Fréttablaðið - 09.02.2010, Síða 24
9. FEBRÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● börn
Í leikskólanum Barónsborg
nota yngstu börnin taubleiur.
Þarna er á ferðinni tilrauna-
verkefni leikskólans í sam-
vinnu við Elenu Tauffer, Sorpu
og umhverfissvið Reykjavíkur-
borgar.
„Foreldrar tóku strax vel í hug-
myndina og verkefnið fór af stað
í september,“ útskýrir Lilja Jóns-
dóttir, deildarstjóri á
Krílakoti á Barónsborg.
Hugmyndina átti Elena
Teuffer, ein mamm-
an í hópnum, en
hún hefur notað
og framleitt sjálf
taubleiur í bráðum
þrjú ár, undir merk-
inu Kindaknús.
„Ég notaði taubleiur
á mín börn bæði vegna um-
hverfissjónarmiða og einnig vegna
þeirra peninga sem sparast,“ út-
skýrir Elena sem saumaði bleiurn-
ar á öll börnin á deildinni, fimm
bleiur á barn, með styrk frá Sorpu.
„Ég sauma bleiurnar úr hand-
klæðaefni með vasa, sem innleggi
úr flóneli er smeygt inn í og svo
er umhverfisvænn hríspappír, sem
má bæði þvo eða henda í klósett,
lagður ofan á. Ég sauma teygju í
bakið og í skálmarnar sem leka-
vörn og svo eru notaðar buxur
yfir.“
Starfsfólk leikskólans vigtaði
það sem féll til af einnota bleium í
tvær vikur áður en skipt var yfir
í taubleiurnar. Einnig voru settir
upp rafmagnsmælar á þvottavél-
arnar til að fylgjast með orku-
nýtingunni. „Þetta er talsverður
sparnaður fyrir foreldra,“ út-
skýrir Lilja en þeir þurfa ekki að
leggja til bleiur á barnið yfir dag-
inn. „Börnin koma með pappírs-
bleiu á morgnana og við setjum
á þau taubleiurnar. Foreldrarnir
setja svo á þau pappírsbleiu áður
en þau fara heim í lok dags. Reynd-
ar tekur lengri tíma að skipta á
hverju barni, við þvoum eina vél
á dag og hengjum upp á snúru en
bleiurnar mega ekki fara í þurrk-
ara.“ Lilja segir börnin hafa van-
ist taubleiunum fljótt þótt þær séu
fyrirferðarmeiri. „Þau eru öll með
miklu stærri rassa núna,“ segir
hún hlæjandi.
Elena segir ávinning þess að
nota taubleiur margþætt-
an. Þyngst vegi umhverf-
isþátturinn en um 1 tonn
af pappírsbleium liggi
eftir hvert barn sem
taki 500 ár eyðast
í náttúrunni. Eins
megi reikna með um
300.000 króna kostn-
aði við pappírsbleiur á
hvert barn.
Spurð hvort hún stefni á
samstarf við fleiri leikskóla segir
hún að framhaldið verði ákveð-
ið þegar verkefninu við Baróns-
borg lýkur í vor. Nánar má kynna
sér taubleyjur Elenu á síðunni
http://Kindaknus.123.is. Og einn-
ig verða þær kynntar í Manni lif-
andi við Borgartún, 20 febrúar
næstkomandi. - rat
Allir með stærri rassa
Lilja Jónsdóttir, deildarstjóri á Krílakoti, en þar eru yngstu börnin á taubleyjum í tilraunaskyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bleiurnar
sem Elena saum-
aði á börnin á Baróns-
borg en þær verða kynntar 20.
febrúar í Manni lifandi við Borgartún
milli klukkan 12 og 16
MYND/ELENA TAUFFER
● MÆLT MEÐ NOTKUN SNUÐS Á NÓTTUNNI
Nýjar rannsóknir benda til þess að notkun snuðs á svefn-
tíma dragi úr líkum á vöggudauða. Nú er mælt með
notkun snuðs á svefntíma ungbarna, þó ekki fyrr en
brjóstagjöf er komin vel á veg, enda er brjóstagjöf-
in einnig talin vera mikilvæg vörn gegn vöggudauða.
Sjá www.ljosmodir.is.
● Á VEFNUM Þegar kemur að því að
klæða litla krílið eru ýmsir kostir í boði. Einn
er sá að kaupa lítið eða ekkert notuð barna-
föt en þau er meðal annars hægt að fá í
vefverslunum. Ein slík verslun nefnist Opin
búð og slóðin inn á hana er http://opinbud.
blogcentral.is/ Þar er ýmislegt til sölu en
þó aðallega föt og öll vel með farin. Verð-
ið er frá 400 upp í 1.500 krónur fyrir hverja
flík en þó er hægt að fá tvær stutterma sam-
fellur fyrir 500 krónur. Ofan á verðið bætist síðan flutningskostnaður, að
minnsta kosti út á land því verslunin er í miðborg Reykjavíkur.
Flest skynfæri barna eru full-
þroskuð strax við fæðingu en það á
þó ekki við um sjónskynið. Nýbur-
ar eiga erfitt með að greina í sund-
ur ólíka liti og er það ekki fyrr
en í kringum tveggja til
þriggja mánaða aldur-
inn sem þau fara að
hafa vald á því.
Nýburar eiga auk
þess erfitt með
að sjá umhverfið
og andlit manna í
fullum fókus.
Það sem full-
orðnir sjá vel í 180
metra fjarlægð sjá
ungbörn aðeins
í tæplega sjö
metra fjarlægð.
Það getur skýrt hvers
vegna ungbörn eiga erfitt með að
greina í sundur andlit strax í upp-
hafi þótt reyndar sé talið að þau
greini andlitslínur.
Sé vilji til að örva sjónskyn ung-
barnsins strax í upphafi getur
verið ráð að teikna einföld
svarthvít form á blað og
setja í vögguna en þeim
verður gjarnan starsýnt
á slíkar myndir.
- ve
Heimurinn í svart-hvítu
Það þýðir lítið að
sýna nýburum litrík
leikföng enda fara
þau ekki að greina
í sundur ólíka liti
fyrr en í kringum
tveggja til þriggja
mánaða aldur.
Flestum foreldrum er kunnugt um
hversu mikilvægt er að velja inn í
herbergi barna sinna muni sem
taka mið af öryggi þeirra, ásamt
því að uppfylla þarfir þeirra
dag og nótt. Í IKEA að Kaup-
túni 4 er fyrrnefnt sjónarmið
haft að leiðarljósi auk þess sem
smekkvísi er í hávegum höfð,
en eins og meðfylgjandi mynd-
ir sýna fæst þar allt til alls í
barnaherbergið.
Í öruggu umhverfi
Í IKEA fæst ýmislegt sniðugt í barnaherbergið. Turninn til vinstri
er eftir A Huldén/S Dahlman og kostar 1.490 krónur. Karfan að
ofan fæst í mörgum litum og kostar 1.490 krónur. Neðst eru þrjú
stykki sem eru seld í pakka eftir hönnuðinn Karin Mannerstål og
kosta 1.990 krónur. Nánar á www.ikea.is.