Fréttablaðið - 01.04.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
FIMMTUDAGUR
1. apríl 2010 — 77. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Stóra kjólamálið kom vitaskuld illa við okkur og þar sem Ríkisút-varpið er í eigu allra landsmanna tökum við ábendingum þar um fagnandi og komum til móts við
óskir um það sem betur má fara. Til þess treystum við engum betur en Lindu sem nú mun vaka haukfrán-um augum yfir öllu sem verið gæti fagurfræðilega vafasamt í búninga-framsetningu Sjónvarpsins,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um ráðningu Lindu í starfið, sem ekki var auglýst.
Íslensku þjóðinni er í fersku minni óvænt framlag Lindu í þjóð-félagsumræðuna þegar hún sagði sjónvarpskonurnar Evu Ma ídótt
ins enda alls ekki nógu gott. Sem þjóðarfjölmiðill er áríðandi að vitna meira í íslenska náttúru og íslensk gildi; ekki síst þegar þjóðin á jafn bágt og um þessar mundir,“ segir Linda sem sýnir afrakstur fyrstu búningagerðar sinnar fyrir Sjón-varpið í húsakynnum Listaháskól-ans við Skipholt í dag, skírdag, þar sem hún segist einnig munu taka tilmælum fagnandi, enda búning-arnir almannaeign.Eitt af fyrstu verkefnum Lindu er betri útfærsla á búningum Stundar-innar okkar, en það er að ósk sjón-varpsstjóra sem kallar á aukið áho fkarla á ba f
í þessum tilgangi, og verður frum-sýnt í Stundinni okkar á páskadag,“ segir Páll spenntur yfir nýrri ásýnd sjónvarpsfólks undir öruggri hand-leiðslu Lindu.„Ef vel til tekst finnst mér engin spurning að Linda taki yfir hönn-un kjóla fyrir meiri háttar viðburði á sjónvarpsskjánum, eins og Júró-visjón, spurningakeppnir og jafn-vel kosningasjónvarp, þar sem líka hefur verið kvartað undan smekk-leysi í fatavali sjónvarpsfólks sem og viðmælenda. Sjálfur væri égalveg sáttur við að Li
Sátt í stóra kjólamálinu
Linda Björk Árnadóttir, aðjúnkt í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, hefur verið ráðin
listrænn ráðunautur í búningadeild Ríkissjónvarpsins. Útvarpsstjóri segir kröfum sjónvarpseigenda mætt.
Linda situr hér við teikningu á nýjum búningi fyrir Stundina okkar á páskadag. Hún segir klæðnaðinn hafa sterka tilvísun í
íslenska náttúru, með stuðlabergi yfir axlir. Kanínuhugmyndin kviknaði svo á göngu um Öskjuhlíð þegar hún sá að náttúran á sér
nýjar birtingarmyndir í nærumhverfinu þegar fjörlegar kanínur stukku á milli steina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KÓRINN HYMNODIA kemur fram á miðnætur-
tónleikum í Akureyrarkirkju að kvöldi föstudagsins langa.
Kvenraddir Hymnodiu eru í aðalhlutverki í þessari dagskrá.
Meðal annars verður flutt verkið Stabat Mater eftir Pergol-
esi og verk með sama nafni eftir Marc-Antoine Charpentier.
Kirkjan verður myrkvuð að mestu.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin
12 kg
Þvottavélog þurrkari
tómstundirFIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Skátaandinn er hressandi aflGuðmundur Þór Pétursson er félagsforingi skáta-
félagsins Skjöldunga.
BLS. 2
TÓMSTUNDIR
Ættfræði, matjurtarækt
og ferðir út í geiminn
Sérblað um tómstundir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LINDA BJÖRK ÁRNADÓTTIR
Ráðin listrænn
ráðunautur hjá RÚV
• tíska • páskar
Í MIÐJU BLAÐSINS
Opið 13–18
OPIÐ
13-18
í dag
Leyni
st þvo
ttavé
l
eða þ
urrka
ri frá
í þínu
m pa
kka
Bjart suðvestantil Í dag verða
norðlægar áttir, víða 6-12 m/s en
hægari vindur sunnanlands. Norð-
an- og austanlands verður heldur
þungbúið og stöku él en annars má
búast við bjartviðri.
VEÐUR 4
0
-4
-4
-4
0
Lenti í skýstrók
Völli Snær lenti í
skýstrók á veit-
ingastað sínum á
Bahama-eyjum.
FÓLK 50
Tekur flugið
Edda Björgvins
útskrifast sem
flugfreyja.
FÓLK 50
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra
segir skort á aflaheimildum
í sumar áhyggjuefni og til
greina komi að auka þær. Þetta
kemur fram í grein sem hún
skrifar í Fréttablaðið í dag.
Jón Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra segir í samtali við
Fréttablaðið að málið verði
ábyggilega skoðað en áréttar
að það sé hans að taka endan-
lega ákvörðun. - shá / sjá síðu 22
Jóhanna Sigurðardóttir:
Vill auka kvóta
Ótrúleg
endurkoma
Eftir að hafa verið
yfirspilað í 70 mínútur
kom Arsenal til baka
og náði jafntefli gegn
Barcelona.
ÍÞRÓTTIR 42
Dymbilvika og páskar
„Páskarnir eru tákn um trúna og
hugrekkið“, segja Árni Svanur
Daníelsson og Kristín Þórunn
Tómasdóttir.
Í DAG 20
JÖRÐIN OPNAST Gísli Gíslason, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, varð vitni að því þegar hin nýja sprunga á Fimmvörðuhálsi opnaðist rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Eins og
sést á myndinni var fólk skammt frá gossprungunni þegar hún opnaðist og sprungur í jörðinni teygðu sig langt í áttina að forvitnum ferðamönnunum. MYND/GÍSLI GÍSLASON
ELDGOS Hópur fólks var í bráðri
lífshættu þegar ný sprunga opn-
aðist á gossvæðinu á Fimmvörðu-
hálsi í gærkvöldi.
Þyrluflugmaður sem varð vitni
að því þegar sprungan opnaðist
segir hóp fólks hafa verið í 30 til
40 metra fjarlægð frá sprungunni.
Einhverjir úr hópnum hafi ákveð-
ið að ganga nær sprungunni í stað
þess að forða sér.
„Fólk virtist ekki átta sig á því
sem var að gerast,“ segir Gísli
Gíslason, þyrluflugmaður hjá
Norðurflugi.
„Við sáum fyrstu spýjuna koma
upp úr storknuðu hrauni klukk-
an 18.52,“ segir Gísli. Það hafi
verið afar tilkomumikil sjón að
sjá hraunið klofna og eldinn rísa
upp úr sprungunni.
Hann var þá nýlentur á hól
skammt frá þar sem sprung-
an opnaðist. Hann segir að fljót-
lega eftir það hafi hann ákveðið
að fljúga burt með sinn hóp, enda
sprungan tekin að lengjast.
Þyrlur voru notaðar til að
ferja fólk sem var á göngu nærri
sprungunni að Hótel Skógum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð á svæðið og fékk liðsauka
frá tveimur þyrlum sem notaðar
höfðu verið fyrir útsýnisflug.
Veginum inn í Þórsmörk var
lokað fljótlega eftir að nýja
sprungan myndaðist. Á tíunda
tímanum í gær var fólki sem vildi
komast burtu úr Þórsmörk leyft
að fara yfir Hvanná í hópum með
aðstoð björgunarsveitarmanna.
Nýi gígurinn virðist jafn kröft-
ugur og sá fyrri, segir Magn-
ús Tumi Guðmundsson, prófess-
or í jarðeðlisfræði við Háskóla
Íslands.
Hann segir gosrásina sem ligg-
ur að fyrri gígnum væntanlega
hafa klofnað á litlu dýpi norðvest-
an við fyrri gíginn.
Óli Þór Hilmarsson, fararstjóri
hjá Útivist, var á göngu með tíu
manna hóp þegar gossprung-
an opnaðist. Hann tók í kjölfar-
ið að sér að koma fólki sem var í
nágrenninu á eigin vegum niður í
Bása á Goðalandi.
„Það gekk mjög vel að koma
fólkinu niður enda gott veður og
gott göngufæri,“ segir Óli.
Einhverjir ætluðu að gista í
skálanum í Básum í nótt.
- bj, sbt / sjá síðu 6
Fólk í bráðri hættu
við nýja gossprungu
Ný sprunga myndaðist við eldgosið á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi. Sjónarvott-
ur segir fólk hafa verið í lífshættu þegar sprungan opnaðist 30 til 40 metra frá
hópi fólks. Svæðinu var lokað í kjölfarið og fólk ferjað burtu á þremur þyrlum.