hefur fjölgað
mjög í greininni.
Einstaklingskeppni
Íslandsmóts stúlkna
í skák verður haldin í
dag í Grunnskólanum
í Borgarnesi og hefst
hún klukkan 13. Á
mótinu keppa stúlkur
á grunnskólaaldri.
Íslandsmót
grunnskóla-
sveita í
stúlknaflokki
fer síðan
fram á sunnu-
dag í Salaskóla
í Kópavogi.
Mótið hefst
klukkan
14.
www.skessu-
horn.is
MÖGNUÐ ÚTSALA
Allt að 70%
Kjóll kr. 9.900
Kjóll kr. 14.900
Leggings kr. 3.990
Ermar kr. 3.990
Laugavegi 178 - Sími: 551 2070
Sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
VIÐ HÆTTUM MEÐ SUNDFATNAÐ
OG ÞVÍ ER HANN Á HÁLFVIRÐI
teg. Pina Colada - BH áður kr. 6.850,-
nú kr. 3.425,- buxur áður kr. 3.990,-
nú kr. 1.995,- ATH. AÐ MESTU BARA
STÓRAR SKÁLASTÆRÐIR.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Þriðjudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447