Fréttablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 8
8 11. mars 2010 FIMMTUDAGUR VEISTU SVARIÐ? 1. Hvaða tegund yoga stundar söngkonan Hera Björk þessa dagana? 2. Hvað eru margir kettir í Hrísey? 3. Hver er Eldhugi Kópavogs í ár? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 46 Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS verður haldinn í Veisluturninum, 20. hæð, Smáratorgi 3, Kópavogi, miðvikudaginn 17. mars nk. kl. 19.30. Dagskrá: 1. Kynning frambjóðenda til trúnaðarstarfa fyrir VR. 2. Fyrirspurnir og umræður. Félagsmenn hvattir til að mæta. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Laugalandi, Holtum, föstudaginn 26. mars 2010 og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 9. mars 2010. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. UTANRÍKISMÁL Ný ákvæði í þýskum lögum gætu orðið til þess að þýska þjóðþingið fái ekki nægan tíma til að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður Evrópusam- bandsins við Ísland áður en málið verður tekið fyrir á næsta fundi Leiðtogaráðs Evrópusambandsins dagana 25. og 26. mars, eða eftir aðeins hálfan mánuð. Þetta verður í fyrsta sinn sem reynir á þetta ákvæði, sem kveð- ur á um að ráðherrar í ríkisstjórn Þýskalands verði að hafa samráð við þingið áður en þeir taka þátt í ákvörðunum á vettvangi ráðherra- ráðs Evrópusambandsins. Samkvæmt þingsköpum þýska þingsins er hægt að afgreiða slík mál á einum þingfundi. Heimilt er þó að vísa máli til nefndar, ef einn þingflokkur eða fimm prósent þingmanna fara fram á það. Málið kæmi þá til kasta Evrópunefndar þýska þingsins, sem gæti sömuleið- is afgreitt málið á einum fundi. Líklega myndu þó fleiri nefnd- ir vilja hafa aðkomu að málinu, svo sem utanríkismálanefnd, og það gæti flækt afgreiðslu máls- ins og tafið hana. Lögin gefa þó kost á því, ef vilji er fyrir hendi, að afgreiða málið á sameiginlegum fundi allra þeirra nefnda sem vilja taka þátt í umræðunum. Óvissan um afgreiðslu þings- ins stafar fyrst og fremst af því að þetta verður í fyrsta sinn sem reynir á fyrrnefnt ákvæði í þýsk- um lögum um samráð ríkisstjórn- ar og þings í málefnum Evrópu- sambandsins. Þingið hefur að vísu alla möguleika til að afgreiða málið hratt, en hvorki í utanríkis- ráðuneyti Þýskalands né hjá þýska þjóðþinginu var í gær hægt að fá staðfestingu á því að þeir mögu- leikar verði nýttir. Það verði ein- faldlega að koma í ljós, hvern- ig framkvæmdin verður í þetta sinn. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins bar þetta mál á góma í síð- ustu viku á fundi Össurar Skarp- héðinssonar utanríkisráðherra með Guido Westerwelle, hinum þýska starfsbróður hans í Berlín. Á þeim fundi fagnaði Wester- welle skýrslu framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins um Ísland, þar sem mælt var með því að aðild- arviðræður hefjist sem fyrst. Sendinefnd frá þýska þinginu verður á Íslandi í dag og á morg- un að ræða við ráðherra og flokks- leiðtoga. gudsteinn@frettabladid.is Ákvörðunin gæti tafist Aðildarviðræður við Ísland koma væntanlega til kasta l eiðtogaráðs Evrópusambandsins á næsta fundi þess. Nokkur óvissa er þó um það hvort þýska þingið nær að afgreiða málið innan tveggja vikna. ATKVÆÐAGREIÐSLA Á ÞÝSKA ÞINGINU Angela Merkel kanslari og aðrir þingmenn í kös við kjörkassann. NORDICPHOTOS/AFP Forsögu málsins má rekja til þess að vorið 2008 kærði þýskur þingmaður, Peter Gauweiler, stað- festingu þýska þingsins á Lissa- bon-sáttmála Evrópusambandsins. Stjórnlagadómstóll Þýskalands komst að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa brætt málið með sér í rúmt ár, að til þess að fullnægja kröfum stjórnarskrárinnar verði ríkisstjórnin að hafa þýska þingið með í ráðum á vettvangi Evrópusambandsins. Í framhaldi af þessum dómi, Lissa- bon-dómnum sem svo er nefndur í Þýskalandi, breytti svo þýska þingið síðastliðið haust lögum um samráð þings og ríkisstjórnar í málefnum Evrópusambandsins með ákvæðum um að þingið eigi alltaf skýlausan rétt á því að segja álit sitt áður en ákvörðun er tekin á vettvangi ráð- herraráðs Evrópusambandsins. LISSABON-DÓMURINN Í ÞÝSKALANDI MENNTUN Unnið er að stofnun gæða- ráðs fyrir háskólana sem hafi gæða- eftirlit með kennslu og rannsóknum við skólana. Með því færist matið út fyrir mennta- og menningarmála- ráðuneytið og verður sjálfstætt. Eindregnar óskir hafa komið fram um stofnun slíks ráðs í þeim vinnuhópum sem ráðherra hefur skipað undanfarna mánuði. Katr- ín Jakobsdóttir menntamálaráð- herra hefur nú, samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins, ákveðið að verða við þessum óskum. Gæða- ráðið verður skipað erlendum sér- fræðingum. Undanfarið hefur verið unnið að stofnun þess og hafa erlendir sér- fræðingar komið að þeirri vinnu, enda er ráðið að erlendri fyrirmynd. Stefnt er að því að gæðaráðið verði stofnað vorið 2010 og hefji fulla starfsemi þá um haustið. Reiknað er með að ráðið verði skipað fjórum til sex alþjóðlegum sérfræðingum og ráðherra skipi for- mann úr þeim hópi. Skrifstofa ráðs- ins verður að öllum líkindum í húsa- kynnum Rannís. Meðal verkefna ráðsins verður að gefa út gæðahandbók og að hafa yfirumsjón með því að samþykktum sé fylgt varðandi tryggingu gæða út á við. - kóp Gæðaeftirlit með háskólum verður í höndum erlendra sérfræðinga: Gæðaráð háskólanna stofnað ÁRNAGARÐUR VIÐ HÍ Gæðaráðið mun hafa yfirumsjón með gæðaeftirliti í öllum háskólum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Auglýsingasími Allt sem þú þarft… NÁTTÚRA Skipverjar á Sighvati Bjarnasyni VE komu á mánudag með lifandi loðnu til Fiskasafns- ins í Vestmannaeyjum. Það má undrum sæta að loðnan svaraði kalli náttúrunnar, þrátt fyrir vistaskiftin, og hrygndi morgun- inn eftir. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga er loðnuveiðum að ljúka. Loðnan sem veidd er á stutt eftir í hrygn- ingu eins og dæmið frá safninu sýnir. Mörg fyrirtæki hafa veitt allan sinn afla úr loðnu sem lengst er gengin og hefur mesta hrognafyllingu. Með því er náð hámarks verðmætum úr þeim rúmlega hundrað þúsund tonnum sem leyfilegt er að veiða á vertíð- inni. - shá Ótrúlegt en satt: Loðna hrygndi í fiskasafninu DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að ógna tveimur lögreglu- mönnum, sem voru við skyldu- störf í Vestmannaeyjum, með því að ganga að þeim með golfkylfu reidda til höggs. Þetta átti sér stað í október á síðasta ári. Jafnframt er maðurinn ákærð- ur fyrir að hafa hótað þriðja lög- reglumanninum lífláti. Maður- inn hafði þá verið handtekinn og hafði hótanirnar í frammi á lög- reglustöðinni í Vestmannaeyjum. - jss Reiddi golfkylfu að lögreglu: Ákærður fyrir líflátshótun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.