Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 10
10 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR UNDIR REGNHLÍFINNI Á myndinni má sjá regnhlíf með blómamynstri, en undir regnhlífinni leynist kona sem gengur í krapa á gangstétt í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEILBRIGÐISMÁL Flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríki til sveitarfélaga er að mati for- svarsmanna sveitarfélaganna og forstjóra heilbrigðisstofnana vel gerlegur og jafnvel til bóta. Hins vegar virðist þessi hugmynd ekki hafa verið rædd af alvöru víðar en á Suðurnesjum. Bæjarstjórn Reykjanessbæjar ályktaði í síð- ustu viku um málefni Heil- brigðisstofnun- ar Suðurnesja (HSS) vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerf- inu. Suðurnesja- menn telja sig hlunnfarna og hafa því viðrað þá hugmynd að taka yfir verk- efni HSS eða hafa aðkomu að rekstrinum með beinum hætti. Er mat bæjarstjórnar- innar að annar stjórnunarstíll við rekstur heil- brigðismála en nú tíðkast geti haft hagræði í för með sér. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er þeirrar skoðun- ar að sveitarfélögin í landinu geti almennt séð um verkefnið. Hann segir að miðpunkturinn verði áfram Landspítalinn sem stór ein- ing til þjónustu við allt landið en í héruðum geti sveitarfélögin sinnt þessari þjónustu. Segir Árni að ráðuneyti heil- brigðismála sendi frá sér handa- hófskenndar ákvarðanir og stefnu- mótun sé ekki gerð til lengri tíma heldur að nokkru leyti háð duttl- ungum þeirra sem sitja í stól ráð- herra á hverjum tíma. Þessu þurfi að breyta. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur tilfærsluna mögulega en hún hafi ekki verið rædd á þeim nótum sem umræðan hefur verið í tilviki Reykjanesbæjar innan sambands- ins. „Þó var það rætt á Landsþingi okkar 2006, þegar mótuð var sú stefna sem sambandið vinnur eftir á kjörtímabilinu, í sambandi við flutning á nærþjónustu, að það næði ekki eingöngu til mál- efna fatlaðra og aldraðra, heldur mætti líka skilja það sem svo að það næði yfir málefni heilsugæsl- unnar.“ Halldór segir mörg sveit- arfélög vera vel í stakk búin til að taka yfir rekstur heilbrigðisstofn- ana en það sé háð því að nægilegt fjármagn fylgi verkefninu frá ríkinu. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis- ráðherra sagði í viðtali við Frétta- blaðið á fimmtudag að hún væri því almennt hlynnt að sem mest af nærþjónustunni væri sinnt af sveitarfélögunum. Hins vegar sé rekstur heilbrigðisstofn- ana utan lögbundinna verkefna sveitarfélaganna og þess vegna verði að spyrja hvort sveitarfélög- in séu fjárhagslega í stakk búin til að sinna þjónustunni. svavar@frettabladid.is Sveitarfélögin ráða við flutning stofnana Hugmynd um að sveitarfélögin taki að sér rekstur heilbrigðisstofnana á lands- byggðinni mælist misjafnlega fyrir. Ekki er efast um að þau ráði við verkefnið en tryggja verður að nægt fjármagn myndi fylgja tilfærslunni. ÁRNI SIGFÚSSON HALLDÓR HALLDÓRSSON FRÁ SUÐURNESJUM Hugmyndin hefur verið rædd um nokkurt skeið innan sem utan HSS síðustu tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VIÐSKIPTI „Staðan er mjög góð og mun aðeins batna á næstunni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Hann bætir við að alþjóðlega fjár- málakreppan hafi gert flestum fyr- irtækjum erfitt fyrir á síðasta ári. Geti Marel vel við unað. „Ég er sáttur,“ segir hann. Fyrirtækið tapaði 11,8 milljónum evra, jafnvirði tveggja milljarða króna, á síðasta ári. Þetta er undir væntingum. Hoen segir stjórnend- ur hafa reiknað með erfiðu ári og hafi þeir gripið til aðgerða. Á meðal þeirra hafi verið aukning hlutafjár þar sem hluta tiltekinna skulda- bréfaflokka Marel hafi verið breytt í hlutafé, en við það fóru skuldir niður. Þá hafi verið samið um sölu eigna utan kjarnastarfsemi og verði því haldið áfram. Þar á meðal er sala á eignum tengdum mjólkur- og drykkjarvörugeiranum sem heyrði undir matvælavinnsluvélahluta Stork, Stork Food Systems, áður en Marel keypti fyrirtækið fyrir tveimur árum. Theo stýrði Stork Food Systems áður en hann tók við forstjórastól Marel í fyrravor. Theo bendir á að forskot Marel skýrist ekki síst af því að fyrirtæk- ið hafi ekki dregið úr framlagi til rannsóknar og þróunar í kreppunni. Það hafi keppinautarnir gert og kunni þeir að dragast aftur úr í sam- keppninni af þeim sökum. - jab THEO HOEN Marel getur vel við unað þrátt fyrir tap á síðasta ári, segir forstjóri fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Forstjóri Marel segir fyrirtækið hafa náð forskoti á keppinauta í kreppunni: Er sáttur eftir krefjandi ár TRÚMÁL „Vængjamessa er nýjung í starfi kirkjunnar og verða þær í Guðríðarkirkju í Grafar holti,“ segir í tilkynningu Karls V. Matthíassonar sóknar- prests. Hann segir vængja- messu vera hversdagsmessu að kvöldi dags og kallast á við æðruleysismessur á sunnudags- kvöldum í Dómkirkjunni. „Messan miðar að því að lyfta mönnum upp frá áhyggjum af sínu nánasta fólki vegna erf- iðleika, kvíða eða vímuefna- neyslu,“ segir í tilkynningu. Halda á messurnar yfir vetur- inn fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði, þá fyrstu núna á mið- vikudagskvöldið 10. febrúar klukkan átta. - óká Nýjung í kirkjustarfi: Vængjamessur í Guðríðarkirkju FASTEIGNIR Nokkur óánægja mun nú vera meðal landeigenda í inn- anverðu Ísfjarðardjúpi með að sveitarstjórn Strandabyggðar virti viðlits 15 milljóna króna til- boð Hraðfrystihússins Gunnvar- ar í jörðina Nauteyri á Langadals- strönd með því að ákveða að gera fyrirtækinu gagntilboð. Landeigendur segja að Naut- eyrin hafi verið metin á um 150 milljónir þegar hún var sett á sölu í fyrra og óttast að verið sé að verðfella aðrar jarðir á svæðinu ef selja eigi Nauteyri á margfalt lægra verði en það. Einn land- eigandinn sagðist í samtali við Fréttablaðið telja væntanlega sölu á slíku verði sérstaklega gagn- rýniverða með tilliti til þess að sveitarfélagið stæði ekki það höll- um fæti að það þyrfti að selja frá sér eignir. - gar Jarðeigendur í Ísafjarðardjúpi: Óttast verðfall verði jörðin Nauteyri seld NAUTEYRI Strandabyggð ætlar að svara 15 milljóna króna boði í jörðina með gagntilboði. SAMGÖNGUR Skipulagsnefnd Skagafjarðar er andvíg áform- uðum flutningi hringvegarins þannig að hann liggi ekki lengur um Varmahlíð heldur frá Arnar- stapa að Sólheimagerði. Nefndin segir Varmahlíð mik- ilvæga þjónustumiðstöð fyrir íbúa. Fari hún úr alfaraleið verði líklega ekki rekstrargrundvöllur fyrir þjónustu og verslun sem þar er í dag. „Á meðan ekki liggja fyrir áætlanir um hvernig þá verði unnt að tryggja þjón- ustu og verslun í þessum hluta sveitarfélagsins og samanburður á lagfæringu hringvegarins um Varmahlíð og fyrirliggjandi til- lögu Vegagerðarinnar með tilliti til umferðaröryggis, mun sveitar- félagið Skagafjörður ekki breyta legu hringvegarins“, segir skipu- lagsnefndin. - gar Skagfirðingar ósveigjanlegir: Vegurinn liggi um Varmahlíð HÓTEL VARMAHLÍÐ Heimamenn óttast um verslun og aðra þjónustu fari þjóð- vegur 1 ekki lengur um Varmahlíð. BRETLAND, AP Fjórir breskir þing- menn verða ákærðir og eiga jafn- vel fangelsi yfir höfði sér fyrir að hafa þegið greiðslur úr ríkissjóði vegna útgjalda, sem ýmist voru tilbúningur eða óviðeigandi. Breski endurskoðandinn Thomas Legg skýrði frá því á fimmtudag að 390 þingmenn neðri deildar breska þingsins, eða meira en helmingur þing- manna deildarinnar, hafi þegið slíkar greiðslur. Öllum þessum þingmönnum hefur verið gert að endurgreiða féð, alls um 1,3 milljónir breskra punda eða um 2.600 milljónir króna. - gb Breskir þingmenn brotlegir: Ákærðir fyrir að oftaka fé 9. stk gólfþvottavélar, Nilfi sk, Taski, Cleanfi x og Tornado einnig 4 stk bónvélar. Allar vélarnar er ný yfi rfarnar af fagmanni og tilbúnar til notkunar. Nánari upplýsingar í síma 617 8830 Til sölu 2.000 bæklingar UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.