Fréttablaðið - 06.02.2010, Side 64
36 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
RONALD REAGAN
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Fólk sem hefur frelsi til að
kjósa kýs alltaf frið.“
Ronald Wilson Reagan (1911–
2004) var bandarískur leik-
ari og síðar forseti Bandaríkj-
anna frá 1981 til 1989. Hann
var þekktur fyrir andstöðu
sína við kommúnisma, sem
lýsti sér í harðri afstöðu gegn
Sovétríkjunum.
MERKISATBURÐIR
1643 Abel Tasman, hollenskur
landkönnuður, finnur
Fídjieyjar.
1658 Sænski herinn ræðst inn í
Danmörku yfir Eyrarsund
á ís.
1819 Borgin Singapúr hefur
uppbyggingu sína.
1826 Timburstofan á Möðru-
völlum í Hörgárdal brenn-
ur.
1936 Vetrarólympíuleikarnir
hefjast í Garmisch-Par-
tenkirchen í Þýskalandi.
1948 Fyrsti aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, Trygve Lie,
kemur til landsins.
1987 Fjölbrautaskóli Vestur-
lands á Akranesi stofnað-
ur.
1988 Alfred Jolson vígður bisk-
up kaþólskra á Íslandi.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstrisinn-
aður stjórnmálaflokkur á Íslandi sem var stofnað-
ur á þessum degi árið 1999.
Aðdragandinn að stofnun flokksins var sá að
nokkrir þingmenn úr Alþýðubandalaginu vildu
ekkki ganga til liðs við Samfylkinguna þegar hún
var stofnuð. Þeir settu því saman eigin stjórn-
málaflokk undir fyrrnefndu heiti og buðu fyrst
fram í kosningum til Alþingis árið 1999 og fengu
þá sex menn kjörna á þing. Fylgi flokksins jókst
mikið í alþingiskosningunum árið 2007, þegar
flokkurinnn fékk níu þingmenn kjörna. Tveimur
árum síðar fékk hann fjórtán kosna á þing.
Flokkurinn situr nú í ríkisstjórn með Sam-
fylkingunni. Steingrímur J. Sigfússon er for-
maður flokksins og jafnframt fjármálaráðherra
í ríkisstjórn Íslands. Katrín Jakobsdóttir er
varaformaður flokksins og mennta- og menning-
armálaráðherra í ríkisstjórn Íslands.
ÞETTA GERÐIST: 6. FEBRÚAR 1999
Nýr vinstriflokkur stofnaður
„Ég sit hér undir húsvegg í Ármóti og
læt sólina verma mig,“ sagði Hafliði
Halldórsson hestamaður þegar slegið
var á þráðinn til hans í vikunni. Til-
efnið er fimmtugsafmælið sem stendur
fyrir dyrum á morgun, sunnudag. „Ég
ætlaði nú reyndar að láta mig hverfa í
einn dag til Grænlands því þangað hef
ég aldrei komið en var hálf neyddur
til að vera heima,“ segir hann glettinn
en bætir við að hann ætli ekki að taka
á móti gestum heldur halda upp á af-
mælið með fjölskyldu sinni. Og verð-
ur gott í matinn? „Já, það verður villi-
bráð, hann Úlfar Finnbjörnsson kokkur
ætlar að matreiða fyrir okkur,“ segir
Hafliði sem er sjálfur veiðimaður og
þekktur sem skemmtilegur fararstjóri
í veiðiferðum.
Fyrst og fremst er Hafliði þó þekktur
sem hestamaður enda hefur hann verið
áberandi á því sviði frá unga aldri.
Hann er fæddur og uppalinn í Reykja-
vík og hvorugt foreldrið var viðriðið
hestamennsku. Sumrin sem drengurinn
dvaldi í sveit urðu þó til að vekja áhug-
ann á þessum göfugu skepnum. „Ég
hóf mína hestamennsku í Reykjavík
með skóla, starfaði sem aðstoðarmað-
ur hjá tamningamönnum og sá síðar um
tamningastöð fyrir hestamannafélagið
Fák,“ upplýsir Hafliði sem dvaldi um
nokkurra ára bil í Svíþjóð. Þar starfaði
hann við hestamennsku og æfði hand-
bolta, en Hafliði var meðal annars í
unglingalandsliðinu í handbolta. Eftir
að heim var komið starfaði Hafliði hjá
Sigurbirni Bárðarsyni um nokkurra
ára skeið sem hann segir að hafi verið
mjög lærdómsríkur tími.
Hafliði hóf síðar sjálfstæðan rekst-
ur þar til hann fór árið 2001 í sam-
starf við vel stæðan Svía um að kaupa
jörðina Ármót á Rangárvöllum. Hófst
mikil uppbygging þar en húsakostur-
inn er mikill. „Hér er veiðihótel, gisti-
hús, starfsmannahús, skemma, hest-
hús sem tekur 120 hross og bar auk
150 manna matsals,“ telur Hafliði
upp. En uppbyggingunni er ekki lokið.
Í næstu viku hefst bygging reiðhall-
ar sem verður tuttugu sinnum fimm-
tíu metrar. „Í henni verður stór setu-
stofa þar sem hægt verður að fylgjast
með því sem er að gerast í höllinni,“
segir Hafliði og snýr sér að því búnu
aftur að því að sinna hinum rúmlega
sextíu hestum sem eru á húsi í Ármóti
þessa stundina.
solveig@frettabladid.is
HAFLIÐI HALLDÓRSSON HESTAMAÐUR: FAGNAR FIMMTUGU Á MORGUN
Reisir reiðhöll eftir afmælið
KUNNUGLEG SJÓN Hafliði ríður út
fallega rauðskjóttum hesti með
íbúðarhúsið að Ármóti í baksýn.
Þökkum auðsýndan hlýhug og vináttu
við andlát og útför hjartkærrar móður
okkar, tengdamóður, systur, mágkonu,
ömmu og langömmu,
Katrínar Jakobsdóttur
Smára.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu við
Brúnaveg.
Helga Björg Yngvadóttir
Jakob Yngason Guðrún Kvaran
Bergþór Smári Anna Júlíusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
mágur,
Björn Jónsson
fv. skólastjóri Hagaskóla,
verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn
8. febrúar kl. 15.00.
Heiður Agnes Björnsdóttir Hákon Óskarsson
Magnús Jón Björnsson Ragna Árnadóttir
Kjartan Hákonarson Ragnheiður Kristín Sigurðardóttir
Brynhildur Magnúsdóttir
Agnes Guðrún Magnúsdóttir
Helgi Magnússon Björg Baldvinsdóttir
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjúk
r-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveiði
var aðaláh
ugamál Gí
sla Eiríks a
lla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
gason
æddist í
Hann
firði 12.
drar hans Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
ur, f.
úkr-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
sambýlismanns míns og bróður,
Hjörleifs Bjarka
Guðmundssonar
Rauðalæk 14.
Nanna Kristín Guðmundsdóttir
og systkini.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Hjálmar Breiðfjörð
Jóhannsson
lést í Seljahlíð 27. janúar. Útförin fer fram í
Langholtskirkju hinn 8. febrúar kl. 13.00.
Guðmunda D. Sigurðardóttir
Sigríður Hjálmarsdóttir Jóhann Kristjánsson
Guðrún Hjálmarsdóttir Sigurður Ketilsson
Guðfinna Hjálmarsdóttir Þorvaldur Jóhannesson
Hörður Þór Hjálmarsson Ásdís Baldvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Una Herdís Gröndal
fiðluleikari
áður til heimilis að Háaleitisbraut 121
sem lést föstudaginn 29. janúar, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju mánudaginn 8. febrúar kl. 15.00.
Guðrún G. Gröndal Sveinbjörn Össur Gröndal
Jón Halldór Jónasson Þóra Jónsdóttir
Össur Ingi Jónsson Ásgrímur Karl Gröndal
Hjálmar Snorri Jónsson.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
M
YN
D
/JEN
S EIN
A
R
SSO
N