Fréttablaðið - 11.03.2010, Side 62
46 11. mars 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. dægurs, 6. í röð, 8. gapa,
9. gogg, 11. stöðug hreyfing, 12. jakki
og pils, 14. gort, 16. ónefndur, 17.
þrí, 18. illæri, 20. snæddi, 21. ílát.
LÓÐRÉTT 1. nálægð, 3. frá, 4. garð-
plöntutegund, 5. dreift, 7. garðplöntu-
tegund, 10. fley, 13. hrygning, 15.
kroppa, 16. nægilegt, 19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dags, 6. áb, 8. flá, 9. nef,
11. ið, 12. dragt, 14. grobb, 16. nn, 17.
trí, 18. óár, 20. át, 21. glas. LÓÐRÉTT:
1. nánd, 3. af, 4. glitbrá, 5. sáð, 7.
bergnál, 10. far, 13. got, 15. bíta, 16.
nóg, 19. ra.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Hera Björk stunda rope yoga.
2 Það eru þrír kettir í Hrísey.
3 Össur Geirsson, stjórnandi
Skólahljómsveitar Kópavogs.
„Ég hef aldrei séð þessa þætti. Ég
bara vona að þeir séu ekki hræði-
legir,“ segir Sindri Már Sigfússon
úr hljómsveitinni Seabear sem
á lag í læknaþættinum vinsæla
Grey´s Anatomy, sem um 15 millj-
ónir Bandaríkjamanna horfa á í
hverri viku.
Lagið nefnist Cold Summer og
hljómar í þætti sem verður frum-
sýndur í Bandaríkjunum í kvöld.
Það er fyrsta smáskífulagið af nýj-
ustu plötu sveitarinnar, We Built
A Fire, sem kemur út hérlendis á
mánudaginn. Seabear hefur áður
átt lag í bandaríska þættinum Goss-
ip Girl. „Við erum með höfundar-
réttarsamning við Warner. Þar er
fólk mikið í því að reyna að koma
tónlist í einhverja svona þætti,“
segir Sindri.
Sveitin er á leiðinni í langa tón-
leikaferð um Bandaríkin og Evrópu
sem hefst á tónlistarhátíðinni South
By Southwest í Texas 17. mars. Hún
fær því heldur betur góða kynningu
svona rétt í aðdraganda ferðarinn-
ar, auk þess sem tekjurnar sem
fást af laginu koma sér einkar vel.
„Þetta er aðallega gott fyrir okkur
peningalega séð fyrir þessa túra.
Við þurfum alltaf að borga mikið
fyrir flugið því við erum svo mörg.
Það er alveg rosalegur peningur,“
segir Sindri.
Hljómsveitin hefur fengið styrk
frá Loftbrú vegna flugkostnaðar en
hefur ekki nýtt sér mögulega fyrir-
framgreiðslu frá þýska útgáfufélag-
inu Morr vegna ferðalagsins. „Við
getum fengið peninga hjá þeim ef
okkur vantar. Þá er það fyrirfram-
greiðsla fyrir plötusölu. Það er bara
eins og að taka yfirdrátt að fá styrk
frá þeim. Maður borgar þetta allt á
endanum sjálfur.“
Sindri vill ekki gefa upp hversu
háa upphæð Seabear fær fyrir
lagabirtinguna í Grey´s Anatomy.
„Miðað við gengið núna er þetta
mjög fínt. Þetta er mjög hátt tíma-
kaup. Ætli þetta séu ekki þrjátíu
sekúndur sem lagið hljómar, þannig
að þetta eru margir þúsundkallar á
sekúndu.“
Hljómsveitin er nýkomin heim
eftir tónleikaferð um Þýskaland
og Noreg sem heppnaðist sérlega
vel að mati Sindra þrátt fyrir tut-
tugu stiga kulda. „Það var uppselt
á öllum stöðunum sem við fórum á
og við höfum aldrei selt jafnmikið
af plötum og bolum fyrr.“
Næsta þriðjudag er förinni heit-
ið til Bandaríkjanna en í sumar
stefnir Seabear á að halda útgáfu-
tónleika hér heima vegna nýju plöt-
unnar. freyr@frettabladid.is
SINDRI MÁR SIGFÚSSON: HEF ALDREI SÉÐ ÞESSA ÞÆTTI
Fínn peningur fyrir að
selja lag í Grey‘s Anatomy
LAG Í GREY´S ANATOMY Sindri Már Sigfússon og félagar í Seabear eiga lag í lækna-
þættinum vinsæla Grey´s Anatomy. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal
tekur þátt í einu stærsta pókermóti
heims þegar hann sest við eitt af spila-
borðunum í spilavítinu Monte Carlo
við Grace-götuna í Mónakó og keppir
á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í
póker fyrir hönd pókerfyrirtækisins
PokerStars.com. Vinningsféð er hæsta
upphæð sem nokkur pókerspilari
getur unnið sér inn utan Las Vegas en
sá sem stendur uppi sem sigurvegari
getur farið heim með rúmar 2,6 millj-
ónir evra eða 400 milljónir íslenskra
króna í rassvasanum. Heildarvinn-
ingsféð er rúmar níu milljónir evra
eða tæpir tveir milljarðar íslenskra
króna.
„Mótið er í lok apríl,
við Sveppi förum, hann
fær samt ekkert að taka
þátt í mótinu sjálfu
heldur verður hent í
eitthvert hliðarmót,“
segir Auðunn í samtali
við Fréttablaðið en þeir
félagar hyggjast gera
sjónvarpsþátt um þátttöku Auð-
uns á mótinu. Margar af skær-
ustu stjörnum pókerheims-
ins hafa vanið komur sínar á
mótið en Auðunn er hvergi
banginn. Hlakkar bara til að
reyna sig við menn á borð við
Phil Ivey og Daniel Negreanu.
Köngulóarmaðurinn fyrrverandi
Tobey Maguire hefur tekið þátt
í mótinu en hann þykir nokkuð
lunkinn með spilin.
935 pókerspilarar taka
þátt í mótinu en Auðunn
segist ekki vita hvað hann
geri ef hann sigri. „Ég
bara veit það ekki, ég
myndi allavega ekki hætta
í sjónvarpi.“ - fgg
Auðunn keppir um 400 milljónir
MEÐAL ÞEIRRA BESTU Auðunn
Blöndal fær að reyna sig gegn
þeim bestu í Monte Carlo. Tobey
Maguire lætur sig yfirleitt ekki
vanta á mótið.
Frægasti sjónvarpskokkur
Írlands, Rachel Allen, er íslensk
í móðurættina. Þetta kemur fram
í viðtali við hana í bandaríska
veftímaritinu San Gabriel Valley
Tribune. „Ég eldaði ekki mikið
heima, mamma sá aðallega um
það,“ segir Rachel í viðtalinu.
Eftir nokkra eftirgrennsl-
an Fréttablaðsins kom í ljós að
móðir Rachel er Hallfríður Rei-
chenfeld O’Neill sem fluttist ung
að árum frá Reykjavík til London
og var í listaháskóla þar. Í viðtali
við Belfast Telegraph er ástar-
saga Hallfríðar rakin en að sögn
blaðsins fór hún í stutta helgar-
ferð til Dublin og kynntist þar
eiginmanninum Brian O‘Neill.
Þau hafi strax fellt hugi saman og
Hallfríður fluttist til borgarinn-
ar þar sem hún rak fjölda tísku-
verslana.
Reyndar vekur athygli í
umræddu viðtali að þar er sér-
staklega tekið fram að Rachel sé
mótmælandatrúar og að móðir
hennar hafi ekki verið ýkja
trúuð.
Rachel Allen hefur ekki gert
mikið úr sínum íslensku ættum
en í viðtölum við breska fjölmiðla
kemur yfirleitt fram að móðir
hennar sé íslensk.
Allen hefur gefið út fjöldann
allan af matreiðslubókum hjá
útgáfunni Harpers Collins í Lond-
on. Þá hefur hún verið með fjölda
sjónvarpsþátta á Good Food Chan-
el í Bretlandi, skrifar reglulega í
bæði tímarit og dagblöð og fram-
leiðir sína eigin línu af bæði borð-
búnaði og eldunarútbúnaði á borð
við brauðvél.
Rachel býr nú ásamt manni
sínum og þremur börnum á
búgarði sem sérhæfir sig í líf-
rænt ræktuðum mat en maðurinn
hennar rekur tvo veitingastaði.
- fgg
Frægasti kokkur Íra er íslenskur
Emilíana Torrini: Today Has Been
Ok, Serenade, Sunny Road, Nothing
Brings Me Down í Grey´s Anatomy
Lay Low: Mojo Love í Grey´s
Anatomy
Eberg: Inside Your Head í The O.C.
Barði Jóhannsson og Noemi
Brosset: Dream í The L-Word
Bang Gang: Follow í The O.C.
ÍSLENSK LÖG Í BANDARÍSKUM ÞÁTTUM
„Morgunmaturinn minn er
eins og íslenska veðrið − það
er ómögulegt að festa hönd á
hvernig hann verður. Í sem fæst-
um orðum borða ég það sem
er til í ísskápnum, allt frá skyri
yfir í pítsusneið með hakki og
papriku frá kvöldinu áður.“
Björg Magnúsdóttir, blaðakona og
háskólanemi.
Hönnuðurinn Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir
hefur dvalið í Los
Angeles undanfarnar
vikur og unnið að því
að kynna tískumerkið
Gyðju. Sigrún skellti
sér í hádegismat
með Anítu Briem á
veitingastaðnum The
Ivy á þriðjudag, en
sá staður er einna
frægastur fyrir að
vera fullur af frægu fólki á hverjum
degi. Stjörnurnar sem vilja láta
papparassana mynda sig mæta
þangað og geta verið vissar um að
vera í blöðunum og á vefsíðunum
í kjölfarið. Engum sögum fer af því
hvort þær stöllur hafi verið hund-
eltar, en Aníta gat örugglega gefið
Sigrúnu góð ráð í sambandi við
bransann í stjörnuborginni.
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá
er margt skorið við nögl í sambandi
við Eurovision í ár. Og er leitað
allra leiða til að spara nokkra aura.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er Örlygur Smári nú alvarlega
að velta því fyrir sér að
vera sjálfur hljóðmaður
atriðsins en með því
gætu sparast nokkr-
ar krónur því
yfirleitt hafa
sérstakir
hljóð-
menn fylgt
íslenska
Euro-vision-
hópnum.
Fyrstu sólóplötu Jónsa úr Sigur
Rós, Go, hefur verið lekið á Netið
tæpum mánuði áður en hún á
að koma út, sem er 5. apríl. Jónsi
hefur áður lent í þessu því í maí í
fyrra var fyrstu plötu hans og kær-
asta hans Alex Somers,
Riceboy Sleeps,
lekið á Netið
rúmum tveimur
mánuðum fyrir
útgáfudag. Hvort
lekinn á Go
verði til þess
að platan seljist
minna en ella eða
hvort áhuginn á henni
aukist verður
látið liggja á
milli hluta.
- afb, fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Auglýsingasími
ER ÍSLENSK Rachel Allen er einn þekkt-
asti kokkur Íra en hún á íslenska móður,
Hallfríði Reichenfeld. NORDICPHOTOS/GETTY