Fréttablaðið - 11.03.2010, Page 16
16 11. mars 2010 FIMMTUDAGUR
BERGMÁL
Bergmál var upphaflega kór en
breyttist í líknar- og vinafélag í
kjölfar þess að einn kórfélaginn
veiktist af krabbameini sem dró
hann til dauða. Markmið Berg-
máls er að bjóða langveikum og
blindum ókeypis orlofsdvöl að
sumri en í sumar eru fimmtán
ár frá því að sú starfsemi hófst.
Félagið á nú og rekur hús sem
hentar starfseminni. Allir sem að
starfi Bergmáls koma gefa vinnu
sína.
SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS 2010
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í fimmta sinn í dag. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum en einnig eru veitt heiðursverðlaun. Í hverjum
hinna fjögurra flokka eru fimm tilnefningar sem kynntar eru á þessari síðu og síðu 18. Forseti Íslands afhendir Samfélagsverðlaunin.
Athyglinni beint að góðverkum
Í SUMARDVÖL Vel fer um alla gesti í björtum og fallegum húsa-
kynnum í Bergheimum.
ÚR HJÁLPARSTARFI Hjálparf kirkjunnar stendur fyrir
umfangsmikilli hjálparstarfi bæði erlendis og innanlands.
HÚFUVERKEFNIÐ Á 80 ára afmæli Kvenfélagasambands
Íslands færa kvenfélagskonur um allt land nýburum húfu
að gjöf.
FRÁ HAÍTÍ Skjót viðbrögð og björgunarstarf
íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar vakti
athygli eftir jarðskjálftana á Haítí í janúar.
Á FUNDI Í FORELDRAHÚSI Í Foreldrahúsum Vímulausrar æsku fer
fram margháttað starf sem styður við fjölskyldur ungra vímuefna-
neytenda.
GAURAFLOKKURINN Í
VATNASKÓGI
Ársæll Aðalbergsson framkvæmda-
stjóri Vatnaskógar, Bóas Valdórsson
sálfræðingur og séra Sigurður Grét-
ar Sigurðsson hafa staðið saman
að því að taka á móti sérhópi
drengja með ADHD í Vatnaskógi.
Markmiðið er að drengir með
ADHD geti sótt sumarbúðir eins
og aðrir drengir í Vatnaskógi. Til
að mæta þörfum drengjanna er
fjölmennara starfslið í Gauraflokki
en öðrum flokkum í Skóginum
og er kostnaðinum mætt með
fjáröflun til að foreldrar beri ekki
meiri kostnað af dvölinni en aðrir
foreldrar.
FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐARSAMFÉLAGSVERÐLAUN
HJÁLPARSTARF
KIRKJUNNAR
Allar kirkjur innan Þjóðkirkjunnar
standa að Hjálparstarfi kirkjunnar sem
stofnað var 1970. Lengst af einbeitti
Hjálparstarfið sér að því að veita
aðstoð til bágstaddra þjóða og hefur
Hjálparstarf kirkjunnar tekið þátt í
hjálpar starfi víða um heim. Athygli
vekur hversu skjótt er brugðist við
hjá Hjálparstarfi kirkjunnar til dæmis
þegar hamfarir dynja á bágstöddum
þjóðum. Þá hefur Hjálparstarfið hin
síðari ár einbeitt sér í auknum mæli að
því að mæta vaxandi þörf fyrir aðstoð
innanlands.
KVENFÉLAGASAMBAND
ÍSLANDS
Hátt á annað hundrað kvenfélög starfa
í landinu og er Kvenfélagasamband
Íslands regnhlífarsamtök þeirra. Starf
Kvenfélagasambandsins byggir á
grunninum sem lagður var við stofnun
þess fyrir 80 árum en hefur lagað sig
að breyttum heimi, einkum breyttri
stöðu kvenna í samfélaginu. Markmið
sambandsins snúast meðal annars um
að standa vörð um hag íslenskra heim-
ila og fylgjast með opinberum ákvörð-
unum sem snúa að menntunarmálum
barna, heilbrigðis- og félagsmálum.
Öll starfsemi kvenfélaganna byggir á
sjálfboðavinnu.
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG
Innan vébanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar er
unnið umfangsmikið sjálfboðaliðastarf. Björgunar-
sveitarmenn svara kalli nótt sem nýtan dag og fara
út í hvaða veður og aðstæður sem er með það að
leiðarljósi að bjarga mannslífum. Skemmst er að
minnast snarpra viðbragða Íslensku alþjóðabjörgun
arsveitarinnar eftir jarðskjálftann á Haítí í janúar en
sveitin var með fyrstu erlendu björgunarsveitunum
sem komu á staðinn og skildi hún þar eftir mikinn
búnað til afnota fyrir björgunarmenn sem á eftir
komu.
VÍMULAUS ÆSKA
Foreldrasamtökin Vímulaus
æska eru stofnuð af foreldr-
um sem vildu leggja sitt af
mörkum í baráttunni gegn
vímuefnaneyslu. Starfsemi
samtakanna beinist að því að
styðja við foreldra ungmenna
í vímuefnavanda. Í því skyni
starfa á vegum þeirra foreldra-
hópar en einnig er boðið upp
á fjölskylduráðgjöf á vegum
samtakanna og eftirmeðferð
fyrir unglinga sem lokið hafa
vímuefnameðferð. Frá 2002
hafa samtökin rekið Foreldrahús
í Reykjavík og frá 2006 einnig í
Hafnarfirði.
Í VATNASKÓGI Drengirnir í Gauraflokknum njóta þess að busla
og taka þátt í öðrum leikjum í Vatnaskógi.
HALLFRÍÐUR OG MAXÍMÚS Hallfríður Ólafsdóttir flautu-
leikari í Sinfóníuhljómsveitinni skóp músina Maxímús
sem kynnir tónlist fyrir börnum.
LAILA MARGRÉT ARNÞÓRSDÓTTIR Tinna táknmálsálfur er fyrsta
persónan í íslensku sjónvarpsefni fyrir börn sem eiga táknmálið
að móðurmáli.
GLEÐIDAGAR Það er glatt á hjalla á sumarnámskeiðunum
Gleðidögum þar sem kynslóðirnar mætast.
Á TÓNLEIKUM Valgerður Jónsdóttir leikur
á tónleikum ásamt nemanda sínum.
HALLFRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Hallfríður Ólafsdóttir er höfundur bók-
arinnar Maxímús Músíkús heimsækir
hljómsveitina. Sagan fjallar um litla
mús sem villist inn í tónlistarhús þar
sem heil sinfóníuhljómsveit er að hefja
æfingu. Meðan hljóðfæraleikararnir
stilla hljóðfæri sín verður músin, og um
leið börnin sem á söguna hlýða, margs
vísari um hljóðfærin og að lokum hlýðir
músin á tónleika ásamt prúðbúnum
tónleikagestum. Bókin hefur notið
mikilla vinsælda og hefur komið út í
Færeyjum og Kóreu. Sömuleiðis hafa
Maxímús-tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands notið hylli barna. Á þessu ári
er væntanlegt framhald af sögunni um
Maxímús Músíkús.
LAILA MARGRÉT
ARNÞÓRSDÓTTIR
Tinna táknmálsálfur er sköpunar-
verk Lailu Margrétar Arnþórsdóttur.
Hún hefur birst í Stundinni okkar í
vetur og verða þættirnir um hana
alls átta að sinni. Tinna táknmáls-
álfur talar táknmál en þættirnir um
hana eru þó talsettir þannig að
börn sem ekki tala táknmál geti líka
fylgst með ævintýrum hennar. Fyrir
tíma Tinnu hafði ekkert barnaefni
verið framleitt sérstaklega á Íslandi
fyrir fyrir börn sem tala táknmál.
Verulega er vandað til gerðar þátt-
anna og hefur Laila Margrét gefið
alla vinnu sína í tengslum við gerð
þeirra.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
OG ÖLDRUNARRÁÐ
Gleðidagar eru vikulöng sumarnám-
skeið ætluð börnum á aldrinum
7 til 12 ára. Leiðbeinendur á
námskeiðunum eru aðallega eldri
borgarar en þeim til aðstoðar eru
nemendur í félagsráðgjöf við HÍ
og sjálfboðaliðar Rauða krossins.
Tilgangur námskeiðanna er að
sameina unga og aldna báðum
til hagsbóta. Börnin kynnast á
námskeiðunum gömlum gildum
og hefðum en einnig hugsjónum
Rauða krossins um mannúð og
óhlutdrægni. Boðið var upp á nám-
skeiðin sumarið 2009 og verða þau
aftur í boði á komandi sumri.
TÓNSTOFA VALGERÐAR
Í Tónstofu Valgerðar fer fram tónlistarkennsla
sem sérstaklega er löguð að þörfum nemenda
með sérþarfir og er skólinn eini tónlistar-
skólinn á landinu þar sem þessir nemendur
njóta forgangs. Nemendur Tónstofunnar geta
bæði lagt stund á hefðbundið tónlistarnám
og fjölþætt nám og þjálfun sem beinist að því
efla tónnæmi og tónlistarfærni, bæta líðan og
veita útrás fyrir sköpunarþrá.
Framhald á síðu 18