Fréttablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 56
40 11. mars 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Boðið verður upp á
hvern stórleikinn á fætur öðrum
þegar öll sex efstu liðin í Iceland
Express-deild karla mætast inn-
byrðis í 20. umferðinni í kvöld og
á morgun. Það er allt í hnút í 2.
til 6. sæti og við bætist að barátt-
an um síðustu sætin inn í úrslita-
keppnina hefur harðnað með
hverri umferð eftir áramótin.
Stórleikir umferðarinnar eru
milli efstu liðanna. Keflavík
tekur á móti nágrönnum sínum úr
Njarðvík í Toyota-höllinni í kvöld
og á morgun mætast Stjarnan og
KR í Garðabæ og Snæfell tekur á
móti Grindavík í Stykkishólmi.
KR-ingar hafa fjögurra stiga
forskot í efsta sæti deildar-
innar og geta orðið deildar-
meistarar í Garðabænum
á föstudaginn verði önnur
úrslit þeim hagstæð. KR
verður deildarmeistari
ef liðið vinnur Stjörn-
una, Njarðvík vinn-
ur Keflavík í
kvöld og Snæ-
fell vinnur
Grindavík
á morgun.
Njarðvík
væri þá
eina liðið sem gæti náð þeim að
stigum en KR væri alltaf ofar
vegna betri árangurs í innbyrðis-
viðureignum.
Liðin í 2. til 6. sæti eiga öll enn
möguleika á deildarmeistaratitl-
inum þó að möguleikar Snæfells
og Stjörnunnar séu meira töl-
fræði en raunverulegir mögu-
leikar. Bikarmeistarar tveggja
síðustu ára, Snæfell og Stjarn-
an, eru í 5. og 6. sæti, sex stig-
um á eftir KR og tveimur stigum
á eftir Njarðvík, Grindavík og
Keflavík sem eru í 2. til 4. sæti.
Blikar geta fallið í þessari
umferð verði úrslit þeim óhag-
stæð en það kemur ekki í
ljós fyrr en á morgun.
Ef Blikar tapa á móti
Hamri í Smáranum í
kvöld falla þeir með
FSU ef Fjölnir vinn-
ur ÍR á morgun. Leikur
Fjölnis og ÍR er einn af
lykilleikjunum um síðustu
sætin inn í átta liða úrslit-
in en liðin eru sem stend-
ur jöfn að stigum. Fjölnir
þarf síðan að vinna með
12 stiga mun til að vera
með betri árangur en
ÍR í innbyrðisviður-
eignum. - óój
20. umferð Iceland Express-deildar karla í körfu:
Stórleikja-dagar
EFSTIR Páll
Kolbeinsson,
þjálfari KR.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
H A N D B O LT I V i ð u r e i g n i r
Hafnarfjarðarliðanna FH og
Hauka hafa verið hreint ótrúleg
skemmtun í vetur. Leikirnir
hnífjafnir, kappið og baráttan
mikil og stemningin í stúkunni
engu lík.
Haukar hafa haft betur í öll
skiptin í vetur og síðustu tvo leiki
unnu þeir aðeins með eins marks
mun. Dramatíkin var þá alls
ráðandi og er ekki búist við minni
spennu í kvöld.
„Þetta hafa verið hörkuleikir
en ekki dottið okkar megin því
miður. Við hefðum átt að vinna
báða leikina í Krikanum og það
var helvítis klúður að klára það
ekki. Ég veit það er klisjukennt
að segja að reynsluleysi hafi orðið
okkur að falli en það var samt
líklega raunin. Við teljum okkur þó
hafa lært mikið af þessum leikjum
og klikkum ekki aftur. Okkar
tími er kominn núna,“ segir hinn
húsvíski markvörður FH, Pálmar
Pétursson.
„Þeir unnu fyrsta leikinn með
þrem mörkum en þá settum við
líklega Íslandsmet í tæknifeilum.
Síðan höfum við verið sterkari og
það var alveg átakanlegt að tapa
síðustu tveim leikjum. Það er fátt
leiðinlegra en að tapa fyrir Hauk-
um. Við tökum þetta núna, ég er
alveg pottþéttur á því,“ segir
Pálmar sem verður líklega í sér-
stakri stöðu á leikdag.
Unnusta hans er ófrísk og átti að
eiga fyrir níu dögum. Pálmar er
því pínu hræddur að það gæti sett
strik í reikninginn hjá sér en hefur
sent unnustunni skýr skilaboð.
„Barnið má bara alls ekki koma
á leiktíma. Ég er búinn að segja
henni að það megi ekkert gerast á
milli fimm og níu. Hún verður bara
að halda í sér. Það er ekkert annað
í stöðunni,“ segir Pálmar léttur og
bætir við ef það gangi ekki muni
hann hugsanlega bara mæta í síð-
ari hálfleik eins og Bergsveinn
Bergsveinsson, markmannsþjálf-
ari FH og fyrrum markvörður
liðsins, gerði um árið.
Hin magnaða stemning sem er á
þessum leikjum hefur gert það að
verkum að alls konar fólk sem alla
jafna mætir ekki á handboltaleiki
kemur á völlinn. Það vill upplifa
þessa mögnuðu stemningu.
„Ég hef tvisvar orðið bikar-
meistari og einu sinni Íslands-
meistari en stemningin í kring-
um það var ekkert í líkingu við
stemninguna á þessum leikjum.
Maður áttar sig í raun ekki á bil-
uninni fyrr en maður er kominn út
á völlinn. Þessi stemning er engu
lík. Nú er bara að vinna í þessari
stemningu, það er það eina sem ég
á eftir,“ segir Pálmar Pétursson,
markvörður FH.
henry@frettabladid.is
Barnið má ekki fæðast á leiktíma
Það verður mikil stemning og væntanlega húsfyllir í Kaplakrika í kvöld er FH og Haukar mætast í N1-deild
karla. Leikir þessara liða eru orðnir að stærstu íþróttaviðburðum í íslensku íþróttalífi. Pálmar Pétursson,
markvörður FH, mun spila og hefur bannað unnustu sinni að eignast barn þeirra meðan á leik stendur.
Á TÁNUM Pálmar Pétursson er að vonast til þess að þurfa ekki að hlaupa á fæðingar-
deildina meðan á leik FH og Hauka stendur í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Haukur Helgi Pálsson hefur ákveðið að spila með Maryland-háskóla-
liðinu í bandaríska háskólaboltanum og er þetta í fyrsta sinn sem
íslenskur körfuboltamaður kemst að hjá svona sterkum skóla.
„Þetta er ótrúlegt og ég hlakka ekkert smá mikið til. Þetta verður
eitthvað fyrir reynslubankann,” segir Haukur Helgi Pálsson kátur.
„Ég valdi á milli Maryland og tveggja annarra skóla. University of
South Florida sem er í Big East og University of Central Florida
sem er með son Michaels Jordan í liðinu,“ segir Haukur sem
hafði hugsað sér að vera áfram í Flórída en það breyttist
þegar möguleikinn á Maryland opnaðist.
„Ástæðan fyrir því að ég valdi Maryland er að ég vil
verða í vinningsliði og það er of spennandi að sleppa
því að fá að vera hluti af einhverju svona stóru. Það
hjálpaði líka hversu vel mér leið í heimsókninni þang-
að,” segir Haukur.
Þegar Haukur heimsótti Maryland þá fór hann
á leik á móti Duke. „Það er erfitt að lýsa þessu því
stemningin var rosaleg. Það voru 18 þúsund manns á leiknum og
þetta var alveg geðveikt. Ég var í nemendastúkunni og það vissu
allir einhvern veginn hver ég var og þau voru alltaf að spyrja
mig hvort ég væri ekki að koma í skólann,” segir Haukur.
„Aðstæðurnar til að æfa körfubolta í skólanum eru góðar og ég
hef fullan aðgang að íþróttahúsinu allan sólarhringinn. Þannig
að ef mig langar að fara að skjóta klukkan fimm um morguninn
þá get ég það,“ segir Haukur. Gary Williams hefur þjálfað Mary-
land-liðið í 21 ár. „Ég talaði aðeins við hann eftir leikinn
og það eina sem hann sagði við mig var: „Aldrei láta
neinn segja þér að þú getir ekki gert eitthvað,“ segir
Haukur sem vissi af því þegar Williams var að horfa á
hann æfa og spila með Montverde.
„Ég stóð mig bara frekar vel en ég var samt ekkert
að stressa mig yfir því að hann væri að horfa á mig.
Honum leist greinilega það vel á mig að hann bauð
mér strax að koma.“
HAUKUR HELGI PÁLSSON: Á LEIÐINNI TIL MARYLAND Í EINN BESTA KÖRFUBOLTASKÓLA BANDARÍKJANNA
Aldrei láta neinn segja þér að þú getir ekki gert eitthvað
> Alfreð Örn til Noregs
Íslenskum handboltaþjálfurum heldur áfram að fjölga í
Noregi en kvennaþjálfarinn Alfreð Örn Finnsson samdi
í gær við norska C-deildarliðið Volda. Alfreð hefur áður
þjálfað bæði Gróttu og ÍBV hér á landi. Þrír íslenskir
handboltaþjálfarar verða því við störf í Noregi næsta
vetur. Ágúst Þór Jóhannsson er að þjálfa
kvennalið Levanger, Gunnar Magnús-
son, þjálfari HK, mun taka við karlaliði
Kristiansund í sumar. Svo var
Konráð Hilmar Olavsson Hatle-
mark að þjálfa karlalið Kristians-
and en hann hætti þar í síðasta
mánuði þegar upp kom ósætti í
herbúðum félagsins.
NJARÐARBRAUT 9 - REYK
JAN
ES
BÆ
FIS
KIS
LÓÐ
3 - REYKJAVÍK
FÓTBOLTI Dave Whelan,
stjórnarformaður Wigan, sagði
greinilegt að allt væri í rugli
hjá Liverpool eftir að hans lið
vann sigur í viðureign liðanna á
mánudaginn.
Whelan sagðist vorkenna
stuðningsmönnum Liverpool því
greinilegt væri að bandarískir
eigendur félagsins væru ekki
jafn heitir fyrir Liverpool
og þeir. „Við fórum á Anfield
fyrr á tímabilinu og þar var
andrúmsloftið lélegt og það
vantaði hjartað. Stuðningsmenn
finna það og ég held að leikmenn
séu byrjaðir að finna það líka,“
sagði Whelan.
Rafa Benítez, knattspyrnustjóri
Liverpool, var ekki sáttur við
þessi ummæli Whelans. „Ég ræði
ekki málefni Wigan og hann ætti
að einbeita sér að sínu félagi,“
sagði Benítez.
Eftir úrslitin á mánudag
er Liverpool í sjötta sæti
deildarinnar. - egm
Benítez svarar Dave Whelan:
Einbeittu þér
að þínu félagi
ALLT Í RUGLI? Benítez segir Whelan að
skipta sér ekki af. NORDICPHOTOS/GETTY