Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 70
6 matur
Í E L D H Ú S K R Ó K N U M
Þarftu að skerpa
hugann fyrir prófin?
Énaxin jurtablandan eykur einbeitingu og úthald!
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
ORKA & KRAFTUR ÚR NÁTTÚRUNNI
Þetta er bara ofboðslega ein-faldur og góður réttur sem er alveg tilvalinn að hafa
með sér í ferðalagið,“ segir Ásgeir
um lunda sem hann hefur útbúið
og leyfir blaðamanni að bragða á.
Kveðst hafa smakkað á réttinum
hjá Adda frænda sínum, eða Adda
frænda í London eins og hann er
kallaður, í síðasta ferðalagi til
Eyja um verslunarmannahelgi og
Sælkeramatur
VIÐ ÝMIS TÆKIFÆRI
Ásgeiri Erlendssyni fréttamanni finnst fátt eins gaman og að ferðast ef frá er talin
ástríðan sem hann hefur fyrir matseld. Hann deilir með lesendum uppskrift að
lunda sem hann segir ljúffengan og henta vel jafnt í veislur sem ferðalög.
LUNDI OG FLEIRA
1 msk. sykur
1 dós malt
Vatn
8 lundar
Setjið malt
og sykur með
vatni í pott
þannig að
vökvinn fljóti
yfir fuglinn.
Þrátt fyrir smæð
þarf að sjóða lundann
í þrjá tíma. Eftir það er
hann settur í plastpoka
svo hann þorni ekki.
Kaldan lunda má taka
með í ferðalagið og
borða með smjöri og
kartöflum. Í því felst
lítil fyrirhöfn. Eins
má útbúa hann
með flókn-
ari aðferð og
bera þá fram
kaldan með
waldorfsal-
ati, sveppasósu
(sem má útbúa
áður en haldið er af
stað) og rifsberjasultu.
SVEPPASÓSA
2 laukar saxaðir
1 gulrót, skorin í bita
1 stilkur sellerí, skor-
inn í bita
1 tsk. tímían
200 g sveppir
1 peli af rjóma
Súpukraftur og sósu-
jafnari eftir smekk
Setjið olíu á pönnu og
brúnið lauk og græn-
meti lítillega. Bætið því
síðan í pottinn og hellið
vatni yfir. Sjóðið og
setjið sveppi loks út í.
WALDORFSALAT
1 dós sýrður rjómi og
jafnmikið á móti af
þeyttum rjóma
2 græn epli
300 g græn vínber
Skerið vínberin í tvennt
og fjarlægið steinana.
Skerið epli í litla ten-
inga. Blandið þessu
saman við sýrða rjóm-
ann í þeirri röð sem
það er talið upp.
REYKTUR LUNDI OG MEÐLÆTI
Ásgeir segir ekki sama hvernig lundinn er soðinn. Samkvæmt uppskrift Söndru frænku hans í Vest-
mannaeyjum er það gert með neðangreindum hætti.
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
því fundist kjörið að útbúa slíkan
rétt.
„Lundinn hentar auðvitað við
fleiri tækifæri en um verslunar-
mannahelgina. Hann er til dæmis
góður í veislur og þá með hvítum
jafningi eða brúnni sósu,“ segir
Ásgeir, sem fer þá leið hér en
getur þess að í ferðalagið sé lund-
inn hins vegar góður kaldur og þá
með íslensku smjöri og kartöflu-
salati. „Því fylgir auðvitað minni
fyrirhöfn.“
Ferðalög eru á meðal helstu
áhugamála Ásgeirs en hann segist
því miður geta ferðast alltof sjald-
an af alvöru vegna anna. Hann hafi
frekar tíma í matseld og finnst
þá gaman að slá upp veislu fyrir
vinina. „Mér finnst það rosalega
gaman og geri það helst ekki öðru-
vísi en með stæl,“ segir Ásgeir,
sem býst þó við að ferðast eitthvað
innanlands í sumar. „Ætli ég elti
þá bara ekki góða veðrið eins og
sannur Íslendingur.“ - rve
Ásgeir með lunda
eins og hann
smakkaði hjá Adda
frænda sínum í
Vestmannaeyjum,
þangað sem hann á
ættir að rekja.
Með lundanum er tilvalið að bera fram salat og smjör. Þeir sem vilja ganga skrefi lengra geta útbúið hvítan jafning eða brúna sósu
eins og hér er gert.
A
BAMBOO
kerta lugt í körfu
sem auðvelt er
að taka með
sér út á sval-
ir í rauðvínsglas
eða kvöldveislu í
Heiðmörk. ILVA,
Korputorg. Verð:
5.900 krónur.
DÓSIR með loki fyrir fallega
smurðar samlokur eða berin síðar
í sumar. IKEA, Kauptúni 4. Verð:
1.390 krónur.
STÁLHITABRÚSI frá
IKEA, Kauptúni 4. Hella
má úr flöskunni án þess
að opna lokið alveg sem
heldur innihaldinu lengur
heitu. Verð: 1.190 krónur.
DÓSAOPNARI frá Nor-
mann Copenhagen sem
er tilvalinn í ferðalag-
ið. Epal, Skeifunni 6.
Verð: 2.550 krónur.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki