Fréttablaðið - 06.02.2010, Síða 72
44 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Hárnæringu sem bjargar þurru,
lituðu og líflausu hári frá
L‘Oreal.
OKKUR
LANGAR Í
…
Chloé-hönnuðurinn fyrrverandi, Phoebe Philo hefur sest við stjórnvölinn í hönn-
unardeild franska tískuhússins Celine. Celine var mjög frægt á sjöunda og áttunda
áratugnum en var farið að dala en nú er ljóst að ráðning Philo hefur borgað sig. Lína
hennar fyrir vor og sumar 2010 vakti mikla hrifningu, sérstaklega hjá kvenpen-
ingnum sem taldi þetta einstaklega klæðilegan og nútímalegan fatnað. „Mig
langaði til þess að gera fötin meira straumlínulöguð, svona í naumhyggju-
stíl samtímans fyrir konur á þrítugs- og fertugsaldri.“ Fötin voru í senn
kynþokkafull og praktísk: mikið bar á aðsniðnum kápum og kjólum, stutt-
um pilsum og fallegum skyrtum. Tískubloggarar sögðu margir hverjir
fatnaðinn minna sig á erótískar ljósmyndir meistara Helmuts Newton, og
þá sérstaklega leðurkjólarnir og pilsin. - amb
PHOEBE PHILO SLÆR Í GEGN HJÁ CELINE
Minnir á ljósmyndir
Helmuts Newton
TÖFF Flottur
skyrtukjóll
með reimum.
SVART Skemmtilega einfaldur
kjóll með leðurbryddingum.
LEÐUR Fallegur stuttur kjóll. NÚTÍMALEGT Falleg hvít
blússa við stutt A-pils.
STUTT Ótrúlega fallegur leð-
urkjóll með stuttum ermum.
> SPENNANDI VÖRUR Á MARKAÐI
Sjöundi „pop-up“-markaðurinn verður haldinn
í dag og er í þetta sinn haldinn í Nýlenduvöru-
verslun Hemma og Valda. Meðal hönnuða sem
verða með varning til sölu eru Serendipity, Eight
of Hearts, Varius, Anna Soffía og AC Bullion.
Æðislegt heklað
hálsmen frá Elvu.
Fæst á Pop-Up
markaðnum í
Hemma og Valda
í dag.
Mannfræði er fræðigrein sem kannar alla kima samfélagsins og mann-
legs eðlis. Í raun mætti flokka allt sem viðkemur lífi mannsins undir
mannfræði. Mannfræðingar kynna sér lifnaðarhætti fólks og í dag hafa
mannfræðingar í auknum mæli sýnt vistarverum og tísku manna auk-
inn áhuga.
Sumir vilja meina að tískubloggarar heimsins séu „sjónrænir mann-
fræðingar“ þar sem þeir fylgjast með og skrásetja tísku-
strauma og klæðaburð manna víðs vegar um heiminn
og gera svo „rannsóknir“ sínar aðgengilegar öllum með
hjálp netsins. Vegna þess- ara „rannsókna“ hinna „sjón-
rænu mannfræðinga“ get ég fylgst með tískustraumum í
löndum víðs fjarri Íslandi. Með þessum hætti get ég nú
kynnt mér klæðaburð íbúa Brasilíu, Suður-Kóreu
og Lettlands án þess að þurfa að hafa fyrir því að
ferðast sjálf til þessara landa. Þegar þessi tískublogg
eru skoðuð kemur það eflaust fáum á óvart hversu
keimlíkur klæðnaður fólks er orðinn. Vissulega er
einhver herslumunur á þeim fatnaði sem Íslending-
ar klæðast og þeim sem íbúar í brasilísku borginni
Sao Paulo klæðast en ég held að sá munur stafi
heldur af loftlagsástæðum en einhverju öðru.
Að auki eru íbúar hins netvædda heims óþreytandi
við að skrásetja sitt eigið líf með aðstoð alheims-
vefjarins og má þar nefna samskiptasíður líkt og
Facebook í þeim efnum og ljósmyndasíðuna Flickr.
Enn aðrir halda sérstaka tískudagbók þar sem fata-
samsetningar hvers dags eru skrásettar á síðum líkt
og Lookbook.nu.
Í fyrsta sinn í sögu mannkyns er fjöldi fólks
meðvitað að deila lífi sínu, áhugamálum, hugleið-
ingum og fatasmekk með hvað öðru á bloggum, sam-
skiptasíðum eða Youtube. Og að sama skapi getum við
nú skyggnst inn í líf fólks í öðrum heimsálfum án þess
að þurfa nokkurn tímann að ferðast þangað.
Sjónrænir mannfræðingar
SEXÝ
Þröng
aðsniðin
leðurkápa
með belti.
Nýtt varagloss frá Bobbi
Brown sem lætur varirnar líta
þrýstnari út.