Fréttablaðið - 11.03.2010, Page 41

Fréttablaðið - 11.03.2010, Page 41
FIMMTUDAGUR 11. mars 2010 25 UMRÆÐAN Ólína Þorvarðardóttir og Guð- bjartur Hannesson skrifa um sjávarútvegsmál Á liðnum vikum hafa samtök útgerðarmanna gengist fyrir fundaherferð gegn áformum stjórn- valda að gera breytingar á framtíð- arskipan fiskveiðistjórnunarinnar með innköllun og endurúthlutun fiskveiðiheimilda á tuttugu árum. Þau áform byggja á fyrirheiti því sem báðir stjórnarflokkar gáfu fyrir síðustu kosningar og stjórn- arsáttmálinn kveður á um. Útvegsmönnum virðist mikið í mun að sannfæra almenning um að afleiðing fyrirhugaðra breytinga muni verði hrun greinarinnar á örfáum árum. Það vekur athygli við þennan málflutning að um leið og LÍÚ kallar eftir nákvæmri útfærslu og talar um „óþolandi óvissu“ um hana, telja samtökin sig geta spáð gjaldþroti greinarinnar verði inn- köllunarleiðin farin. Margt í þeim málflutningi byggir á augljósum misskilningi og/eða ranghermi. Skal nú vikið að því helsta. Fullyrt hefur verið að ætlun- in sé að „taka af“ útgerðinni þær fiskveiðiheimildir sem hún hefur nú yfir að ráða og „keypt“ á liðn- um árum. Hafa menn notað orð eins „eignaupptöku“ og „þjófnað“. Í hinu orðinu segja sumir að þeim hafi alltaf verið ljóst að fiskveiði- heimildirnar séu ekki eign heldur einungis nýtingarréttur. Gott og vel. Sé hið síðarnefnda tilfellið, er enginn ágreiningur þarna. Stjórn- völd hafa aldrei hugsað sér að taka neitt af neinum, heldur að treysta í sessi eignarhald þjóðarinnar yfir auðlind sinni til að eyða allri óvissu og tryggja í framkvæmd ákvæði 1. gr. fiskveiðistjórnunarlaga en þar segir: „Nytjastofnar á Íslandsmið- um eru sameign íslensku þjóðar- innar“. Stjórnvöld telja einnig mik- ilvægt að koma inn í stjórnarskrá lýðveldisins ákvæði um eignar- hald þjóðarinnar á náttúruauðlind- um, þ.m.t. sjávarauðlindinni. Þá vilja stjórnvöld skapa sanngjarn- ar og eðlilegar leikreglur í þessari atvinnugrein og ná sátt við þjóð- ina, en ekki aðeins LÍÚ, um fisk- veiðistjórnunarkerfið. Allar breyt- ingar sem gerðar verða eiga að tryggja „trausta atvinnu og byggð í landinu“ eins og stendur í sömu grein. Þannig er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að smærri og stærri útgerðir landsins muni veiða fisk- inn í sjónum, eftir sem áður, enda hafa þær tækin og reynsluna. Fullyrt hefur verið að stjórnvöld ætli með breytingum á fiskveiði- stjórnunarkerfinu að svipta grunn- inum undan rekstri sjávarútvegs- fyrirtækja enda muni innköllun og endurúthlutun fiskveiðiheim- ildanna gjörbylta rekstrarforsend- unum. Ekkert er fjær sanni. Það segir sig sjálft að íslenskur sjávar- útvegur er undirstöðuatvinnugrein sem efnahagslífið þarf á að halda. Útvegurinn nytjar eina mikilvæg- ustu auðlind þjóðarinnar. En það er auðvitað sanngirnismál að arðurinn af þeim afnotum skili sér í þjóðar- búið, til samfélagsins sem ól þessa atvinnugrein af sér en fari ekki út úr greininni eða í vaxtagreiðslur til bankanna. Vel rekinn sjávarútvegur, hag- kvæm nýting auðlindarinnar, sjálf- bærni og sanngjarnar leikreglur hljóta að vera sameiginlegt mark- mið allra í íslenskum sjávarútvegi. Þau útvegsfyrirtæki sem eru vel rekin og hafa hagað sér skynsam- lega í fjárfestingum eru og eiga að vera samfélagsstólpar. „Greinin verður að geta fjár- fest og viðhaldið sér“ sagði fram- kvæmdastjóri FISK-Seafood á fundi sem LÍÚ hélt nýlega á Grand-Hotel í Reykjavík. Það eru orð að sönnu. Úthlutun nýtingarréttar veiðiheim- ilda til langs tíma, t.d. 15-20 ára myndi skapa útgerðunum stöðugri rekstrarskilyrði en nú eru, með möguleikum á langtímaáætlunum. Samhliða þarf að tryggja eðlileg- an leigumarkað þannig að þeir sem ekki þurfa að veiða þær aflaheimild- ir sem þeim er úthlutað skili þeim aftur inn í „auðlindasjóð“ þaðan sem aðrir eiga þess kost að leigja þær til sín á sanngjörnu verði, en ekki á því uppsprengda leiguverði sem hér hefur tíðkast. Afraksturinn af leigunni myndi nýtast til samfé- lagslegra verkefna. Þannig myndi samfélagið njóta góðs af leigutekj- um veiðiheimildanna en ekki ein- ungis handhafar kvóta. Nýtt fyrir- komulag myndi þýða mun minni fjárfestingakostnað fyrir útgerð- irnar, lægra leiguverð og tryggari starfsskilyrði til framtíðar. Framkvæmdastjóri FISK-Sea- food, Jón Eðvald Friðriksson, sem vitnað var til að ofan, hefur talað fyrir því að stjórnvöld geri samning við útgerðina til langs tíma um nýt- ingarrétt af veiðiheimildum. Hann segir að málið snúist um vinnufrið. Undir þetta getum við tekið heils hugar. Það hefur skort á vinnu- friðinn að undanförnu, enda leiða hræðsluáróður og stríðsyfirlýsing- ar sjaldan til friðar. Verkefnið sem bíður okkar – hags- munaaðila í sjávarútvegi ekki síður en stjórnvalda – er að eyða óviss- unni. Til þess þurfa allir að nálgast viðgangsefnið af ábyrgð og ræða það málefnalega. Þeim útvegsmönnum fer fjölg- andi sem viðurkenna rétt þjóðar- innar til þess að treysta í sessi for- ræði samfélagsins yfir auðlindinni. Um leið þurfa stjórnvöld að fallast á rétt fyrirtækjanna til þess að móta sér skynsamlega fjárfestingastefnu og traustari rekstrarforsendur. Síðast en ekki síst þarf að koma hér á fiskveiðistjórnunarkerfi sem meiri sátt ríkir um. Vankantar núverandi kerfis hafa haft alvarleg- ar afleiðingar fyrir margar byggðir landsins og leitt af sér mismunun og mannréttindabrot sem sjá má af hæstaréttardómum sem fallið hafa og úrskurði Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það er því sanngirnismál, nú þegar endurreisa þarf íslenskt efna- hagslíf, að þessi atvinnugrein komi að því verki eins og til er ætlast af öðrum ábyrgum aðilum, ekki síst í atvinnulífinu. Höfundar eru þingmenn Samfylk- ingarinnar. Eyðum óvissunni ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR GUÐBJARTUR HANNESSON HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS FERÐAÆVINTÝRI Í FERMINGARGJÖF

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.