Fréttablaðið - 06.02.2010, Qupperneq 80
52 6. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Borgarslagur Liverpool
og Everton annars vegar og
Chelsea og Arsenal hins vegar
eru í fyrirrúmi þegar litið er
yfir leiki helgarinnar í ensku
úrvalsdeildinni.
Bæði Liverpool og Everton
mega reyndar vissulega muna sinn
fífil fegri þegar félögin mætast á
Anfield-leikvanginum í hádeginu
í dag. Liverpool er löngu búið að
missa af lestinni í titilbaráttunni
við Manchester United, Chelsea og
Arsenal og Everton er rétt núna
upp á síðkastið að rétta úr kútnum
eftir vægast sagt afleita byrjun á
tímabilinu.
Liverpool hefur reyndar ekki
tapað í síðustu sex deildarleikjum
sínum en þrátt fyrir það hefur
liðið ekki virkað sannfærandi og
meðal annars þurft að sætta sig
við jafntefli við bæði Stoke og
nýliða Wolves á síðustu vikum.
Stuðningsmenn Liverpool hafa
þó ærna ástæðu til bjartsýni fyrir
heimsókn erkifjendanna því Evert-
on hefur ekki unnið á Anfield-
leikvanginum síðan í september
árið 1999, tapað sex af síðustu tíu
viðureignum félaganna þar og
gert fjögur jafntefli. Knattspyrnustjórinn Rafa Ben-
itez hjá Liverpool bindur vonir
við að heimastrákarnir Steven
Gerrard og Jamie Carragher gefi
Liverpool neistann til þess að taka
stigin þrjú gegn Everton.
„Ég er mjög ánægður með að
fyrirliðinn minn [Gerrard] sé
heimamaður því hann þekkir
Liverpool-borg út í gegn og veit
hvað er í húfi í þessum granna-
slögum. Hann og Carragher geta
leitt hina leikmennina áfram í
baráttunni og hjálpað okkur að
ná fram sigri. Hvernig sem við
förum að því þá eru stigin þrjú það
sem skiptir máli,“ sagði Benitez á
blaðamannafundi í gær.
Barátta á Brúnni
Toppliðs Chelsea bíður erfitt verk-
efni á Stamford Bridge-leikvang-
inum á sunnudag þegar Arsen-
al mætir í heimsókn en sex stig
skilja liðin að í fyrsta og þriðja
sæti deildarinnar.
Chelsea hefur þó verið með
nokkuð gott tak á grönnum sínum
og hefur Arsenal aðeins unnið tvo
af síðustu fimmtán viðureignum
Lundúnafélaganna, gert fimm
jafntefli og tapað átta.
Knattspyrnustjórinn Carlo
Ance lotti hjá Chelsea endurheimt-
ir Ashley Cole og John Obi Mikel
úr meiðslum fyrir leikinn og telur
að Chelsea geti bundið enda á
titilmöguleika Arsenal með sigri
á sunnudag.
„Ef við vinnum þennan leik
verður mjög erfitt fyrir Arsenal
að koma til baka. Þá yrði bilið á
milli okkar og Manchester United
og svo Arsenal of mikið. Við skul-
um sjá til hvernig þetta verður en
við þurfum að spila góðan varn-
arleik og sækja hratt á þá, það er
rétta leiðin til að vinna Arsenal,“
sagði Ancelotti í gær.
Knattspyrnustjórinn Arsene
Wenger hjá Arsenal sér hlutina í
öðru ljósi en kollegi sinn hjá Chel-
sea án þess þó að gera lítið úr
mikilvægi leiksins á sunnudag.
„Úrslit leiksins gegn Chelsea
hafa auðvitað mikið að segja upp
á framhaldið að gera en hvernig
sem fer þá tel ég að við séum enn
samt sem áður í góðri stöðu.
Ég er hins vegar sannfærður um
að við höfum trúna, samheldnina
og hungrið til þess að ná hagstæð-
um úrslitum. Það hafa margar
efasemdaraddir heyrst eftir tapið
gegn United en við munum sýna
hvað í okkur býr,“ sagði Wenger
í gær.
Englandsmeistarar Manchester
United geta aftur á móti hirt topp-
sætið í dag, tímabundið í það
minnsta, með sigri gegn botn-
liði Portsmouth á Old Trafford-
leikvanginum en Hermann
Hreiðarsson getur ekki leikið með
gestunum vegna meiðsla.
omar@frettabladid.is
Rosalegir borgarslagir um helgina
Heil umferð fer fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem hæst ber borgarslagi Liverpool og Evert-
on í dag og Chelsea og Arsenal á morgun. Meistararnir í Manchester United mæta botnliði Portsmouth.
ALLT UNDIR Lundúnafélögin Chelsea og Arsenal mætast í mikilvægum toppbaráttu-
slag á Stamford Bridge-leikvanginum á morgun. Chelsea hefur haft tak á Arsenal
undanfarið en gestirnir þurfa nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda sér í
titilbaráttunni. NORDIC PHOTOS/AFP
LEIKIR HELGARINNAR:
Laugardagur:
Liverpool-Everton kl. 12.45
Bolton-Fulham 15.00
Burnley-West Ham 15.00
Hull-Manchester City 15.00
Manchester Utd-Portsmouth 15.00
Stoke-Blackburn 15.00
Tottenham-Aston Villa 17.30
Sunnudagur:
Birmingham-Wolves 13.30
Chelsea-Arsenal 16.00
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
mun líklega fá að spreyta sig í
sínum fyrsta leik með aðalliði
Tottenham síðan hann gekk í
raðir félagsins á láni frá Mónakó
á dögunum.
Tottenham mætir Aston Villa á
White Hart Lane-leikvanginum í
dag í gríðarlega mikilvægum leik
í ensku úrvalsdeildinni en liðin
eru í harðri baráttu um fjórða
sætið í deildinni sem gefur þátt-
tökurétt í Meistaradeild Evrópu á
næsta tímabili. Eiður Smári byrj-
ar leikinn að öllum líkum á vara-
mannabekknum þar sem fram-
herjarnir Jermain Defoe og Peter
Crouch hafa verið að spila vel
saman undanfarið. Eiður Smári
lék með varaliði Tottenham á
þriðjudag og skoraði þá tvö mörk
í 4-1 sigri gegn Dagenham &Red-
bridge. - óþ
Eiður Smári Guðjohnsen:
Byrjar líklega á
bekknum í dag
KLÁR Í SLAGINN Eiður Smári Guðjohn-
sen er í leikmannahópi Tottenham sem
mætir Aston Villa í dag.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Hápunktur
innanhússtímabilsins í frjáls-
um íþróttum á Íslandi verður
um helgina þegar Meistaramót
Íslands fer fram í Frjálsíþrótta-
höllinni í Laugardal. Keppni
fer fram milli klukkan 12.30 og
18.00 í dag og á milli 11 og 16.00
á morgun. Frjálsíþróttadeild
Ármanns sér um framkvæmd
mótsins í ár í samstarfi við FRÍ.
Það eru um 170 keppend-
ur skráðir til leiks á mótið og
eru þeir frá þrettán félögum.
Besta frjálsíþróttafólk landsins
mun taka þátt í mótinu og menn
bíða spenntir eftir nokkrum
einvígum.
Vinkonurnar Ásdís Hjálmsdótt-
ir og Helga Margrét Þorsteins-
dóttir úr Ármanni munu berj-
ast um sigur í kúluvarpi kvenna.
Helga Margrét hafði betur í ein-
vígi þeirra á Reykjavíkurleikun-
um 16. janúar en Ásdís svaraði
með því að vinna á Stórmóti ÍR
23. janúar.
Ásdís á titil að verja frá því á
MÍ fyrir ári en Helga Margrét
var þá ekki með vegna meiðsla.
Keppni Ásdísar og Helgu hefst
klukkan 13.00 í dag.
Í kúluvarpi karla keppa meðal
annars félagarnir úr FH, Óðinn
Björn Þorsteinsson og Bergur
Ingi Pétursson, en þetta er fyrsta
stórmótið sem þeir taka þátt í á
árinu. Óðinn kastaði 1,4 metr-
um lengra en Bergur á MÍ fyrir
ári og tryggði sér gullið. Keppni
Bergs og Óðins hefst klukkan
14.20 í dag.
Þá má ekki gleyma þeim Þor-
steini Ingvarssyni úr HSÞ og
Kristni Torfasyni úr FH sem
mætast í langstökkinu. Þeir hafa
báðir stokkið vel yfir 7 metrana
á árinu en Kristinn vann í fyrra
með því að stökkva 7,20 metra.
Keppni í langstökki karla hefst
klukkan 14.10 á morgun.
Það verður líka athyglisvert
að sjá hvort gulldrottning MÍ 15
til 22 ára um síðustu helgi, Stef-
anía Valdimarsdóttir úr Breiða-
bliki, geti bætt við einhverjum
gullum um helgina en hún reyn-
ir sig þá á móti reynsluboltum
eins og Hafdísi Sigurðardóttur
úr HSÞ. - óój
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum um helgina:
Það verður fullt af
flottum einvígum
KEPPA UM GULLIÐ Ármenningarnir Ásdís Hjálmarsdóttir og Helga Margrét
Þorsteinsdóttir með þjálfara sínum Stefáni Jóhannssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Styrkir úr Forvarnasjóði 2010
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Forvarnasjóði
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og
eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna.
Skilyrði fyrir rannsóknastyrkjum til gagnaöflunar er að Lýðheilsustöð hafi aðgang að
ópersónugreinanlegum frumgögnum og nauðsynlegum stoðupplýsingum ári eftir að
gagnasöfnun lýkur. Í samvinnu við styrkþega getur Lýðheilsustöð einnig veitt þriðja
aðila aðgang að gögnunum.
Áhersla er lögð á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og
ungu fólki í eða utan skóla. Í ár verða umsóknir sérstaklega metnar með tilliti til
stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla heilsugæsluna og lýðheilsustarf og for-
varnir á þeim grunni. Þá er mikilvægt að um sé að ræða stærri, umfangsmeiri og
markvissari verkefni sem hægt er að fylgjast náið með hvað framkvæmd og fram-
vindu varðar.
Heilbrigðisráðherra úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarna-
ráðs sem metur umsóknirnar í samstarfi við Lýðheilsustöð. Áskilinn er réttur til að
senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila, óska eftir nánari upplýsingum um verkefni,
framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til að ákveða
að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu hvers verkefnis. Sé sótt um styrk
til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig verkefnið verður metið.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2010 og skal sótt um á eyðublöðum á vef
Lýðheilsustöðvar, http://www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/forvarnasjodur.
Styrkir, sem veittir eru á árinu, skulu sóttir fyrir 31. desember 2010.
Nánari upplýsingar fást í síma 5 800 900, johann@lydheilsustod.is eða á vef Lýðheilsustöðvar.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið johann@lydheilsustod.is