Fréttablaðið - 04.03.2010, Qupperneq 36
4. MARS 2010 FIMMTUDAGUR4 ● gleraugu
Gleraugu þarf að þrífa reglulega en
ekki er sama hvernig það er gert. Á
heimasíðu verslunarinnar Sjónar-
hóls í Hafnarfirði er að finna góðar
leiðbeiningar um þrif á gleraugum
en þar er varað við því að strjúka
glerin með rykugum klút eða nudda
gleraugunum við föt. Eins þurfi
að passa að þau verði ekki fyrir
hnjaski, rekist ekki utan í hart og
óráðlegt er að geyma þau óvar-
in í vasa. Hreinsa skal glerin með
köldu rennandi vatni, ekki heitu
og strjúka glerin létt með fingrun-
um undir bununni. Ráð er að nudda
einum dropa af uppþvottalegi milli
fingranna og strjúka svo yfir gler-
in og skola. Glerin eru orðin hrein
þegar þau verða stöm viðkomu og
þá skal þurrka þau með hreinum
gleraugnaklút. - rat
Smá uppþvottalögur hentar vel í þrifin.
Naomi Campbell er með sporöskjulaga
höfuðlag og er því svo heppin að geta
valið hvaða umgjörð sem er.
Val á gleraugnaumgjörðum ætti
að taka mið af höfuðlagi. Þeir
sem eru svo heppnir að vera með
egglaga höfuð geta reyndar valið
hvaða gleraugnaumgjörð sem er
enda eru hlutföllin í andlitinu jöfn
og óhætt að leika sér með umgjarð-
ir. Þó er mælt með því að byrja að
prófa fiðrilda- eða sporöskjulaga
gjarðir.
Ferkantað höfuðlag einkennist
af breiðu enni, framstæðum kjálka
og skarpri höku. Kringlóttar gjarð-
ir vega því vel upp á móti auk
þess sem kisulag fer mörgum vel.
Kringluleitt fólk ætti aftur á móti
að velja hornréttar gjarðir en þá
virkar höfuðið mjórra. Séu gjarð-
irnar fremur láréttar en lóðréttar
virkar andlitið auk þess lengra og
sömu áhrif hefur það ef umgjarð-
irnar eru í hærri kantinum.
Kisu- eða fiðrildagleraugu fara
fólki með hjartalaga andlit vel
auk þess sem kringlóttar gjarðir í
léttum litum draga úr breiðu enn-
inu. Séu umgjarðirnar breiðari að
neðan en ofan geta þær auk þess
vegið upp á móti mjórri hökunni.
Sum gleraugu gera mikið úr enn-
inu og því ætti fólk með hjartalaga
andlit að forðast gjarðir með flúri
að ofan. - ve
Valið miðast
við höfuðlag
● SJÓNTÆKI MEÐ LANGA SÖGU Gleraugu sem eru borin á
nefi eru elsta gerð sjóntækja. Þau fyrstu sem vitað er um komu fram á
Ítalíu árið 1284. Fyrstu sönnunargögnin má hins vegar sjá í verki ítalska
listmálarans Tommaso da Modena frá árinu 1352 en þar má sjá kardín-
álann Hugh de Provence lesa bók með hjálp gleraugna. Af öðrum sjón-
tækjum má nefna einglyrni sem er sjóngler borið fyrir eitt auga, lúpu
sem er lítið stækkunargler sem er notað við vinnu með smáa hluti og
augnlinsur, sem eru settar utan á
hornhimnu aug-
ans, og komu
fram á seinni
hluta 20. aldar.
Heimild: wikipedia
Lúxusnámskeið Nordicaspa
er hannað til að koma þér
af stað á mjög árangursríkan
og einfaldan hátt.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 8. mars
Fyrirlestur 6. mars
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Lúxusnámskeið
NORDICASPA
fyrir konur og karla
4 vikna
Helga Pálsdóttir, 40 ára og 4 barna móðir
Ráðgjafi hjá Allianz – Missti 8 kg á 9 vikum.
Að vera orkumeiri og léttari er orðinn lífsstíll hjá mér.
Ég gerði þetta af skynsemi og þú getur það líka!
Þrif á gleraugum
● HLÍFÐAR-
BÚNAÐUR Snjó-
blinda orsakast af
því að sólin brennir
hornhimnu aug-
ans. Yfirleitt hverfa
einkennin af sjálfu
sér á tveimur sólar-
hringum. Samt er
betra að hlífa aug-
unum sem mest
á meðan og nota
sólgleraugu.