Fréttablaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 06.05.2010, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 6. maí 2010 Hinn 11. febrúar í ár lagði ég hér í blaðinu einu sinni sem oftar út af eftirminnilegum ummælum Bjarna Bendiktsson- ar, síðar forsætisráðherra, frá 1934 um svik samábyrgðarinn- ar. Ég lýsti í því viðfangi nýrri löggjöf um skerðingu sjálftek- inna hlunninda í Póllandi. Lýs- ingin hljóðaði svo: Makleg málagjöld „Í Póllandi var Wojciech Jar- uzelski hershöfðingi, síðasti kommúnistaleiðtoginn, dreg- inn fyrir dóm eftir dúk og disk. Réttarhaldið stendur enn. Hann ver sig með því, að hann hefði neyðzt til að taka völdin í sínar hendur, því að ella hefði Rauði herinn ráðizt inn í land- ið. Pólverjar hafa verið á báðum áttum, en nú fjölgar þeim, sem telja nauðsynlegt að svipta hul- unni af fortíðinni og refsa þeim, sem brutu af sér. Þetta fólk segir: við þurftum fyrsta kast- ið að verja öllum okkar kröftum til að reisa Pólland við, en nú er því verki lokið, landið er komið inn í ESB, svo að nú getum við snúið okkur að uppgjörinu, sem við slógum á frest. Nýlega ákvað pólska þingið að skerða eftirlaun Jaruzelskis og 40.000 annarra karla og kvenna, sem unnu fyrir pólsku leyniþjónustuna. Hví ekki? Hví skyldi þetta fólk fá að halda sjálfteknum eftirlaunum fyrir að leggja líf almennings í rúst?“ Afbrot og sjálftaka Tvennt vakti aðallega fyrir lög- gjafanum í Varsjá. Í fyrsta lagi höfðu leyniþjónustumennirn- ir, sem nýju lögin ná til, ljós- lega brotið af sér, enda þótt deila megi um, hvort sum brotin hafi varðað við lög eða ekki. Í annan stað hafði þetta fólk skammtað sjálfu sér með atbeina Komm- únistaflokksins eftirlaun og önnur hlunnindi, sem voru að meðaltali þreföld á við eftirlaun venjulegs fólks. Þessi blanda brotlegrar háttsemi og sjálft- öku reið baggamuninn við laga- setninguna. Nærri má geta, hvort gamlir kommúnistar og aðrir börðust ekki gegn löggjöf- inni með kjafti og klóm. Langar ræður úr munni gamalla komm- únista um friðhelgi eignarrétt- arins og óriftanlega samninga hafa sennilega haft holan hljóm í eyrum flestra Pólverja. Sagt er, að einhverjir þeirra, sem lögin ná til, ætli að reyna að fá þeim hnekkt fyrir Mannréttindadóm- stóli Evrópu. Tíminn mun leiða í ljós, hvernig hugsanlegri áfrýj- un þangað reiðir af. Lögbrot og önnur brot Þessi nýja löggjöf Pólverja á nú brýnt erindi við Íslendinga. Hér eins og í Póllandi þarf þjóð- in að gera upp við sig, hvernig hún tekur á vanrækslu stjórn- málamanna og embættismanna í aðdraganda bankahrunsins. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis tekur af tvímæli um lögbrot bankanna og um samá- byrgð bankanna og stjórnvalda og nafngreinir þrjá fyrrum ráð- herra og fjóra embættismenn, sem sýndu vanrækslu. Líkur benda til, að Alþingi telji nauð- synlegt að kveðja saman Lands- dóm til að skera úr um, hvort ráðherrarnir hafi brotið lög um ráðherraábyrgð. Sérstakur sak- sóknari eða ríkissaksóknari mun væntanlega með líku lagi ákæra embættismennina. Lögin eru þó ekki einhlít viðmiðun. Alþingi getur að auki ákveðið viðeigandi viðbrögð við van- rækslu sjömenninganna með því að leita leiða til að afnema eftir- laun þeirra og önnur sjálftekin hlunnindi eða skerða þau svo, að þau miðist til dæmis við lægstu eftirlaun, sem tíðkast meðal rík- isstarfsmanna. Þess vegna hef ég lagt það til í sjónvarpi og útvarpi, og ítreka tillöguna nú hér á prenti, að rík- isstjórnin eða Alþingi óski eftir aðstoð pólskra stjórnvalda við að leiða sambærileg ákvæði í íslenzk lög. Höfundar pólsku laganna þekkja sviðið og kunna að girða fyrir mótbárur þeirra, sem munu reyna að standa í vegi fyrir lagasetningunni. Pólverj- unum er í lófa lagið að leiðbeina höfundum um sams konar laga- texta handa Íslendingum. Slík lög myndu án efa mælast vel fyrir. Níu nöfn Sjálfsagt er að bæta tveim fyrrum ráðherrum í hóp sjömenninganna, þeim Hall- dóri Ásgrímssyni, fv. utanrík- isráðherra, og Valgerði Sverr- isdóttir, fv. viðskiptaráðherra. Þau stýrðu ásamt Davíð Odds- syni forsætisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra einkavæðingu bankanna með ámælisverðum hætti eins og rannsóknarnefnd Alþingis lýsir í skýrslu sinni. Þetta fólk hefur með spilltri háttsemi bakað landinu óbætanlegan skaða og sýnir engin merki um iðrun. Hvers vegna skyldu þau af öllum mönnum fá að þiggja margföld sjálftekin eftirlaun og önnur hlunnindi úr vasa fólksins í landinu, sem líður nú sárlega fyrir afleiðingar gerða þeirra? Pólska leiðin Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Alþingi getur að auki ákveðið viðeigandi viðbrögð við vanrækslu sjömenninganna með því að leita leiða til að afnema eftir- laun þeirra og önnur sjálftekin hlunnindi eða skerða þau svo, að þau miðist til dæmis við lægstu eftirlaun, sem tíðkast meðal ríkisstarfs- manna. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... HE IÐMÖRK HE IÐMÖRK Vatnsheld og andar vel. dömu kápa Verð jakki: 18.800 kr. Verð buxur: 12.500 kr. Verð jakki: 7.800 kr. Verð buxur: 5.000 kr. Verð: 26.000 kr. RÁN Vindheldur með 5.000 mm vatnsheldni. léttur barnajakki 2-14 ára Léttur, vatnsheldur og andar vel. jakki Einnig fáanleg í svörtu Einnig fáanlegur í svörtu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.