Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 34
18 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is JOE PESCI ER 67 ÁRA Í DAG. „Þegar ég gat hvergi feng- ið vinnu varð ég svo auðmjúk- ur að það var ógeðslegt. Mér leið ekki eins og manni lengur. Þegar ég rakst utan í veggi bað ég þá afsökunar.“ Leikarinn Joe Pesci fæddist í New Jersey-ríki Bandaríkjanna og hóf feril sinn í leikhúsum fimm ára. Hann hefur meðal annars unnið til Óskarsverðlauna og leikið í vinsæl- um kvikmyndum á borð við Raging Bull, Goodfellas, Home Alone, JFK og Lethal Weapon 2 til 4. Á þessum degi árið 1964 kom Liverpool-sveitin Bítlarn- ir fram í fyrsta sinn í hinum vinsæla skemmtiþætti Eds Sullivan í Bandaríkjunum. Margir telja þáttinn marka tímamót í sögu dægurmenn- ingar í Bandaríkjunum og víðar um heiminn. Smáskífa með laginu I Want to Hold Your Hand hafði skömmu áður náð toppsæti bandaríska Bill- board-vinsældalistans. Þegar Bítlarnir lentu á JFK-flugvellinum í New York tóku um 3.000 æstir aðdáendur á móti þeim. Sullivan bauð Brian Epstein, umboðsmanni Bítlanna, háar fjárhæðir fyrir að koma fram í einum þátta sinna, en Epstein sá hag sveitarinnar betur borgið með að semja um lágmarksgreiðslu fyrir að koma fram í upphafi og undir lok þriggja þátta. Talið er að í kringum 73 milljónir manna hafi horft á fyrsta þáttinn, sem þá var met í bandarískri sjónvarps- sögu. Bítlarnir léku fimm lög, All My Loving, Till There Was You og She Loves You í upp- hafi og I Saw Her Standing There og I Want to Hold Your Hand í lokin. Meðan á flutn- ingi Till There Was You stóð var nöfnum með- lima sveitarinnar varpað á skjáinn og undir nafni Johns Lennon fylgdu skilaboð sem vafalaust hafa grætt margar bandarískar stúlkur: „Því miður, stelpur, hann er kvæntur.“ ÞETTA GERÐIST: 9. FEBRÚAR 1964 Bítlarnir koma fram hjá Sullivan Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er hald- inn hátíðlegur í sjöunda sinn í dag. Þemað í ár er Hugsaðu áður en þú send- ir! og standa yfir sextíu þjóðir um allan heim fyrir skipulagðri dagskrá í dag. Í tilefni dagsins stendur SAFT (Sam- félag, fjölskylda og tækni), vakningar- átak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð frá klukkan 14.30 til 16.30. Fundar- stjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson. Netöryggisdagurinn er afurð netör- yggisáætlunar Evrópusambandsins, sem Ísland er aðili að ásamt 26 öðrum þjóðum. Guðberg K. Jónsson, verkefna- stjóri hjá SAFT, segir daginn yfirleitt tileinkaðan ákveðnu þema, en hann er ávallt haldinn hátíðlegur annan þriðju- daginn í febrúar. „Á síðasta ári var dag- urinn tileinkaður baráttunni gegn raf- rænu einelti. Það verkefni skilaði sér vel til þjóðarinnar og var þátttakan í því fram úr öllum vonum. Ástæða þess að þemað Hugsaðu áður en þú sendir! var valið í ár er meðal annars sú að fjölmörg dæmi eru um að fólk hafi lent í því að myndir af þeim, sem ekkert er- indi eiga við almenning, hafi verið sett- ar á Netið. Við sjáum þetta til dæmis á Facebook þar sem fólk eignast marga vini, til dæmis börn sín og vini barna sinna. Svo getur auðveldlega komið að því að einhver gamall félagi setji gamla partímynd á Netið, sem sýnir viðkomandi aðila „dauða“ í útilegu eða eitthvað slíkt. Þetta er mynd sem við- komandi bjóst aldrei við að börnin sín eða barnabörn myndu sjá.“ Guðberg segir hið sama gilda um gróf ummæli á bloggsíðum og opnum fréttavefjum á Netinu. „Margir hafa lent í því að skrifa digurbarkalega á Netið á næturnar eftir nokkra bjóra og þurfa svo að fjarlægja ummælin dag- inn eftir. Staðreyndin er sú að þegar eitthvað er komið á Netið er nánast ógerlegt að taka það til baka. Það getur haft slæm áhrif, jafnvel mörgum árum síðar,“ segir Guðberg og bætir við að tryggja þurfi að fólk á öllum aldri búi yfir þekkingu til að stjórna upplýsinga- gjöf sinni á ábyrgan hátt. í tilefni herferðarinnar hefur net- verkið safeinternet.org látið fram- leiða stutta auglýsingu sem styður við hana og er sýnd í sjónvarpi í kringum netöryggisdaginn. Að sögn Guðbergs er dagskrá mál- þingsins í dag mjög metnaðarfull. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, setur þingið og í kjölfarið fylgja tölur frá ýmsu fræði- og kunnáttufólki sem tengist málefn- inu og pallborðsumræður. Eins og áður sagði er fundarstjóri Páll Óskar Hjálmtýsson, sem hefur að sögn Guð- bergs sterkar skoðanir á því hvernig fólk hegðar sér á Netinu. Allir eru velkomnir og frítt inn, en auk þess er málþingið sent út á Netinu á slóðinni saft.is. Þar er einnig hægt að senda inn spurningar með tölvupósti. kjartan@frettabladid.is ALÞJÓÐLEGI NETÖRYGGISDAGURINN: HALDINN Í SJÖUNDA SINN Í DAG Ekki á allt erindi á Netið ÖRUGG NETNOTKUN „Staðreyndin er sú að þegar eitthvað er komið á Netið er nánast ógerlegt að taka það til baka. Það getur haft slæm áhrif, jafnvel mörgum árum síðar,“ segir Guðberg K. Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLISBÖRN EGILL ÓLAFSSON, tónlistar- maður og leikari, er 57 ára í dag. MIA FAR- ROW leik- kona er 65 ára í dag. Magnús Sigurðsson, læknir og hestamaður, færði Háskólanum á Hólum og Sögusetri íslenska hests- ins orðasafn sitt, Orðfák, við hátíðlega athöfn í síð- ustu viku, en hann hefur í gegnum tíðina safnað orðum og orðatiltækjum sem tengjast hestum og hestamennsku. Magnús, sem kominn er yfir átt- rætt, leitaði víða fanga við gerð orðasafnsins, meðal annars í útkomnum orðabókum, fornritum, íslenskum bókmenntum, fagbókum um hestinn og í erlendum ritum. Tilgangurinn með orðabókinni var að safna sem flestu um hesta og notkun þeirra allt frá því fyrir Íslandsbyggð. Auk Orðfáks færði Magnús skólanum og setrinu mikið safn gagna, íslenskar og erlendar bækur, tímarit, myndir, hestastyttur og fleira, sem eflir bókasafnið til muna. Færði háskólanum veglega gjöf GJÖF Magnús Sigurðsson hefur unnið lengi að Orðfáki sínum. MERKISATBURÐIR 1822 Haítí ræðst inn í Dómin- íska lýðveldið. 1885 Fyrstu Japanarnir koma til Hawaii. 1916 Félag íslenskra botn- vörpuskipaeigenda er stofnað. 1942 Japanar gera loftárás á Darwin í Ástralíu. 1959 Togarinn Júlí ferst við Ný- fundnaland og með honum þrjátíu manna áhöfn. 1984 Bankarán er framið í úti- búi Iðnaðarbankans í Breiðholti í Reykjavík. 1991 Litháar velja sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ísland er fyrsta landið til að viðurkenna það. 2001 Bandarískur kafbátur sekkur óvart japönsku fiskiskipi. Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, systir og tengdadóttir, Halldóra Benediktsdóttir Brekkubyggð 28, Garðabæ, sem lést af slysförum laugardaginn 30. janúar, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju Garðabæ, föstudaginn 12. febrúar kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Halldóru er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Kristján Gunnarsson Benedikt Kristjánsson, Kristín Edda Kristjánsdóttir, Gunnar Kristjánsson Benedikt Steindórsson, Þórey Eyjólfsdóttir Sigurbjörg Benediktsdóttir, Steindór Benediktsson Gunnar Skaftason, Kristín Edda Kornerup-Hansen Fréttablaðið býður nú upp á birtingu æviminninga á tímamótasíðum blaðsins. Hafið samband í síma 512 5490-512 5495 eða sendið fyrirspurnir á netfangið timamot@frettabladid.is Æviminning Gísli Eirík ur Helgaso n Laugateigi 7 2, Reykjavík Gísli Eirík ur Helgaso n fæddist í Reykjavík 1. janúar 1 931. Hann lést á Hraf nistu í Ha fnarfirði 1 2. janúar síð astliðinn. Foreldrar hans voru Guðr ún Jónsdót tir frá Þing eyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og H elgi Gíslason fr á Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eirík ur bjó fyrs tu æviár sí n í Reykjavík en fluttist eftir það v estur til Ísafjarð ar með for eldrum sín um og systkin um. Systkini G ísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigrí ður Ása, f. 1936 og G uðmundur , f. 1941. Eiginkona Gísla Eirí ks er Marg rét Magnú sdóttir hjúk r- unarfræði ngur, f. 4. apríl 1937 . Þau geng u í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eirí ks og Mar grétar eru: 1) Magnús kennari, f . 1.5. 1972 , kvæntur Guðbjörgu Björnsdótt ur kennara , f. 30.11. 1 971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn J óhann, f. 2 0.1. 1999. 2) Helgi tæ knifræðin gur, f. 18.6 . 1975, í sa mbúð með Jórunni Dr öfn Ólafsdó ttur leiksk ólakennar a, f. 15.2. 1975. Þeir ra dóttir e r Þórunn Á sta, f. 24.12 . 2001. 3) Guðrún læ knir, f. 14. 11. 1979, í sambúð m eð Þór Halldórssy ni stjórnm álafræðing i, f. 6.6. 19 80. Gísli Eirík ur lauk sk yldunámi á Ísafirði e n hélt suð ur til Reykjav íkur 17 ára gamall til að nema h úsasmíði. Húsasmíð ar urðu æv istarf hans . Framan a f starfsæv- inni vann hann á Tré smíðaverk stæðinu Fu ru en eftir að hafa fengi ð meistara réttindi í i ðn sinni st ofnaði han n sitt eigið f yrirtæki, G ísli, Eiríku r, Helgi, se m hann át ti og rak þar til fyrir fá einum áru m. Stangveiði var aðaláh ugamál Gí sla Eiríks a lla tíð og sinnti h ann meða l annars tr únaðarstö rfum fyrir Stangveið ifélag Reyk javíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskir kju. G 1 s gason æddist í Hann firði 12. drar hans Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í að ve tur m sínum ur, f. úkr- u: u ð ur ð Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum. Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941. Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr- unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna- band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru: 1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999. 2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2. 1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3) Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980. Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði. Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv- inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti og rak þar til fyrir fáeinum árum. Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, Guðný (Gulla) Guðbjartsdóttir Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, lést föstudaginn 5. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Jónína Jónsdóttir Hlöðver Jóhannsson Guðfinna Jónsdóttir Hallberg Guðmundsson Herdís Jónsdóttir Flink Allan Flink Helga Jónsdóttir Arnór Guðmundsson Björn Hermann Jónsson Auður Elfa Steinsdóttir Margrét Lovísa Jónsdóttir Guðmunda Guðbjartsdóttir Ásgeir Guðbjartsson Sólveig Guðbjartsdóttir Sveinn Guðbjartsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.