Fréttablaðið - 11.03.2010, Síða 24
24 11. mars 2010 FIMMTUDAGUR
Guðmundi Andra svarað
UMRÆÐAN
Sigurður Magnússon skrifar um bæj-
armál á Álftanesi
Guðmundur Andri á við bæjarstjóra Á-lista, sem „þriðja bæjarstjórann“,
í skrifum sínum á dögunum í Fréttablað-
inu, bæjarstjórann sem ákvað að bregð-
ast við óskum íbúanna við Blikastíg og
Fálkastíg, um betra leiksvæði. Tveir
fyrri bæjarstjórar höfðu skellt skollaeyr-
um við óskum þeirra.
Þetta er rétt, bæjarstjóri Á-lista fól fram-
kvæmdadeild bæjarins að gera þarna umbætur
og horfa til þess sem vel hefði tekist í öðrum
hverfum s.s. við Miðskóga. Ef að ekki hefur tek-
ist vel til, eins og að var stefnt, skrifast það á
misskilning sem stjórnsýsla bæjarins þarf að
leiðrétta. Í tilefni þessara skrifa vil ég þó full-
yrða að aldrei hefur áður verðið gert jafn mikið
til að bæta aðstöðu og umhverfi barna og ungl-
inga á Álftanesi eins og í tíð Á-lista. Fram-
kvæmdir við skóla- og íþróttasvæði vitna um
þessar áherslur í starfinu og ekki síður margvís-
legar umbætur í umferðaröryggismálum.
Skoðanir Guðmundar Andra og forystu Á-lista,
fara saman, um að ekki sé grundvöllur fyrir
rekstri sjálfstæðs sveitarfélags á Álftanesi við
núverandi fjárhagslegar forsendur. Hann talar
fyrir sameiningu, en Á-listinn hefur lagt áherslu
á að treysta tekjustofna bæjarsjóðs, s.s. með
uppbyggingu atvinnulífs sem falli að viðkvæmu
umhverfi Álftaness og um leiðréttingu á greiðsl-
um frá Jöfnunarsjóði. Á miðsvæðinu lét Á-listinn
skipuleggja atvinnubyggð fyrir ferða- og menn-
ingartengda þjónustu og nærþjónustu fyrir íbú-
ana.
Með uppbyggingu vildi Á-listinn breyta svefn-
bæ í sjálfbært samfélag. Bygging glæsilegrar
sundlaugar sem glatt hefur börn og fullorðna á
Álftanesi og hefur dregið að sér áttatíu og fimm
þúsund gesti, var m.a. liður í þessum áformum.
Hópur, skipaður starfsmönnum á sviði íþrótta-
og æskulýðsmála, starfaði með hönn-
uðum við undirbúning sundmiðstöðv-
arinnar. Hönnun og val á búnaði hefur
í flestum efnum tekist vel þótt einstök
atriði kunni að vera álitaefni. Vatns-
rennibrautin vinsæla sem blasir við frá
Álftanesvegi er áberandi í umhverfinu,
en mun hverfa úr sjónlínu frá veginum
þegar þjónustuhús Búmanna á miðsvæð-
inu rís en framkvæmdir við það eru
hafnar. Gula litinn, val arkitekts hússins,
má svo mála yfir ef þurfa þykir og fella
hann að umhverfislitum.
Sumir halda því fram að fjárhagsvandi Álfta-
ness stafi af byggingu nýju laugarinnar, en horfa
þá framhjá tjóni sveitarfélagsins í bankahrun-
inu vegna lána og skuldbindinga, sem er meira
en byggingarkostnaður hinnar nýju laugar. Þótt
framkvæmdin hafi verið stór væri rekstur laug-
arinnar ekki ofviða sveitarfélaginu við efnahags-
legar aðstæður sem horft var til við ákvarðana-
tökuna 2006.
Guðmundur Andri þekkir líka vel markmið
Á-listans og framkvæmdir, og þar með virkan
stuðning við hugsjónir umhverfisverndarfólks
á Álftanesi, sem vill varðveita einstaka náttúru,
fjölbreytileika lífríkisins og sýna sögu og menn-
ingu ræktarsemi. Stórt skref í þessa átt var stig-
ið 8. apríl 2009 þegar bæjarstjóri undirritaði
viljayfirlýsingu við ráðherra umhverfismála og
menntamála um samvinnu Álftanesbæjar og rík-
isins um rekstur menningar- og náttúrufræðiset-
urs og gestastofu vegna verndunar Skerjafjarð-
ar.
Því miður hafa þessi góðu áform verið sett
á hliðarlínuna. Áfram verður þó barist fyrir
verndun á einstakri náttúru á Álftanesi fyrir
komandi kynslóðir, fjörum, sjávartjörnum og
votlendi og að menningarsögu svæðisins verði
sómi sýndur. Í baráttu fyrir þeim málstað verður
áfram óskað liðsinnis Guðmundar Andra.
Höfundur er bæjarfulltrúi Á-lista og fyrrverandi
bæjarstjóri á Álftanesi.
SIGURÐUR
MAGNÚSSON
Framkvæmdastopp í Reykjavík
UMRÆÐAN
Dagur B. Eggertsson
skrifar um atvinnumál
Átakalínurnar í aðdrag-anda borgarstjórn-
arkosninga eru að skýr-
ast. Samfylkingin vill að
Reykjavíkurborg ráðist
í nauðsynlegt viðhald og
framkvæmdir á næstu
þremur árum og halda þannig uppi
atvinnu í mestu kreppunni. Sjálf-
stæðisflokkurinn boðar frjáls-
hyggju og afskiptaleysi og boðar
70% niðurskurð í framkvæmd-
um næstu þrjú árin. Þetta birtist í
þriggja ára áætlun um framkvæmd-
ir og rekstur Reykjavíkurborg-
ar sem meirihluti borgarstjórnar
kynnti í síðustu viku.
Fjárfesting úr 10 milljörðum í einn
Þriggja ára áætlun meirihlutans
felur nánast í sér framkvæmda-
stopp. Heildarfjárfesting A-hluta
borgarinnar á tímabilinu á að vera
6,6 milljarðar sem er minna en
framkvæmt hefur verið á meðal-
ári að undanförnu. Þess má geta að
árið 2008 var framkvæmt fyrir 10,3
milljarða en framkvæma á fyrir 1,3
árið 2013 samkvæmt hinni nýju
áætlun. Þetta samhengi sést vel á
meðfylgjandi mynd.
Ekki gert ráð fyrir
Hverahlíðavirkjun
Þá vekur sérstaka athygli að í
þriggja ára áætlun Orkuveitu
Reykjavíkur er ekki gert ráð fyrir
fjármögnun eða fram-
kvæmdum við Hvera-
hlíðarvirkjun en góð sátt
hefur verið um þá fram-
kvæmd frá umhverfis-
sjónarmiðum. Skýring-
anna er að leita í því að
meirihlutinn hefur keyrt
fjárhag fyrirtækisins
út á ystu nöf með því að
fjórfalda skuldir þess
á fjórum árum, þrátt
fyrir viðvaranir. Ljóst er að leita
þarf nýrra leiða við fjármögnun
Hverahlíðavirkjunar. Virkjunin
getur orðið lykill fyrir orkuöflun
til fjölmargra atvinnuskapandi
verkefna.
Áfram niðurskurður í viðhaldi og
sumarstörfum
Rétt er að minna á að til viðbót-
ar niðurskurði í framkvæmdum
hefur meirihlutinn þegar skor-
ið niður í viðhaldi fasteigna úr
1.323 milljónum 2008 í 734 millj-
ónir á yfirstandandi fjárhagsáætl-
un. Þetta er helmings niðurskurð-
ur í mannaflsfrekustu verkunum.
Enn meiri niðurskurður er í við-
haldi gatna og umhverfis borg-
arinnar þar sem farið er úr 1.323
milljónum árið 2008 í 611 milljón-
ir króna á yfirstandandi ári. Þá er
ótalið að sumarstörfum fækkar hjá
umhverfissviði og framkvæmda-
sviði auk íþrótta- og tómstunda-
sviðs eða samtals um 300 störf.
Samfylkingin setur
atvinnumálin númer eitt
Samfylkingin mun leggja sér-
staka áherslu á atvinnumál í
aðdraganda borgarstjórnarkosn-
inga og boðar breytingartillögur
við framlagða þriggja ára áætlun.
Hún verður tekin til afgreiðslu í
borgarstjórn 16. mars nk. Þetta
ætti ekki að koma neinum á óvart
heldur er í beinu framhaldi af
ítrekuðum tillögum flokksins
um átak í viðhaldsverkefnum,
mótun atvinnustefnu, nýtingu á
tómu húsnæði í þágu nýsköpunar
og atvinnueflingar auk annarra
tillagna flokksins um atvinnumál
í borgarstjórn á þessu kjörtíma-
bili. Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur hafa sýnt þessum
tillögum ótrúlegt fálæti.
Hanna Birna boðar frjálshyggju
Athyglisvert var að í borgar-
stjórn brást Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir við gagnrýni Samfylk-
ingarinnar með þeim orðum að
ljóst væri að Samfylkingin „hefði
ekki trú á atvinnulífinu“. Líklega
er þarna um að ræða einhverja
ómenguðustu frjálshyggjustefnu
í atvinnumálum sem kynnt hefur
verið frá hruni. Það á ekkert að
gera – bara bíða. Klassísk jafnað-
arstefna á krepputímum er þvert
á móti sú að þá sé réttlætanlegt
og mikilvægt að stuðla að atvinnu
með opinberum fjárfestingum og
átaki í tímabærum viðhaldsverk-
efnum, eftir því sem kostur er.
Óhætt er að segja að hinar póli-
tísku átakalínur séu að skírast.
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
DAGUR B.
EGGERTSSON
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
Í kvöld 11. mars kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju
mun Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur
flytja erindi um barnsmissi á samveru Nýrrar dögunar.
Hópastarf fyrir þá sem misst hafa barn verður einnig
kynnt á samverunni.
Allir velkomnir
Að missa barn
www.nydogun. is nydogun@nydogun. is
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
4.990kr.Deka Meistaralakk 40 Akrýllakk. 1 líter
1.495kr.
MAKO pensill
50mm
490kr.
MAKO rúlla 25 cm
450kr.
MAKO málningarlímband
25mm - 50m
445kr.